Faxi

Árgangur

Faxi - 01.02.1965, Síða 7

Faxi - 01.02.1965, Síða 7
Samvinnubankinn flytur í nýtt húsnæði Eins og lesendum Faxa er kunnugt opnaði Samvinnubanki Islands útibú í Keflavík þann 12. maí 1964, og þá til bráðabirgða í skrifstofuhúsnæði Kaupfél- agsins við Faxabraut. Að undanförnu hefir stór og myndarleg bygging verið í smíðum á eignarlóð Kaup- félags Suðurnesja við Vatnsnestorg í Kefla- vík. Þessi bygging er nú risin af grunni og að mestu frágengin ltið ytra og lokið við að innrétta hluta hennar, sem ltefir nú verið tekinn í notkun fyrir útibú Sam- vinnubankans. Verður útibúið þar í skjóli Samvinnutrygginga, sem eiga þann hluta hússins og munu flytja þangað starfsemi sína. Forstöðum. er Magnús Haraldsson. Föstud. 12. febr. s.l. flutti bankaútibúið inn í þelta nýja húsnæði að viðstöddum forstjóra Samvinnutrygginga, Asgeiri Magnússyni og bankaráði, sem hafði þar boð inni fyrir nokkra gesti er skoðuðu hin glæsilegu og velbúnu húsakynni og þágu þar ágætar veitingar framreiddar af Magn- usi Björnssyni veitingamanni. Fyrir hönd bankaráðsmanna, sem allir voru mættir, flutti formaður, Erlendur Einarsson ávarp. Bauð hann gesti velkomna og lýsti í stórum dráttum til- efni samkvæmisins. Sagði Erlendur, að þegar Samvinnubankinn h. f. var stofnað- or, hafi þegar verið tekin ákvörðun um að stofna útibú, m. a. í Hafnarfirði og Kefla- vik. Fagnaði hann þessum ánægjulega afanga og því, að nú væri útibúið í Kefla- vík flutt í nýtízku húsnæði, þar sem öll vinnuskilyrði væru góð, enda bankinn staðsettur á bezta stað í bænum. Næst á eftir Gunnari tók til máls bankastjóri Samvinnubankans, Einar Ágústson. Ræddi hann um þróun banka- mála, m. a. það, hversu bönkum og úti- búum þeirra hafi á seinni tímum fjölgað víðs vegar um landið. Kvað hann þetta vera mjög í samræmi við vilja samvinnu- manna, að flytja þannig bankaþjónustuna út til fólksins í landinu eins oð aðra við- skiptaþjónustu. Einar lauk máli sínu með því að bjóða Valtý Guðjónsson velkominn til starfa við bankann, en hann hefir verið ráðinn útibústjóri hans í Keflavík. Kvaðs bankastjórinn þekkja nokkuð til árvekni Valtýs og dugnaðar, en þó mundu Kefl- víkingar þekkja hann öllu betur fyrir margháttuð störf hans hér í bæ. Næstur kvaddi sér hljóðs bæjarstjóri Keflavíkur, Sveinn Jónsson, sem lýsti ánægju sinni yfir tilkomu bankaútibús- ins og kvaðst vænta alls hins bezta af þessu framtaki. Að lokum sagði hinn nýi úti- bússtjóri, Valtýr Guðjónsson nokkur orð. Lét hann í ljós ósk um að þessi banka- stofnun mætti verða megnug þess, að efla hag bæjarbúa og annarra suðurnesjamanna, og þakkaði síðan gestum fyrir komuna. Laugardaginn 13. febrúar, kl. 10 að morgni, var svo útibúið opnað og hófust þá þegar viðskipti eins og meðfylgjandi myndir sýna. I tilefni af opnun útibúsins hitti blaða- maður Faxa hinn nýja útibústjóra að máli og lagði fyrir liann nokkrar spurningar: —- Hvernig lýst þér, Valtýr, á starfið og aðstæður hér? Valtýr Guðjónsson, ban\astjóri. — Um starfið er að sjálfsögðu fátt að segja enn sem komið er, en ég tel að þessi stofnun sé mjög vel staðsett í bænum og liggi vel við umferðinni. Húsnæðið er vandað og rúmgott og prýðilegt útsýni yfir Vatnsnestorg. — Hvernig hafa viðskiptin gengið þenn- an fyrsta dag? — Vel. Það hafa nú þegar allmargir byrjað hér viðskipti og má vænta þess að svo verði framvegis. — Hvað verður hér fleira til húsa? — Auk bankans verða Samvinnutrygg- ingar hér með alla sína starfsemi, en trygg- ingarnar voru áður í húsnæði Kaupfélags- ins. — Hve lengi verður bankinn opinn dag- lega? — Við munum hafa svipaðan af- greiðslutíma og er hjá öðrum bönkum hér í Keflavík. — Er margt starfsfólk? — Starfsmenn eru þrír. —• Sagt er að bankastjórar þurfi oft að segja nel. — Býst þú við því? — Eg skil hvað fyrir þér vakir, enda Gunnar Sveinsson kaupfélagsstjóri lýsti óyggingunni, rakti byggingarsögu hússins °g taldi upp þá meistara og aðra menn, sem fyrir framkvæmdum hefðu staðið. Færði hann þeim og öðrum, sem að bygg- lngunni hafa unnið, þakkir fyrir vel unnin störf. Um tréverk sáu þeir Jón B. Kristins- s°n og Víglundur Guðmundsson. Kristinn Fjörnsson sá um raflagnir, Jón Ásmunds- s°n um miðstöðvar og pípulagnir, Jón P. Friðmundsson um málningu, Sigmundur Jóhannesson um múrverk, en Guðmundur ^Jtignússon byggði búsið. Teiknistofa SÍS Utadir stjórn Gunnars Þorsteinssonar, ann- aÖist allar teikningar. Nýi ajgrciðslu- salurinn. F A XI — 23

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.