Faxi - 17.06.1954, Blaðsíða 9
F A X I
65
Hástökk:
1. Jóhann X. Benediktsson .... 1,78 m.
2. Valbjörn Þorláksson 1,60 —
3. Dagbjartur Stígsson....... 1,60 —
4. Högni Gunnlaugsson ........ 1,60 —
Langstökk:
1. Garðar Arason .............. 6,67 m.
2. Bjarni Olsen .............. 6,18 —
3. Karl Olsen ................ 6,12 —
4. Gunnar Sveinbjörnsson ..... 5,85 —
Þrístökk:
1. Þorsteinn Löve 12,65 m.
2. Bjarni Olsen............... 12,14 —
3. Jóhann R. Benediktsson 11,80 —
4. Kristján Pétursson........11,70 —
Stangarstökk:
1. Valbjiirn Þorláksson ....... 3,50 m.
2. Högni 'Gunnlaugsson ........ 2,00 —
3. Jóhann R. Benediktsson ..... 2,50 —
Fimtarþraut:
1. Hörður Guðmundsson 2045 stig
2. Karl Olsen ................ 1732 —
3. Garðar Arason ............ 1672 —
(Finnska taflan var notuð).
Þessar tölur sýna hæfni okkar íþrótta-
manna, þ:er sýna, að það eru ekki ein-
göngu toppmenn sem skara fram tir, held-
ur eigum við breidd sem er í þróttunum
svo mikill styrkur. Forfallist einhver er
annar nær jafngóður til að taka stöðu
hans. Að endingu langar mig, til þess að
birta skrá yfir hezta árangur sem náðst
Itefur til þessa hér á Suðurnesjum í hverri
íþróttagrein til þessa og teljast Suðurnesja-
met.
Eg vil taka það fram, að það er kannske
hæpið að tala um þetta sem Suðurnesja-
met, þar sem ekki hefur verið sótt um
staðfestingu til íþróttabandalags Suður-
nesja. 'En þetta er þó bezti árangur, sem
náðst hefur við lögleg skilyrði.
Munið samnorrænu
sundkeppnina
Gagnfrœöasköli Keflavíkur
Er gagnfræðaskólanum í Keflavík var
slitið 28. maí s.l., markaði sú athöfn að
einu leyti tímamót í lians skömmtt sögu.
Þá voru í skólanum í fyrsta skiptið út-
skrifaðir nemendur í Keflavík, sem hlotið
höfðu gagnfræðingatitilinn.
Áður fyrri höfðu margir horfið á braut
úr bænum og leitað sér æskilegrar mennt-
unar utan heimahéraðsins. Að vísu ber því
ekki að neita, að að mörgu leyti kann að
vera þroskavænlegt fyrir ungt fólk að
kynnast nýjum stöðum með nýstárlegum
sjónarmiðum. En ærið oft geta breytingar
þessar orsakað neikvætt á unglinginn,
hann orðið rótlaus og náð ekki á ný æski-
legri fótfestu t. d. í félagslífi heimastaðar-
ins. Þess vegna bar að fagna því, þegar
Gagnfræðaskóli Keflavíkur hóf starf sitt.
Hann hafði að mörgu leyti erfiða aðstöðu,
en mörgum var hann það óskabarnið, sem
heitast hafði þráð verið.
Að hausti ættu þó hinar ytri aðstæður
í starfsemi skólans að batna mjög. Hann
mun þá væntanlega flvtja í byggingu
gamla barnaskólans, sem nú hefur tekið
gagngerum stakkaskiltum til hins betra.
Þar ætti skólinn að hafa möguleika á að
láta lúð bezta í fari nemendanna bera
áviixt en slá á illgresi, sem ætíð vill skjóta
upp kollinum, jafnvel þó vel sé um hugsað.
Skólastjóri Gagnfræðaskóla Keflavíkur
hefur Rögnvaldur Sæmundarson verið frá
upphafi. Hann ber skólann og nemendur
hans mjög fyrir brjósti, og í skólaslitaræðu
sinni hvatti hann nemendur til þess að
sýna dugnað, drengskap og trúmennsku
en varaði þá við leti og iðjuleysi. Starfi og
félagslífi skólans hefur verið þannig háttað
í stuttu máli:
í skóla voru í vetur skráðir 112 nem-
endur í 4 bekkjum, 1. og 2. bekkur voru
tvískiptir. Fastir kennarar voru 3 auk
skólastjóra. Handavinnu- og íþróttakenn-
arar þeir sömu og við barnaskólann. 8
nemendur luku gagnfræðajirófi og hlaut
Guðfinnur Sigurvinsson hæstu einkunina
8,12. Hæstu einkunn á unglingaprófi hlaut
Alda Steinunn Jensdóttir 2. hckk A. 8,73.
Hæstu einkunn skólans hlaut Margrét
Stefánsdóttir 1. bekk A., ágætis einkunn
9,21. Auður Stefánsdóttir líka í 1. bekk A.
hlaut aðra hæstu einkunina, líka ágætis
einkunn, 9,04. Prófdómarar voru: Séra
Björn Jónsson, Jónína Guðjónsdóttir.
Nemendur héldu uppi nokkurri félags-
og skemmtistarfsemi í vetur og gáfu út
fjölritað skólablað. Arshátíð sína héldu
þeir í Ungmennafélagshúsinu þann 28.
marz. Handavinnusýning skólans var
sunnudaginn 9. maí. Stúlkúr úr skólanum
unnu bæði skólaboðsundin í vetur og þar
með bikara þá, setn um var keppt. Einnig
unnu þ;er til eignar bók, Lilju eftir Eystein
Asgrímsson, fyrir að vinna skólaboð-
sundið þann 8. apríl. Þetta er fyrsta bókin
í bókasafni skólans. Þann 26. febrúar
heimsótti biskupinn, hr. Ásmundur Guð-
mundsson, skólann. I fylgd með biskupi
voru séra Sigmar og frú og félagar úr
Bræðralagi, kristilegu félagi stúdenta. Þá
heimsótti Guðmundur G. Hagalín, rithöf-
undur, skólann, flutti hann erindi og las
upp sögu eftir sig. Aðalsteinn Eiríksson,
námsstjóri, Arnheiður Jónsdóttir, náms-
stjóri og Þorsteinn Einarsson, íþróttafull-
trúi komu í heimsókn á vetrinum.
Skólinn hafði til afnota 3 stofur í barna-
skólanum og var tvísett í þær. Kennsla
hófst kl. 8,10 að morgni og 2,30 síðdegis.
Heilsufar var gott í skólanum í vetur og
skólasókn góð. Við skólaslit höfðu 85%
af nemendum synt í samnorrænu sund-
keppninni. 2., 3. og 4. bekkur fóru í 6
daga ferðalag norður í land þann 10. júní.
Eins og af þessari frásögn má ráða hafa
nemcndur leitað sér fanga auk námsins,
en hæst hafa þeir náð í sundíþróttinni
og borið hróður skólans og byggðarlagsins
víða. Ber því að fagna, þó alltímafrekt
kunni það á stundum að reynast.
Árnaðaróskir fylgja skólanum og vonir
eru við hann tengdar. Til þess að vel fari,
verða nemendur og starfsmenn skólans
að leggjast á eitt, séu þessir aðilar ekki
samhentir eru vá fyrir dyrum. Megi nám
í Gagnfræðaskóla Keflavíkur ætíð verða
það veganesti, sem æskumenn og konur
hér syðra taka með sér út í hina marg-
háttuðu lífsbaráttu.
ÓIS{.