Faxi - 01.03.1956, Blaðsíða 6
34
F A X I
ar skipgengar og er nú greiðfær skipaleið
frá Knoxville alla leið upp til Minneapolis
um árnar Tennessee, Ohio og Mississippi.
Hefur hér verið gerð mikil og kostnaðar-
söm samgönguleið, og eru margir skipa-
stigarnir mikil mannvirki. I einum skipa-
stiganum er t. d. munur á lægsta og hæsta
vatni 80 fet. Engin gjöld eru greidd fyrir
að sigla í gegnum skipastigana og er það
samkvæmt lögum TVA.
Þá hefur TVA reist áburðarverksmiðjur
og hefur sérstök tilraunabú, þar sem áburð-
urinn er prófaður og bændum sýndur ár-
angurinn.
Aður en TVA tók til starfa var á þessu
svæði víða neyðarástand, eins og áður er
skýrt frá. Bændur voru hér mjög fátækir
og langt á eftir tímanum. Hér hefur mikil
breyting orðið til hins betra. TVA hefur
neytt bændur til þess að taka upp hag-
kvæmari búskaparhætti, t. d. með fjöl-
breyttari ræktun og notkun tilbúins áburð-
ar. Enda hafa tekjur bænda hér aukist
hlutfallslega meira en annars staðar í
Bandaríkjunum á sama tíma.
Raforkuframleiðsla TVA er nú um 8
millj. kw. á ári. En 1958 er áætlað að fram-
leiðslan verði um 10 millj. kw. Þar af verði
4 millj. framleiddar með vatnsafli og 6
millj. með gufu.
Um 20 þús. manns vinna hjá fyrirtæk-
inu í 7 ríkjum, sem það hefur starfsemi.
Þar af eru 6500 sem vinna í skrifstofum og
eru um 1500 þeirra verkfræðingar. Um
10% starfsfólksins eru blökkumenn og er
það svipað hlutfall og meðal íbúanna í
þessum héruðum.
Fólkið á þessu svæði hafði lítinn áhuga
á verkalýðsmálum, þegar TVA tók þar
fyrst til starfa. En nú er þar allt starfsfólk
í stéttarfélögum, sem hafa samninga við
TVA. 'Starfsmenn TVA eru undir sömu
lögum og aðrir ríkisstarfsmenn og mega
því ekki gera verkföll. En samningar
þeirra eru endurskoðaðir árlega.
Víða hefur fyrirtækið komið upp kvik-
myndahúsum, leikvöllum og bókasöfnum
fyrir starfsmenn sxna, einkum þá, er þurfa
að dvelja við vinnuna fjarri heimilum sín-
um.
Einn daginn skoðuðum við fyrstu virkj-
un TVA, Norris-Dam, sem er um 25 míl.
í norð-austur frá Knoxville. Var virkjun
þessi byggð á árunum 1933—36. Er virkj-
unin kennd við öldungardeildar þing-
manninn 'Georg W. Norris, er bar fram
frumvarpið til laga um TVA.
Virkjunin er 2 túrbínur, 50 kwst. hvor
eða um helmingi stærri en Sogsvirkjunin.
Stíflan er 265 fet á hæð og 1872 fet á lengd,
og kostaði virkjunin um 36 mill. dollara.
TVA selur alla raforku sína í heildsölu,
sveitarfélögum, samvinnufélögum og iðn-
fyrirtækjum. Sveitarfélögin og samvinnu-
félögin annast svo dreyfingu orkunnar. —
Meðalverð á rafmagni i smásölu er hér
ÍVi cent hver kwst.
Ég hefi hér með fáum orðum reynt að
lýsa því risafyrirtæki, sem TVA er. En
slík lýsing er aðeins sem svipmynd og
engan veginn, sem vert væri, því hér er
hugsjón orðin að veruleika, sem víða á
erfitt uppdráttar. Hér er stofnun, sem hef-
ur það markmið að vinna að velferð fjöld-
ans, og árangur starfsins er þessi: Komið
hefur verið í veg fyrir áframhaldandi
skemmdir af völdum náttúruaflanna, sam-
göngur hafa verið bættar og lífskjör fólks-
ins, sem þarna býr, hafa batnað svo, að
æfintýri er líkast. Þetta er enn athyglis-
verðara þegar þess er gætt, að slík stofnun
verður til og veg í landi, þai', sem trúin á
einstaklingsframtakið er ríkjandi.
Við komu dönsku konungshjónanna til íslands 10. apríl.
Konungshjónin og forsetahjónin hluta á konungssönginn danska og
íslenzka þjóðsönginn. — Ljósm.: S. Nikulásson.