Faxi - 01.01.1953, Síða 4
4
F A X I
Mjólkurverðið
í Keflavík
Eyjólfur Bjarnason lætur af
meðhjólparastörfum
Um alllanga hríö hafa Keflvíkingar orðið
við það misrétti að búa, að verða að greiða
hvern mjóikurlítra, er þeir kaupa, 18 aurum
hærra en almcnnast er á verðlagssvæði því,
sem Keflavík tilheyrir, sbr. mjólkurverð í
Reykjavík og Hafnarfirði. Ákvæði afurðasölu-
laganna um mjólkurverð á hverju verðlags-
svæði er á þá leið, að útsöluverð skuli vera
jafnt yfir allt svæðið, þó megi bæta við mjólk-
urverðið sannanlcgum flutningskostnaði, þeg-
ar um miklar vegalengdir er að ræða í sam-
bandi við dreifinguna innan svæðið.
Nokkuð mun hafa verið unnið að því að
fá leiðréttingu á þessu, einkum af hcndi
Kaupfélags Suðurnesja, en hingað til hefur
það ckki borið árangur. í okt. s.l. samþykkti
bæjarstjórn Keflavíkur svohljóðandi áskorun
til Mjólkursamsolunnar varðandi þetta mál,
og er þess að vænta, að samþykkt þessi hafi
þegar borizt réttum aðila:
„Með því að bæjarstjórn Keflavíkur tel-
ur óviðunandi, að verð á mjólk til neytenda
í Keflavík sé 18 aurum hærra en í Reykja-
vík og Hafnarfirði, og ennfremur með því,
að þessi verðmunur stafar af flutningskostn-
aði mjólkurinnar hingað suður, þá skorar
bæjarstjórn á Mjólkursamsöluna í Reykja-
vík, að hún láti Keflavík njóta sömu hlunn-
inda um flutning mjólkur í útsölustaði eins
og Reykjavík og Hafnarfjörður hefur,
þannig, að mjólkurvcrðið geti verið hið
sama hér og þar“.
Hingað suður munu daglega fluttir um
2.500 ltr. mjólkur; fer þessi mjólk að Iang-
mestu lcyti til neyzlu í Keflavík, eða 1700 til
1800 lítrar, afgangurinn til Sandgerðis og á
flugvöllinn. Að sjálfsögðu hafa þessir aðilar
sömu kjör um mjólkurverð og Keflavík, verða
að grciða flutningskostnaðinn, auk hins raun-
verulega verðs.
Þar sem neytcndur á verðlagssvæði því,
sem Suðurnesin tilheyra, fá allir mjólkina
afhenta í útsölur sínar án aukagjalds vegna
flutnings, — allir aðrir en íbúar Suðurnesja,
— og Samsalan hlýtur að verja til þess ærnu
fé, er það mcð öllu óviðunandi, eins og segir
í samþykkt bæjarstjórnar Keflavíkur, að fólk
í Kcflavík og aðrir neytendur hér syðra, þurfi
að grciða 18 aurum hærra fyrir mjólkurlítr-
ann, vegna drcifingar eða flutningskostnaðar,
þegar það er vitað að mjólkursölusamtökin
greiða allan dreifingarkostnað fyrir aðra neyt-
cndur á svæðinu, sem vafasamt má telja,
hvort sé minna á hvem lítra þar en 18 aur-
amir til Keflavíkur. Fyrir Mjólkursamsöluna
getur það ekki munað geysimiklu að bæta
við þann dreifingarkostnað sem hún þcgar
hefur, þeim kostnaði sem leiðir af flutningi
Á gamlárskvöld lét Eyjólfur Bjarnason
af meðhjálparastörfum. Við það tækifæri
kvaddi sóknarprestur hann og þakkaði
honum langa og dygga þjónustu.
Eyjólfur Bjarnason hefur verið með-
hjálpari í Keflavíkurkirkju í fjölda mörg
ár. Hann hefur rækt það starf af þvílíkri
alúð og samvizkusemi, að slíks eru áreið-
anlega fá dæmi. Aldrei hefur hann van-
rækt neitt á sínum langa starfsferli og
aldrei hefur hann látið á sér standa, þegar
annars hefur verið kostur. Meira að segja
hefur það komið fyrir, að hann hefur farið
veikur upp úr rúminu, til þess að gegna
skyldustörfum sínum í kirkjunni. Og alltaf
hefur hann látið hagsmuni kirkjunnar sitja
í fyrirrúmi fyrir sínum eigin hagsmun-
um, þegar því hefur verið að skipta.
Eyjólfur hefur ætíð verið sannur vinur
kirkjunnar og trúmaður mikill. Enda bera
mjólkurinnar til Kcflavíkur, þar sem líka er
um jafn mikið mjólkurmagn að ræða og getið
er. Fyrir neytandann munar það töluverðu
hvort hann greiðir kr. 2,70 fyrir lítrann, sem
er raunvcrulegt verð, eða að hann greiðir kr.
2,88.
Blaðið vill því hér með gera þá eindregnu
áskorun til Mjólkursamsölunnar, að mjólk á
Suðurnesjum verði seld á sama verði þar og
í Rcykjavík og Ilafnarfirði.
öll hans störf í þágu kirkjunnar vott um
þá einlægni, sem þeim einum er lagið,
sem ann þeim málstað, sem hann vinnur
fyrir.
Einnig hefur Eyjólfur verið safnaðar-
fulltrúi Keflavíkursafnaðar um langt skeið.
Fyrir öll sín störf í kirkjunnar og safn-
aðarins þágu á Eyjólfur miklar þakkir
skilið. Og sérstaklega vil ég þakka honum
fyrir ógleymanlegt samstarf, þótt stutt
væri, og fyrir ómetanlega aðstoð í þeim
erfiðleikum, sem byrjendur í starfi kann-
ast svo vel við. Hann hefur verið mér sú
örugga stoð, sem ég ávallt gat treyst, þegar
mest lá á.
Um Eyjólf Bjarnason og störf hans í
þágu kirkju og kristni má með sanni segja
hið sama og eitt sinn var sagt undir öðr-
um kringumstæðum: „Sjá, alla hluti hefir
hann vel gjört“.
Bj. J.
Gjafir til sjúkrahússins
Nýlega hafa Sjúkrahúsi Keflavíkur-
læknishéraðs borizt rausnarlegar gjafir frá
eftirtöldum aðilum:
Skúli Skúlason trésmiður í Keflavík hef-
ur afhent kr. 2.000,00 — tvö þúsund krón-
ur — til minningar um látna konu sína,
Guðrúnu Guðmundsdóttur.
Kvenfélag Njarðvíkur hefur afhent kr.
10.000,00 — tíu þúsund krónur, — en ennþá
er ekki ákveðið hvernig fé þessu skuli
varið.
Ungmennafélag Njarðvíkur hefur af-
hent kr. 4.000,00 — fjögur þúsund krónur
— til byggingar sjúkrahússins.
Ollum þessum rausnarlegu gjöfum er
veitt móttaka með innilegu þakklæti.
Keflavík, 4. febr. 1953.
F.h. Sjúkrahúss Keflavíkurlæknishéraðs.
Ragnar Guðleifsson.