Faxi - 01.10.1956, Blaðsíða 8
96
F A X 1
Stofnendur Luðrasveitar Keflavíkur, talið frá vinstri: Efsta röð: Birgir Guðnason, Agnar
Breiðfjörð, Ólafur R. Guðmundsson, Ragnar Eðvaldsson. — Miðröð: Jóhann Guðmundsson,
Rúnar Lúðvíksson, Erlingur Jónsson, Lúðvík Kjartansson, Guðmundur Guðjónsson for-
maður, Bjarni Gíslason, Sveinbjörn Guðmundsson. — Fremsta röð: Hreinn Óskarsson, Guð-
finnur Sigurfinnsson gjaldkeri, Hörður Jónasson, Guðmundur Norðdahl stjórnandi, Guð-
laugur Kristófersson, Baldur Sigurbergsson ritari, Bjarni Einarsson. Sitjandi fyrir framan:
Sigurbergur E. Guðmundsson og Páll Rúnar Ólafsson. — Á myndina vantar: Kristján Sig-
urðsson, Þórir Baldvinsson, Geirmund Kristinsson og Ársæl Jónsson. Einnig vantar nokkra
félaga, sem bæzt hafa við
„Við höfum reynt
Lesendur Faxa minnast e£ til vill frá-
sagnar um stofnun Lúðrasveitar Kefla-
víkur fyrir tæpu ári síðan. Þar vorum við
lúðrasveitarmeðlimir, svo bjartsýnir og til-
ætlunarsamir að ætlast til þess að almenn-
ingur í þessum bæ myndi veita okkur
stórfé til hljóðfærakaupa. En okkur varð
að von okkar. Einstaklingar, fyrirtæki,
félög og bæjaryfirvöldin hafa sýnt, að
bjartsýni okkar var ekki barnaleg, heldur
heilbrigt traust á skilningi almennings.
Þessar línur eru ritaðar með þakklæti í
huga, þakklæti okkar „blásara", til allra,
sem stutt hafa þetta unga en þroskavæn-
lega tónlistafélag.
Afrekaskrá Lúðrasveitar Keflavíkur cr
ekki löng né stórkostleg, en við erum samt
stoltir af því að hafa látið í okkur heyra
fjórum sinnum. Fyrst 17. júní 1956, tvisvar
á íþróttavellinum og svo kvöldstund við
sjúkrahúsið.
Það tekur áraþjálfun hvers einstaklings
að verða góður einleikari. Tónlistarnám
er lengsta og erfiðasta nám, sem þekkist í
og vantar enn hljóðfæri.
að standa okkur"
okkar heimi. Aldrei er neinn búinn að
læra, alltaf er eitthvað eftir. Piltarnir í
Lúðrasveitinni hafa lagt mikið að sér, hver
og einn, og mætt vel á æfingar, sem hafa
farið fram við erfið skilyrði.
Lúðrasveitin og einstaklingar hennar
hafa keypt hljóðfæri fyrir rúmlega 81 þús-
und krónur. Enn er eftir að útvega þrjú
hljóðfæri sem eru nauðsynlég: tvær flaut-
ur, sem munu kosta samanlagt um 6—7
þúsund krónur og stærsta lúðurinn „Súsa-
fón“ bassalúður, sem kostar um 14 þús-
und krónur. Þess vegna höfum við hleypt
af stað nýrri söfnun. Sem kvittun fyrir
framlögum afhendum við ljósprentaða
mynd af stofnendum sveitarinnar og hugs-
um okkur að lágmarksframlag sé 10 krón-
ur. Lúðrasveitarmeðlimir taka á móti
framlögum, einnig er framlögum veitt
móttaka í Bókabúð Keflavíkur, Verzlun
Þorsteins Þorsteinssonar, Verzlun Sigga
og 'Guffa og víðar.
Höfuðvandamál Lúðrasveitarinnar núna
er húsnæðisskortur. Við höfum fengið að
æfa í Ungmennafélagshúsinu endurgjalds-
laust og flytjum við stjórn félagsins kærar
þakkir fyrir það. En skilyrði þar eru að
mörgu leyti slæm til æfinga, enda er húsið
rnjög upptekið til annarar starfsemi.
Einnig lánuðu skátar okkur félags-
heimili sitt góðfúslega fyrstu starfsmánuði
lúðrasveitarinnar og færum við þeim
beztu þakkir fyrir.
Við höfum hugsað okkur að æfa vel og
læra mikið í vctur, til þess að geta veitt
bæjarfélaginu og einstökum félögum þá
þjónustu, sem góð lúðrasveit á að geta
veitt hverju sinni.
Með fyrirfram þökk fyrir fjárframlög og
velvild.
Guðm. Norðdahl.
Ný Regnbogabók — Jólalcyfi Poirots.
Blaðinu hefir borist nýjasta Regnbogabókin,
Jólaleyfi Poirots, eftir Agatha Christie, en
hún hefir hlotið miklar vinsældir hér á Jandi
fyrir sakamálasögur sínar. — Þetta er Hercule
Poirot sakamálasaga, en hann er einhver
slyngasti og fullkomnasti leynilögreglumaður
sem skapaður hefur verið í sakamálasögum,
enda er hann dáður af milljónum lesenda.
Herflugvél.
Herflugvél með 13 mönnum nauðlenti á
Suðurnesjavegi 1. okt. s.l., án þess að nokk-
urn mann sakaði eða nokkur teljandi
skemmdir kæmu fram á vélinni. Málsatvik
voru þau að flugvél af Douglas gerð í þjón-
ustu varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, var
að koma frá flugvellinum á Þórshöfn á
Langanesi. Þegar flugvélin var yfir Reykja-
vík bilaði annar hreyfillinn ,en flugmaðurinn
taldi þó ekki verulega hættu á ferðum og
hélt fluginu áfram á hinum hreyflinum og
hugðist lenda á Keflavíkurflugvelli. 17 mín-
útum síðar, er flugvélin var yfir Stapanum,
stöðvaðist sá hreyfill Jíka skyndilega og tókst
flugstjóranum þá með miklu snarræði eins
og fyrr getur, að bjarga bæði áhöfn og vél
með því að magalenda á veginum suður af
Stapanum, sem hlýtur að teljast til björg-
unarafreka og mesta guðs mildi, að engin
ökutæki Lirðu þar á vegi vélarinnar.
Fyrir hvað cruð þið þakklát guði?
Kennslukona við skóla nokkurn í Svíþjóð
lagði ofanritaða spurningu fyrir börnin í
skólanum. Þau áttu að rita stutt svar á miða
og koma með það í tíma daginn eftir.
Morguninn eftir, þegar kennslukonan íók
miðana, hafði eitt barnið ritað á miða sinn:
„Eg þakka Guði mcst fyrir það, að ckkert
vínveitingahiis cr á himnum.“
Aumingja barnið! Hvernig haldið þið að
heimilislífið hafi verið hjá því, þegar það
fann ástæðu til að svara spurningunni þannig?