Faxi

Árgangur

Faxi - 01.10.1956, Síða 6

Faxi - 01.10.1956, Síða 6
94 F A X 1 FAXI Ritstjóri og afgreiðslumaður: HALLGR. TH. BJÖRNSSON. Blað- stjórn: HALLGR. TH. BJÖRNSSON, MARGEIR JÓNSSON, KRIST- INN PÉTURSSON. Gjaldkeri: GUÐNI MAGNÚSSON. Auglýsingastjóri GUNNAR SVEINSSON. Verð blaðsins í lausasölu kr. 5,00. — Prentað í Alþýðuprentsmiðjunni. Frá útgerðinni Lúðrasveit Keflavíkur. A öðrum stað hér í blaðinu birtist þakkar- ávarp frá Guðmundi Norðdahl, þar sem hann þakkar Keflvíkingum, einstaklingum og íyrir- tækjum, góðan skilning á nauðsyn lúðra- sveitar í Keflavík og fjárhagslegan stuðning við kaup á nauðsynlegum hljóðfærum. Segir Guðmundur í þessu ávarpi, að hinar björt- ustu og djörfustu vonir þeirra félaganna hafi nú þegar ræzt, eins og bezt megi marka á því, að lúðrasveitin hefir nú þegar á fyrsta ári leikið fjórum sinnum fyrir almenning. Faxi tekur undir þess orð Guðmundar. í vetur sem leið birtist í blaðinu grein um hina væntanlegu lúðrasveit, meðan hún enn lá í reifunum. Var þar bent á hið menningarlega hlutverk sem biði hennar hér, og einnig vakin athygli á þeim borgaralegu skyldum gagn- vart henni, er hvíldu á okkur öllum, að veita henni vaxtarskilyrði á meðal okkar og hlú að henni á allan hátt. Já, nú er þessi draum- ur orðinn að veruleika, og eigum við það fyrst og fremst að þakka hinum unga og áhugasama hljómlistarmanni, Guðmundi Norðdahl, sem mun hafa verið driffjöðrin í þessari félagsstofnun, þó að þar komi auð- vitað fleiri góðir og áhugasamir menn við sögu. .Nú vill Faxi nota þetta íækifæri til þess að óska Keflvíkngum til hamingju með þetta óskabarn sitt, sem er svo bráðþroska og efnilegt. Keflavík, Njarðvík Tökum að okkur að smíða og setja upp rennur og tilheyr- Upplýsingar í síma 114 — Keflavík r Agúst Jónsson Blikksmiður Vinnuföt í miklu úrvali KAUPFÉLAG SUÐURNESJA Hafnargötu 61 Þilplötur Karlit (Masonit) Trétex — Gibsonit fyrirliggjandi KAUPFÉLAG SUÐURNESJA Upp úr kosningunum í suinar, sem voru sællar minningar þann 24. júní, fóru bátarnir sem óðast- að tínast norður til síldveiða. Að þessu sinni kom síldin fyrr cn almcnnt var við búizt og urðu því margir bátar af fyrstu veiðihrotunni, er vissulcga var mjög baga- legt. En eins og mcnn muna, gengu síld- veiðarnar óvenju vel fyrst framan af, svo að um tíma leit út fyrir mjög gott síldarsumar, en þær vonir brugðust þó skyndilcga, því uin mánaðarmótin júlí-ágúst breyttist tíðar- far til hins vcrra og eftir það fékkst svo að segja cngin síld, enda hafði fram til þcss öll síldin veiðst það langt frá Iandi, að eftir að tíðin spilltist áttu bátarnir crfitt um vik, enda hvarf þá líka síldn fljótlcga svo að segja með öllu, en flcstallir bátarnir voru hættir veiðum og komnir heim kringum 10. ágúst, sem er miklu fyrr, en áður var, meðan síld veiddist nokkuð að ráði. Eftir að bátarnir komu heim, hófu flestir þcirra reknetaveiðar hér í flóanum. Nokkrir voru þá þegar byrjaðir og hafði þeim gengið vel fyrst framan af, cn þeir sóttu veiðina aðallega vestur ■ Jökuldjúp. Mikill húsbruni. Sunnudaginn 28. okt. s.l. kom upp eldur í geysistórri vöruskemmu í heiðinni ofan við Keflavíkurbæ. Skemma þessi, sem er her- braggi frá stríðsárunum, hefir um skeið verið notaður af mörgum útgerðarmönnum, er þarna hafa geymt veiðarfæri og ýmislegt annað, er tilheyrir útgerð. Keflavíkurbær hafði annan enda skemmunnar leigðan undir rörasteypu sína og götuhellnagerð. Eldsins varð fyrst vart kl. 10 um morguninn og kom þá strax á vettvang slökkvilið Keflavíkur og Keflavíkurflugvallar, en sökum þess, að ekki náðist til vatns þarna á staðnum, heldur varð að leiða það um langa vegu, þá tafði það mjög fyrir slökkvistarfinu, enda fór svo, að ekki tókst að ráða niðurlögum eldsins fyrr en um fimm leytið um daginn og var þá skemman að mestu brunnin ásamt 3 herpi- nótum, miklu af reknetum og ýmsum öðr- um vörum er þar voru geymdar. Þar brunnu einnig og skemmdust ýmis áhöld, steypu- mót o. fl. er tilheyrðu steypustarfsemi bæjar- ins, en þar sem vitað er, að þessi verðmæti voru ýmist lágt eða ekki vátryggð, þá er vitað mál, að bruni þessi hefir valdið til- finnanlegu tjóni allra þeirra, er þar áttu verðmæti geymd. Talið er að kviknað hafi út frá hitunartækjum hússins. Málið er í Eftir að bátarnir almcnnt hófu rekneta- veiðarnar, fór síldvciði mjög versnandi og fengu sumir þeirra mjög lítinn afla og urðu flestir að gera upp úthaldið með kauptrygg- ingu. Iíenndu menn lietta kolkrabba, er fór um veiðisvæðið og stórspillti veiðinni. Um miðjan september byrjuðu margir bátanna smokkfiskveiðar, en eins og kunnugt er, reynist hann mjög góð beita. Hinsvegar voru menn þá mjög uggandi yfir beituskorti, þar sem ekki hafði tekizt að frysta nægilcgt magn af síld, vegna aflabrests.. Á þessum smokkfiskvciðum aflaðist töluverð bcita, sem er að allra dómi mjög góð. Upp úr mánaðarmótum sept.-okt. hvarf smokkfiskurinn af miðunum og fór þá síld- veiðin aftur að glæðast og hafa bátar fengið mjög góðar lagnir, en nokkuð misjafnar, enda tíðarfar mjög óhagstætt í október mánuði. Geta má þess, að hin yndislega sumarveðr- átta hér sunnanlands var mjög hagstæð fyrir skreiðarverkun. en lítið mun samt hafa verið hengt upp að þessu sinni, bæði vegna minni fiskjar og einnig vegna þess, hve illa tókst til með skreiðina á síðast liðnu sumri. Gjafir til sjúkra- hússins Aðalstöðin h.f. í Keflavík hefur gefið Sjúkrahúsinu í Keflavík kr. l.OOOJOO, sem stofnsjóð, er notaður yrði til kaupa á lækn- ingatækjum. Fylgdu gjöfinni þau ummæli, að gefendur vildu með henni stuðla að því, að þeir scm yrðu fyrir slysum og lagðir væru inn í Sjúkrahúsið til aðgerðar, gætu notið þar sem fullkomnastrar ta’kni og sjúkrunar. Þá hefur frú Helga Þorsteinsdóttir frá Lambastöðum í Garði gefið Sjúkrahúsinu kr. 1.500,00 til minningar um mann sinn, Þorgeir Magnússon, sem lést í Sjúkrahús- inu 9. sept. síðastliðinn. Fyrir þessar ágætu gjafir og mikla vel- vildarhug í garð stofnunarinnar þakka ég innilega. F.h. Sjúkrahúss Keflavíkurhéraðs Guðm. Ingólfsson.

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.