Faxi - 01.03.1956, Blaðsíða 15
F A X I
43
Jólatrés-
skemmtun
Ka’ri Faxi!
Viltu koma á framfæri fyrir mig þakk-
læti til forráðamanna kaupfélagsins okk-
ar fyrir hina ánægjulegu jólatrésskemmt-
un, er haldin var á 3. í jólum fyrir börn
okkar félagsmannanna. Þetta er nú orðin
föst regla hjá félaginu og er gott til þess
að vita. Sjálfsagt hefir þetta kostað félagið
mikið, þar sem enginn aðgangseyrir var
tekinn og börnin yfir þúsund, sem öll
voru að skilnaði leyst út með gjöfum,
eftir að hafa dansað í kring um stórt og
fallegt jólatré undir dynjandi músik í
Ungmennafélagshúsinu, fagurlega
skreyttu. Anægjulegt fannst mér að vera
þarna og horfa á öll hin myndarlegu og
prúðbúnu börn, þrungin af lífshamingju
og sannri jólagleði og hinar skæru raddir
þeirra, er þau sungu jólasálmana með til-
styrk nokkurs hluta kirkjukórsins, er
þarna var mættur og leiddi söng þeirra,
fylltu salinn unaðslegum töfrum. Full-
orðna fólkið, er þarna kom fram og stjórn-
aði þessum jólafagnaði barnanna var sam-
taka og samhent um að gera þeim stund-
ina sem ánægjulegasta, bæði konurnar,
sem leiddu söng þeirra, sóknarpresturinn,
er talaði til þeirra um hið háleita gilcli jól-
anna, og aðrir, sem ávörpuðu þau, að
ógleymdum sjálfum jólasveinunum, er
komu þarna í heimsókn og skemmtu
börnunum með söng og dansi. Eg
held mér sé óhætt að segja, fyrir
munn okkar allra, mæðranna, er þarna
vorum, að við nutum þessara skemmtana
af heilum hug með börnunum okkar, þó
ég viti, að okkar ágæta Ungmennafélags-
hús er að verða of lítið fyrir svona fjöl-
mennar samkomur, jafnvel þótt "börnun-
um sé skipt í 4 flokka ,eins og nú var gert.
Kannske mætti hafa hópana 5 og byrja
klukkan 1? Eg set þetta hér fram til at-
hugunar, þar sem ég hefi heyrt kvisazt, að
Kaupfélagið verði að hætta þessari starf-
semi, vegna of lítils húsrýmis í samkomu-
húsum bæjarins. Eg vil mega treysta því,
að þetta séu aðeins getgátur og að félagið
finni einhverjar færar leiðir og sjái okk-
ur framvegis fyrir þessum góðu og vin-
sælu skemmtunum. Og með þá von í
brjósti enda ég þcssar línur með innilegu
þakklæti.
Kaupfélagskona.
Skriffinnur:
Suðurnesjavcgur kvu pumpa sjóðbullandi
sekúntlítrum af bölvi og ragni uppúr
fólki, einkum bílstjórum, sem þó eru orðvör-
ustu menn á öðrum 50-kílómetrum. Hefur
komið til tals að fá manninum með stálhnef-
ana sérleyfið í hendur til þess að jafna dug-
lega um þennan fjölfarnasta leggja- og bíla-
brjót landsins.
Annars höfðum vér eitt sinn ástarfar uppúr
Veginum. Það var sko svoleiðis, að vér sátum
í aftasta-sæti og hossuðumst fram í miðsæti,
en flugum þaðan á herðarnar bílstjórans, sem
endurvarpaði oss með óprenthæfu orðbragði i
farfg einnar fyrirsætu, — þaðer stúlku, sem
sat fyrir oss á fluginu. Svo kom holskefla, sem
hann Skúli Kaupfélagssuðurnesjamjólkur-
flutningabifreiðastjóri kallar hvarf, og gerði
oss og elskuna að einni samloku, þartil á
verkstæðinu daginn eftir, að við náðumst
sundur með sameinuðum verktöngum.
Olían í vatninu er svo mikil, að vatn fyrir-
finnst ekki í olíunni. Þetta tilkynnist
hér með öllum vinum og vandamönnum olíu-
fíringa.
Umbrotasamt hefur verið hjá bíóum vorum.
Félagsbíóbjörn og Nýjabíósbjörn höm-
uðust meðal annars myrkranna á milli við
stólbreytingar, sitjöndum vorum til mikils
hægðar- og þægðarauka.
Það er rétt einsog á öldinni, sem leið einu
sinni: „ . . . Fjórbjörn í Þríbjörn, Þríbjörn í
Tvibjörn, Tvíbjörn í Einbjörn, Einbjöm í
rófuna og ekki gekk rófan“. Ansvítans rófa
hefur það verið. Já, hver vill ekki heldur vera
uppi nú helduren þá?
Vetrarblíðan tyliir sér á tá, faðmar oss, kyssir
og fær oss tilað umbera aflatregðu og
dýrtíðarágang. Haldi svo fram blíðunni sem
horfir, hlýtur skósvertureikningur lögregl-
unnar að verða mun lægri í ár helduren í
fyrra og gera útsvör með öllu óþörf. Bara, að
blíðan haldist.
Landspólitíkin liggur í hrúgu á spilaborðinu,
óstokkuð og ógefin. Er því ekki bitið
úr nálinni með það, hvort vér útkjálkafólk
fáum pamfíla eður láglíur á höndina tilað
láta út og — inn á þing.
Þrátt fyrir „Gera-skal-girðingu“, hefur Mr.
Bingó Bingós heiðrað oss með nærveru
sinni í Ungó á föstudagskvöldum. Þykir gott.
Sterkblandaður kór lætur stundum til sín
heyra á nóttum og kann því að valda
nokkrum ruglingi á rekkjusiðum, en hér er
vissulega um að ræða vekjandi söng, smjúg-
andi gegnum eyrnamerg og málbein. Samt
hefur ekki nema einn maður klappað kór-
blöndunni lof í lófa svo vitað sé. Hann var að
dreyma dansandi púka og drísilkóð á færi-
bandi.
Hjónaklúbburinn varð nýlega fimm ára og
þykir risastór eftir aldri, vegur tæp 10
tonn eður 9867 kíló. Þessi gasalegi kropp-
þungi er ofaní kaupið netto. Umbúða er ekki
getið.
Þrotlausasti kappakstur veraldarsögunnar
hófst í fyrrasumar á nýmalbikaðri
Hafnargötunni og stendur ennþá yfir á sömu
götu. Urslita er ekki að vænta í fyrirsjáan-
legri framtíð, — fremur en niðurlags á
Kynnisför Ragnars til Bandaríkjanna.
Spurt var síðast: „Hvenær verður rosabaugur
kring um tunglið?“ Skelfing getur fólk
verið ódannað að skrifa oss, að vér getum
sjálfir verið rosabaugar, tungl og allt það.
Jæja, rétt svar er nú samt þetta: Þegar tunglið
er innani rosabaug.
Kæra undan peninga-lyktinni hans Huxley
hefur oss borizt og segist ákærandi
gjarnan vilja peningana, en engann veginn
lyktina. Tillagan er samþykkt með öllum at-
kvæðum — gegn einu.
£<><><i><Í><X>S><Z><i><><^^
IEr innbúið vátryggt? |
EF EKKI, ÞÁ TRYGGIÐ STRAX |
í DAG. |
SAMVINNUTRYGGINGAR !
Umboð: Kaupfélag Suðurnesja. %
«XxtXXtXiXiXc>00<