Faxi - 01.06.1951, Blaðsíða 7
F A X I
59
Helgidags- og næturvaktir lækna í Keflavík:
2. til 9. júní, Arni Björnsson.
9. til 16. júní, Karl G. Magnússon.
16. til 23. júní, Pétur Thoroddsen.
23. til 30. júní, Arni Björnsson.
30. júní til 7. júlí Karl G. Magnússon.
Það scm hljómar í allra eyrum
þessa dagana, er: „Kanntu að synda?“
„Kemst þú 200 metrana?" „Geturðu ekki
þjálfað þig upp, því að allir verða að leggja
sitt fram til að stuðla að sigri íslands i
Samnorrænu sundkeppninni.“
1‘annig tala ungir og gamlir,
hvar og hvenær sem fundum ber saman.
Og það er ekki óeðlilegt þegar þess er að
gæta, að sómi íslands er í veði. Bæði við
og aðrir höfum látið líkindalega yfir því að
við værum mesta sundþjóð allra Norður-
landanna og þá jafnframt mesta sundþjóð
í heimi. Nú er komið til okkar kasta, og
Ihvað getum við þá? Höfum við bein í
nefinu að „synda af okkui'" hinar Norður-
landaþjóðirnar, þrátt fyrir slæmar jöfnunar-
tölur (útreikningsgrundvöll) og sanna þar
nieð að við værum mesta sundþjóð heims?
I’að þarf sannarlcga
ÖU hugsanleg ráð til þess að svo geti orðið.
Allir verða að taka þátt, ekki aðeins í sund-
mu heldur einnig í málflutningi fyrir keppn-
mni. Það verður hver og einn að stappa
stalinu í kunningja sína, sem hugsanlegt er
að komist vegalengclina. Oft er það bara
feimni og ótti við að komast ekki vegalengd-
ina, sem heldur fólki heima.
Island getur tapað cf þú
leyfir slíkum hugsunum að ráða hjá þér.
Aftur á móti getur það unnið — ísland getur
unnið, kannske aðeins vegna þess, að þú
vildir leggja það á þig að æfa bringusund
nokkra daga. Það er ekki nauðsynlegt að
stnjúga vatnið eins og Norðurlandameistar-
mn Sigurður Þingeyingur, með aðdáanlega
fallegum sundtökum eða miklum hraða, og
sá sem er lítið æfður ælti að forðast það að
hraða sér ef hann ætlar að synda 209 metra.
Farðu rólega og reyndu eftir getu að hafa
sundtökin rétt og umfram allt gættu vel að
því að hafa andardráttinn samtaka, og ef
þú hefur það svo að markmiði að ljúka
sundþrautinni fyrir 10. júlí þá munt þú ná
takmarkinu, jafnvel þó að þú kunnir sama
°g ekkert í sundi i dag.
„Það er lciðinlcgt
að stúlkur í mjólkurbúðunum hér skuli
ekki vera með hvitar skuflur yfir hárinu,
núna eins og í gamladaga“, sagði ein frúin
við mig fyrir nokkrum dögum. Já, það v’ar
leiðinlegt að sá ágæti vani féll niður, það
hlýtur öllum að koma saman um það. Lík-
lega er þó full ástæða fyrir þvi að svo varð.
A stríðsárunum mun hafa verið mjög erfitt
að ná í hvítt léreft, jafnvel ómögulegt nema
út á „reseft", og þess vegna eðlilegt að skufl-
urnar tíndu tölunni. Nú hefur blessaður báta-
gjaldeyririnn bætt úr þessu og hvítt léreft til
í annari hverri búð. Það væri því mjög æski-
legt a. m. k. mjólkurbúðar- og helst allar
stúlkur, sem vinna í matarbúðum taki upp
skuflurnar að nýju.
Sur.dhallardagurinn fór mjög glæsilcga fram.
Mörg laugar og Suðurnesjamet voru sett.
Eins og vænta mátti bar mest á stórmeistur-
unum frá Reykjavík, sem sumir hverjir syntu
á sínum bezta tíma. En unga fólkið okkar stóð
sig einnig með ágætum. Inga Eygló Árnadóttir
og Sigurður Eyjólfsson vöktu mesta athygli og
hlutu bæði afreksbikara. Skýrsla um mótið
verður væntanlega annarsstaðar í blaðinu og
því ekki sagt nánar frá því hér nema hvað
þess skal getið, að ca. 400 manns voru áhorf-
cnöur og varð þó fjöldi frá að hverfa.
Bæjarkcppnin í sundi milli
Akraness og Keflavíkur (sem sagt var frá í
síðasta blaði að færi fram í Sundhöll Kefla-
víkur) fór fram á Akranesi 20. maí.
Akurnesingar sigruðu með 4 stigum, sem
er ótrúlega lítill munur þegar tekið er tillit
til þess að ferðalagið, léleg hvílaar skilyrði
nóttina fyrir keppnina og svo mikið styttri
og grynnri laug gera sigurmöguleika Kefl-
víkinganna mikið minni heldur en ef keppt
hefði verið í heimalaug.
Kvenfclag Kcflavíkur
hefur tekið að sér að sjá um og hirða
Skrúðgarð Keflavíkur í sumar. Unnið er af
kappi við að koma honum í sæmilegt ástand
fyrir 17. júní. Blómabeð gerð og steyptar gang-
brautir. Einnig stendur til að gróðursetja
þar eitthvað af trjáplöntum og koma fyrir
bekkjum svo fólk geti setið þar og hvílzt.
Garðrækt og hirðing lóða
hefur verið í fullum gangi síðustu daga, venju
seinna vegna þess hve seint voraði. Klaki í
jörð var þykkur fram eftir vori og varla
klakalaust fyrr en eftir Hvítasunnu.
♦-------
FAXI
Blaðstjórn skipa:
HALLGR. TH. BJÖRNSSON,
JÓN TÓMASSON,
KRISTINN PÉTURSSON.
Blaðstjórn ber ábyrgð á blaðinu og
annast ritstjórn þess.
Gjaldkeri blaðsins:
GUÐNI MAGNÚSSON.
Afgreiðslumaður:
STEINDÓR PÉTURSSON.
Auglýsingastj óri:
MARGEIR JÓNSSON.
Verð blaðsins í lausasölu kr. 3,00.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
Kaup vcrkamanna í Kcfl?.V-'h cg Njarð-
víkum í júní, júlí — ágúst 1951.
(Vísitala 300).
Ahucnn vinna. (grunnkaup kr. 9,24)
Dagvinna .......................— 12,20
Eftirvinna ................. — 18,30
Nælur- og helgidagavinna .. — 24,40
Vinna við Ioftþrýstitæki og hrærivélar.
(Grunnkaup 9,90)
Dagvinna ................. kr. 13,01
Eftirvinna..................... — 18,69
Nætur- og helgidagavinna .. — 26,02
Skipavinna o. fl. Kolavinna, saltvinna,
upp- og útskipun á sementi, hleðsla
þess í pakkhúsi og afhending þess.
(Grunnkaup 9,90).
Dagvinna.................... kr. 13,01
Eftirvinna .................. — 18,69
Nætur- og helgidagavinna . . — 26,02
Öll önnur skipavinna, fiskaðgerð í salt
og umsöltun á saltfiski.
(Grunnkaup 9,45).
Dagvinna.................... kr. 12,45
Eftirvinna .................. — 17,85
Nætur- og helgidagavinna .. — 24,90
Kaup verkakvcnna í Kcflavík og Njarð-
víkum.
Almenn vinna. (Grunnkaup kr. 6,60)
Dagvinna ................... kr. 8,71
Eftirvinna.................... — 13,06
Nætur- og helgidagavinna .. — 17,42
Umsöltun á fiski og uppsöltun á fiski
(Grunnkaup kr. 6,90).
Dagvinna ................... kr. 9,11
Eftirvinna .................. — 13,66
Nætur- og helgidagavinna .. — 18,22
Onuur vinna. Flökun á bolfiski, vinna
í frystiklefa, hreingerningar á bátum
og húsum.
(Grunnkaup kr. 9,24).
Dagvinna ................... kr. 12,20
Eftirvinna................... — 18,30
Nætur- og helgidagavinna .. — 24,40
Vcrkalýðs- og sjómannafclag
Keflavíkur.
♦ ♦