Faxi

Árgangur

Faxi - 01.10.1956, Blaðsíða 4

Faxi - 01.10.1956, Blaðsíða 4
92 F A X I Ur kveðjurœðu sr. Björns Jónssonar Sóknarpresturinn í Keflavík, sr. Björn Jóns- son, lagði af stað áleiðis til Þýzkalands 26. okt. s.l. Dvelur hann við háskólanám í Tiibingen í suður Þýzkalandi um 9 mánaða skeið og leggur þar einkum stund á kenni- mannlega guðfræði. Styrk til námsins hlýtur hann frá „Lutheran World Federation", sem er alþjóðasamband lútherskra kirkna og hefir það aðsetur sitt í Genf. í fjarveru sr. Björns annast nágrannaprestarnir, þeir sr. Guðmund- ur Guðmundsson að Utskálum og sr. Jón A. Sigurðsson í Grindavík, guðsþjónustur í Keflavík og önnur prestleg störf. Utanáskrift til sr. Björns í Þýzkalandi mun vera: Herrn Pastor Björn Jónsson Neskarhalde Túbingen, Deutschland. Eftirfarandi er tekið úr kveðjuræðu, er sr. Björn flutti í Keflavíkurkirkju sunnudag- inn 21. okt. s.l. í tilefni af för sinni til Þýzka- lands. „Þótt ég sé jjarlcegur að likatnanum, þá er ég samt hjá yður að andanum." Kól. 2,5. Þessi heilögu orð brenna í huga min- um nú, þegar ég stend hér í síðasta sinn um all-langt skeið, — hingað kominn til þess að flytja ykkur, kæru vinir, kveðjur lega trúmennsku hans og skyldurækni, en þá eðlisþætti átti hann í ríkum mæli. Hér hefur með fáum línum verið minnst á tómstundaiðju Arna Helgasonar, en hvert var aðalstarf hans? Hann var sjó- maður og verkamaður, dugandi maður og heill að hverju sem hann gekk. Hinn stóri og mannvænlegi barnahópur þeirra hjóna minnir okkur á, að oft hafa þau orðið að leggja hart að sér, til þess að sjá sér og sínum farborða, og þá hefur oft verið lítill tími til þess að sinna þeim raunverulegu áhugamálum, er mjög tóku huga hans. Er við skoðum Árna í þessu ljósi, skiljum við betur það sem ég sagði í upphafi þess- ara orða, að hann væri einn hinn sérstæð- asti fulltrúi þeirrar kynslóðar, er lifði æskuár sín um aldamótin síðustu. Ragnar Guðleifsson. mínar og þakkir, — og biðja ykkur bless- unar Guðs. A þessari kveðjustundu lít ég sem í leiftursýn hinn liðna tíma, sem ég hefi dvalizt og starfað hér ykkar á meðal. Ég minnist þess, þegar ég stóð hér í fyrsta sinni og ávarpaði ykkur sem prestur safnaðarins. Þeim degi gleymi ég aldrei, Sr. Björn Jónsson. — hann var óviðjafnanlega bjartur og fagur. Þá lifði ég stund, sem ég fann, að var „helguð af himinsins náð‘,‘ — Guð gefi, að einhverjir ykkar hafi fundið til hins sama. Ég minnist síðar margra stunda hér í kirkjunni okkar. Sumar þeirra voru sveip- aðar blæju saknaðar og trega. Astvinirnir söfnuðust hingað til þess að kveðja kæran og hjartfólginn maka, bróður, systur, barn eða vin og fylgja honum hinzta spölinn á jörðu hér. En — einmitt á slíkum stund- um varð ég svo oft áþreifanlega var þessa sannleika, að: „Af eilífðarljómi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir." Það var t. d. ógleymanlega fagurt að sjá, þegar lítil og harmi þrungin systir horfði að því er virtist beint inn í himin Guðs eins og hún mætti þar augliti síns elskaða bróður, er hún saknaði svo sárt. — Og þetta er ekkert einsdæmi. Ég veit, að þið, sem hingað hafið komið hug- daprir og harmi slegnir, hafið fttndið kraft og frið Guðs streyma inn í hjörtu ykkar og kærleika hans gagntaka ykkur og um- lykja á alla vegu. Á öðrum stundum hefir hjartans fögn- uður átt hér æðsta sætið, og lofgjörðar- tónarnir stigið í hæstu hæðir. — Við jóla- guðsþjónusturnar hefir verið til okkar talað dularfullri röddu. Var ekki oft, sem við okkur væri sagt: „Snú þér til baka, ver barn á ný, svo að þitt Guðs-ljós glæðist aftur.“ Og hjörtu okkar fylltust barnslegum fögnuði, er við sungum: „I myrkrum ljómar lífsins sól. Þér, Guð, sé lof fyrir gleðileg jól.“ Eða þá á páskadagsmorgnana, þegar eilífðarboðskapurinn bjarti: „Kristur er upprisinn. Kristur er sannarlega uppris- inn,“ hrærði fagnaðarstrengi í hverju hjarta og hverri sál, — fundum við þá ekki, hve elska Krists er áþreifanleg, — skynjuðum við ekki einmitt þá þann sann- leika um þessa eilífu, guðlegu elsku, sem skáldið orðar þannig: „Frá heli til lífs hún byggir brú og bindur oss öðrum heimi.“ # En hugljúfust verður mér þó ætíð minningin um vordagana björtu, þegar æskan og vonin sátu að völdum. Ferm- ingardagarnir hafa verið fegurstu stund- irnar í mínu starfi. Munið það, ungu vinir mínir, — það heilagt heit, sem þið unnuð Drottni Jesú Kristi hér í helgidóminum. Því heiti hið ég ykkur, sem mál mitt heyrið nú, að reynast trú. Við ykkur, æskufólk, eru vonirnar tengdar. Standið stöðug, — bregðist ekki, — sækið sífellt fram til sigurs í sólarátt. Til þess styrki ykkur góður Guð. — Starfið með ykkur öllum, yngri sem eldri, hefir verið mér hugljúft og kært. Mér hefir jafnan fund- izt, að allir hafi lagzt á eitt til þess að gera mér erfitt byrjendastarf í stórum söfnuði auðvelt og létt. — Þið hafið borið mig á kærleiksörmum, — án þess að ég verð- skuldaði það á nokkurn hátt. Og hafi eitt-

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.