Faxi

Árgangur

Faxi - 01.02.1965, Blaðsíða 4

Faxi - 01.02.1965, Blaðsíða 4
tengdar. Ófáir hafa lifað þar helgustu stundir lífs síns. Og á stærstu sorgarstund- um var einnig þangað leitað. Þar var friður fundinn og nýr styrkur fenginn til þess að ganga götuna áfram án þess að æðrast eða bugast. Og enn sem fyrr er hlutverk kirkjunnar hið sama, að ljá orði Krists, sakramentinu og helgum athöfnum rúm, kyrrð og frið í lofsöng og tilbeiðslu, þar sem háreysti heimsins er útilokuð og mannssálirnar fá tækifæri til samstillingar við hljóma, ljós og líf æðri tilveru. Og þegar við nú, á hálfrar aldar tíma- mótum, spyrjum okkur sjálf: Hvað get óg gert fyrir kirkjuna mína? Hvaða af- mælisgjöf bezta get ég fært henni? Þá koma áreiðanlega mörg svör fram í hug- ann, því að margt þarf að gera og ótal- margt er hægt að gera, ef vilji og samtök eru fyrir hendi. Fögur og dýrmæt gjöf til okkar fimmtuga Guðshúss væri það til dæmis, ef nokkrar áhugasamar konur tækju sig saman og stofnuðu kvenfélag, sem eingöngu hefði málefni kirkjunnar á dagskrá sinni. Þetta er aðeins eitt af mörgu, sem nefna mætti. En bezta gjöfin verður þó alltaf sú, að við reynumst kirkjunni okkar góðir synir og góðar dætur í hlýðni og þjónustu, svo að hún megi verða því háleita hlutverki sínu vaxin að færa okkur nær Guði og nær livert öðru í kristilegu bræðr.rlagi, að við megum „láta uppbyggjast sem lif- andi steinar í andlegt hús.“ Drottinn blessi þig, kirkjan mín, af- mælisbarnið fimmtuga — og nú: „Drag upp þín segl, og hátt við hún lát hefjast krossins sigurrún." Björn Jónsson. Samvinnukvikmyndir í Kcflavík. í tilefni þess, að hið nýja og myndarlega hús Kaupfélags Suðurnesja við Vatnsnestorg hefir nú verið tekið í notkun, bauð Kaup- félagið félagsmönnum sínum og öðrum við- skiptavnum til kvikmyndasýningar í Félags- bíói í Keflavik, laugardaginn 13. febrúar, þar sem sýndar voru 2 samvinnukvikmyndir frá Norðurlöndum. Páll H. Jónsson erindreki SÍS og ritstjóri Samvinnunnar, flutti þar stutt erindi um samvinnumál, þar sem hann m. a. benti á, að samvinnuhugsjónin, sem hefði lyft grett- istökum í framfaraviðleitni alþýðunnar væri fögur hugsjón og einasta von mannkynsins um frið, jöfnuð og bræðralag. Var kvikmyndasýning þessi vel sótt, enda hin athyglisverðasta og var Páli þökkuð ræðan með dynjandi lófataki. ROKKURINN HENNAR ÖMMU Rokkurinn hennar ömmu raulaði eigið lag hviðrandi kátt, hjúfrandi í sátt við lífið og liðinn dag. Og þá var ég, þrevetra hnokki, þolinn við ömmurokk, leik hans og skrið, látbragð og frið um síðkvöld við sœngurstokk. Rokkurinn hennar ömmu raulaði fyrir sig hviðrandi ótt, hjúfrandi rótt, og seiður hans svœfði mig. En amma spann uppi á himnum ull, sem var lýsigull, víðfeðma ský vestrinu í, og snœldan varð sneisafull. Kristinn Reyr. Meðfylgjandi kvæði var flutt af höfundinum á fundi í Rótarýklúbbi Kefla- víkur í tilefni þess. að félagar hans í klúbbnum höfðu á fimmtugsafmæli hans fært honum að gjöf líkan af spunarokk. gert af hagleiksmanninum Sigurþór Þor leifssyni. Svo skemmtilega vildi til. að er mér barst kvæði Kristins í hendur, hafði ég fyrir nokkrum dögum átt stutt viðtal við Sigurþór á verkstæði hans hér í bæ og fengið ljósmyndarann Heimi Stígsson til að teka af honum mynd fyrir Faxa. Þykir mér fara vel á því. að birta kvæðið og viðtalið í sama blaði. Loks vil ég svo geta þess, að meðal margháttaðra félagsstarfa, sem á Kristin hafa hlaðizt, gegnir hann tveimur virðulegum embættum innan Faxafélagsins. Þetta ár er hann formaður þess. en er auk þess ritari blaðstjómar Faxa og skipar að vonum bæði sætin með sæmd og prýði, eins og eftirfarandi vísa, er ég sendi bonum fimmtugum, ber með sér: Þeir heiðurskarlar, sem Faxi er frægastur af, nú foringjann hylla og þrýsta reyrskáldsins mundu. Og blaðstjórn sinn ritara lofar, er guð henni gaf. Hún gratúlerar þér, Kristinn — á hamingjustundu. H. Th. B. 20 — F A X I

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.