Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.10.1956, Qupperneq 10

Faxi - 01.10.1956, Qupperneq 10
98 F A X I TILKYNNING Þar sem sérstakt manntal mun ekki fara fram í Keflavík í haust, er brýn ástæða til þess að vekja athygli fólks á eftirfarandi: Skylt er að tilkynna alla flutninga fólks, strax og þeir verða, hvort heldur er: a. flutninga í bæinn, b. flutninga milli húsa, c. flutninga aðkomumanna úr bænum. Tilkynningarskyldan hvílir bæði á þeim sem flytja, svo og á hús- ráðendum sjálfum, ef það bregst að sá, sem flytur, tilkynni sig. Það varðar sektum, ef út af þessu er brugðið. Hefir Hagstofa Islands þegar kært fjölda manns fyrir vanrækslu í þessu efni, og hafa þeir verið látnir sæta sektum. Aríðandi er því, að húsráðendum gæti þess, að þeir sem flutt hafa í húsnæði þeirra, tilkynni sig tafarlaust. Eyðublöð fyrir tilkynn- ingar um aðsetursskipti eru látin í té í skrifstofu bæjarins við Hafnar- götu, þangað ber að senda þau útfyllt. Keflavík, í október 1956. Bœjarstjórinn H.f. Eimskipafélag íslands Arður til hluthafa A aðalfundi H.f. Eimskipafélags Islands hinn 9. júní 1956, var samþykkt að greiða 4% — fjóra af hundraði — í arð til hluthafa fyrir árið 1955. Arðmiðar verða innleystir á aðalskrifstofu félagsins í Reykja- vík svo og hjá afgreiðslumön- um félagsins um land allt. STJÓRNIN. +----------------------------------------------------------------------------------------------- | i i i TILKYNNING FRÁ SKRIFSTOFU KEFLAVÍKURBÆJAR Utsvarsgreiðendur í Keflavík eru minntir á að greiða útsvarsskuldir sínar og fasteignaskatta nú þegar. Samkvæmt lögtaksúrskurði er upp hefur verið kveðinn, verða lögtök látin fara fram án frekari fyrir- vara fyrir ógreiddum útsvörum og fasteignaskatti þeirra, sem ekki greiða reglulega af kaupi eða hafa samið um lokagreiðslu fyrir ákveð- inn dag. Bæjargjaldkerinn.

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.