Faxi - 01.02.1965, Qupperneq 12
Ragnar Eðvaldsson og Asdís Þorsteinsdóttir ásamt dóttur þeirra.
RAGNARSBAKARÍ
Níina rétt fyrir s. 1. jól tók til starfa að
Hringbraut 92 í Keflavík, nýtt bakarí.
Eigandi þessa nýja brauðgerðarhúss, er
góðkunnur Keflvíkingur, Ragnar Eðvalds-
son. Eftir að hafa lokið sveinsprófi í bak-
araiðn hér á landi, aflaði hann sér enn
frekari menntunar í starfsgrein sinni, bæði
í Sviss og Danmörku, en þessi lönd eru
talin standa mjög fraanarlega á þessu
sviði.
Eftir að hafa þannig fullnumað sig í
bakaraiðn, fór Ragnar vestur um haf í
boði amerísks firma, sem framleiðir brauð-
gerðarvélar og kynnti sér þar bakarí af
nýjustu gerð og vélar þar að lútandi.
Þegar heim kom festi Ragnar kaup á
heppilegu húsnæði í stórhýsi, sem verið
var að byggja við Hringbraut og stað-
setti þar starfsemi sína á myndarlegan og
fullkominn hátt. Raunar telur Ragnar að
starfsemin sé enn ekki komin í fullan
gang, eins og hann hefir fyrirhugað hana,
en hann væntir þess, að það þurfi ekki að
dragast mjög lengi úr þessu.
'Húsnæðið, sem er all mikið og býður
upp á útfærslumöguleika í framtíðinni,
er nú þegar þannig nýtt, að í þeim hluta
þess, sem veit út að Hringbrautinni, er
staðsett verzlun. Þetta verzlunarhúsnæði
er rúmgott og þar mjög vel vandað ti)
allra innréttinga, sem samanstanda af
stáli, gleri og harðviði. Mun óvíða hér á
landi hafa verið útbúið jafn vönduð og
skemmtileg brauðsölubúð, með jafn góð
skilyrði fyrir fljóta og þægilega afgreiðslu.
Inn af sölubúðinni er svo sjálf brauð-
gerðin. Þar vinna nú þegar 2 menn og
4 stúlkur. Innrétting allri er þar haglega
fyrir komið, þannig að vinnuhagræðing
er mjög góð. Er þar allt skipulagt eftir
svissneskri og amerískri fyrirmynd.
— Og hvernig hefir svo starfsemin
gengið, Ragnar ?
— Enn er ekki komin full reynsla á
þetta hjá mér, en fram að þessu höfum
við naumast annað eftirspurninni. Mér
liggur við að segja, að þróunin á þessum
stutta tíma sé svo ör, og dagleg störf svo
mikil og aðkallandi, að ég hefi enn ekki
fengið tíma né tækifæri til að koma fram
með þær nýjungar, sem ég hefi hugsað
mér að hrinda í framkvæmd.
— Ertu ánægður með húsnæðið?
— Já, það er í alla staði mjög gott og
býður upp á næga möguleika til vaxandi
umsvifa, jafn óðum og mér tekst að búa
það auknum vélakosti, sem ég tel nauð-
synlegt, svo hægt verði að veita viðskipta-
vinum fyrirtækisins sem fullkomnasta
þjónustu. En ég legg á það höfuðkapp,
að hafa ávallt á boðstólum vandaðar og
góðar vörur og veita fljóta og örugga
þjónustu.
— Hvað viltu segja að lokum Ragnar?
— Eg held þetta sé nú orðið gott, en
ég vil þó gjarnan nota tækifærið og ljúka
þessu spjalli okkar með því að segja, að
ég hefi mikinn áhuga á að gera þetta nyja
fyrirtæki mitt þannig úr garði, að það
geti orðið að sem mestu gagni í byggðar-
laginu.
Blaðið tekur undir þessi orð Ragnars
og óskar honum til hamingju með þetta
glæsilega framtak, sem er honum til hins
mesta sóma.
Hann er kvæntur Asdísi Þorsteinsdóttur
og eiga þau tvær ungar dætur, Helgu
þriggja ára og Steinu Þórey, sem er tveggja
mánaða gömul.
H. TH. B.
Guðriður Jonsdóttir
75 ára
Hún er fædd í Ólafsvelli í Innri-Njarð-
vík 14. febr. 1890, dóttir hjónanna Mar-
grétar Jónsdóttur og Jóns Einarssonar, er
þar bjuggu þá. Fluttist með þeim að Stapa-
koti um aldamótin og ólst þar upp ásamt
4 bræðrum sínum, sem allir eru nú dánir
og ei'nni systur Vilborgu, sem enn er á
lífi og býr á Asláksstöðum á Vatnsleysu-
Guðríður Jónsdóttir.
strönd. Guðríður varð lengst heima af
systkinum sínum og varð ellistoð for-
eldra sinna. Arið 1927 giftist hún Kristni
Jónssyni í Akri og fluttist til hans. Eign-
uðust þau eina dóttur, Helgu, sem gift er
Birni Stefánssyni og búa þau að Háholti
27 hér í Keflavík, og dvelur Guðríður nú
28 — F A XI