Faxi

Árgangur

Faxi - 01.06.1948, Síða 8

Faxi - 01.06.1948, Síða 8
8 F A X I Bréfið bílstjórans: „Þú ert að Skammast okk- ur firer sprúttsölu. bjeaður Róna- kutturin og keiftir oft af okkur. og stundum fékstu lanað íþí. En nú erum við hættir að selja við hofum aldrei selt það. Þú ættir að skama Vighefilin sem jeg mæti um dagin á fúllspítt Innetter tel Reykjavikur eftir öll þvottabretin án þess að hefla já skamaðu hann ef þú vilt skamast. þú ætter að skamast þín“ (bálreiður-) Bílstjóri. Andsvar vort: Tja, satt var orðið, gott áttuð þið lengi vel ölið, ökukallar, og hafið sælir svalað mér og mínum. (Nei, hafið skarpa skömm fyrir, mun hann Margeir segja). En það var veghefillinn, sá herjans þrjótur. I tilefni af ofanrituðu bréfi, brugðum vér oss inn á mubluverkstæðið Margtsmíðar- magnús, báðum lofa oss líta á hefla, hverrar náttúru þeir væru og þvíumlíkt. O, öll tólin þar inni: langheflar og stutt- heflar, stingsagir og stórviðarsagir, hálftomma og helvítalöngtomma, vinkilhorn og skóhorn, smergelskífur og úrskífur, naglbítar og stein- bítar, klaufhamrar og hinseginhamrar, kross- viður og vínviður ogogog — jamm. Hefil er sumsé þeirrar nátturu, að hann heflar bara aðra leiðina. Svo er hann dreginn til baka og heflar ekkert í þeirri leiðinni. Sam sagt, bílstjóri 'góður: Veghefillinn, sem þú mættir, var að draga sig til baka inn á Hvaleyrarholt til þess að geta heflað veginn þaðan og hingað. Brunabíll vor hélt innöku sína í plássið á dögunum. Lét dæluna ganga við ís- hústjörn, hver tæmdist á svipstundu, en Seltjörn tók að flæða yfir bakka sína og ógna Grindvíkingum. Þá þrýsti slökkviliðs- 'stjóri vor á framaníhnapp bílsins og íshúss- tjörnin fékk vatn sitt aftur. Svo var mikill sogdælunnar kraftur. Mun nú í ráði, að selja gömlu aftaníkerr- urnar þangað, sem aldrei kviknar í. Sparisjóður Guðmundur (og vor, þegar vér eigum þar inni) neitaði nýlega að greiða Landsbankavaldinu 3 tékka, liverjir ekki voru frá Tékkóslóvakíu komnir eins og Jón og Skarpi, heldur rammfalskir eður rang- lega uppáteiknaðir. Lá við borð, að Sjóðurinn og Valdið færu í hár saman, en þá skarst laganna makt í leikinn og handlangaði tékka-teiknarann uppá númer 9 við Skólavörðustíg, — beint á móti viðskiptanefnd. Hafði Sjóður vor þar með fullan sigur og sæmd — og mun fáa fýsa að fara með fals og dár við Sjóðinn eða plögg hans í fram- tíðinni. Lúkum vér svo lestrinum að sinni. Skriffinnur. Sr. Friðrik Friðriksson óttræður Hinn 15. maí s. 1. átti sr. Friðrik Frið- riksson áttræðisafmæli, — hinn þjóðkunni æskulýðsleiðtogi og barnavinur. Var þessa merka afmælis sr. Friðriks þá ítarlega getið í blöðum og útvarpi, enda er hann dáður og elskaður af þúsundum manna víðsvegar um Island og víðar, því langvist- um hefir hann oft dvalið erlendis, t. d. var hann í Danmörku mestan hluta síð- ustu styrjaldar og er því nýlega kominn heim. Það er ekki tilgangur minn með þessum línum að skrifa langa afmælis- grein um sr. Friðrik. Það er óþarft. Þjóðin þekkir hann og metur hans ágæta starf í þágu ísl. æsku. Hitt finnst mér rétt og skylt, að Faxi birti mynd hans og geti þess- ara merku tímamóta, þar sem sr. Friðrik hefir verið þjónandi prestur hér um skeið, en það var, eins og menn muna, veturinn 1936, og þá í forföllum sóknarprestsins, sr. Eiríks Brynjólfssonar, sem þann vetur lá í sárum sínum eftir hinn hörmulega bruna i Keflavík. A námsárum mínum var ég svo láns- samur að kynnast nokkuð séra Friðrik og mannkostum hans, og jukust þau kynni okkar veturinn sem hann dvaldi hér. Veit ég, að margir hér í préstakallinu, sem kynntust honum, minnast hans nú með hlýhug og virðingu. Enda ég svo SR. FRIÐRIK ÁTTRÆÐUR Löng er cejileið að bakj, lyft var mörgu Grettistakj við að manna og mennta þjóð. Veginn guðs að varða, ryðja var þín kjóllun, þrá og iðja, og /{veða óms/{cer unaðsljóð. Æsþa vorrar ungu þjóðar átti með þér stunc/ir góðar, sat við andans arinn þinn. Nam þar beint af náttúrunni nafnið Hans, — og meta \unni Lávarð heimsins, herra sinn. Þeim sé heill er þannig vinnur, þeim, er guðdómsneistann finnur, og rceþtar hjartans beztu blóm Sr. Friðrik Friðriksson. þessar fáu línur með þeirri einlægu ósk, að hin bjarta lífstrú hans, þróttmikil og barnsleg, eins og hann gaf hana þúsund- um æskumanna, megi á ókomnum árum verða landi og þjóð til blessunar. Vissan um það væri honum dýrmæt af- mælisgjöf. H. Th. B. Slíkt er merkjsmanna starfi, að miðla þrátt af sínutn arfi itin í hinna auðn og tóm. ísland lautiar liðnu árin, lofar hvítu silfurhárin, þakkar drýgðar dáðir þér. Blessar nafn þitt ct.skan unga. 0/{kar dýra feðra tunga Ijóð þín ómþýð eignar sér. Þjóðin öll, já, landið /ikfi lojar /{œr/eikssiarítð rí/{a reist á tápi, trú og von. Áttrceðan, með andans snilli, ceskumann i söng ég hylli séra Friðrik Friðriksson. H. Th. B.

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.