Faxi - 01.06.1965, Side 1
Júní-blað
6
XXV. AR 1965
Mynd þcssi er frá afhjúpun
minnisvarða Jóns Þorkclsson-
ar. Blómsveigur hefur verið
Iagður að minnisvarðanum,
en námsstjórinn, Bjarni M.
Jónsson, er í ræðustóli og
flytur snjallt crindi um braut-
ryðjandann og skólafrömuð-
inn Jón Þorkelsson, æskuár
hans í Innri-Njarðvík, líf hans
og störf. A myndinni scr vel
yfir hátíðarsvæðið og hið
mikla fjölmcnni, sem þar var
saman komið við þessa virðu-
legu og hátíðlcgu athöfn.
íííiíWiM::
Afhjúpun minnisvarða Jóns Þorkelssonar
Segja má, að síðustu 15 dagarnir í maí-
mánuði hafi verið miklir annadagar í skól-
um Suðurnesja, því samtímis prófum og
Urvinnslu þeirra voru þar undirbúnar fjöl-
breytilegar sýningar í sambandi við fyrir-
huguð hátíðahöld í tilefni af afhjúpun
minnisvarða Jóns Þorkelssonar í Innri-
Njarðvík þann 29. maí.
I Keflavík voru handavinnusýningar í
harnaskólahúsinu 'og í gagnfræðaskólan-
um. En í gamla barnaskólanum við Skóla-
Veg var skólasögusýning í umsjá Gunnars
M. Magnúss rithöfundar, er hafði veg og
vanda af uppsetningu hennar. I barna-
skóla Njarðvíkur var svo handavinnusýn-
uig, þar sem hver skóli í hinu forna Kjal-
arnesþingi, hafði sína sérstöku sýningar-
deild.
Laugardaginn 29. maí kl. 2.30 hófst svo
sjalf hátíðin með guðsþjónustu í Innri-
Njarðvíkurkirkju. Sóknarpresturinn, sr.
Björn Jónsson, predikaði og lagði út af
hinni helgu sögu: Jesús mettar 5 þúsund.
Að guðsþjónustu lokinni var haldið til
hátíðasvæðisins, austan við kirkjuna, en
þar hafði styttu Jóns Þorkelssonar verið
búinn veglegur staður á landi, sem gefið
var undir minnisvarðann af frú Elínu
Sigmundsdóttur og dætrum hennar.
Viðsta'ddir þessa minningarhátíð var
mikill fjöldi fólks og þar á meðal forseti
Islands, hr. Ásgeir Ásgeirsson, Gylfi Þ.
Gíslason menntamálaráðherra, Guðmund-
ur I. Guðmundsson utanríkismálaráðherra,
Helgi Elíasson fræðslumálastjóri, Bjarni
M. Jónsson námsstjóri, ásamt frúm.
Einnig ýmsir forvígismenn skólamála í
Kjalarnesþingi. Hafði ríkisstjórnin á sín-
um tíma skipað Thorkilliinefnd, til að
annast þessa framkvæmd ásamt nefnd úr
héraðinu. Þessar nefndir hófust handa um
að láta gera minnisvarðann um Jón Thor-
killiius, en þannig ritaði hann nafn sitt
á latínu. Ríkarður Jónsson myndhöggvari
var fenginn til að gera minnismerkið, en
það sýnir hinn mikla uppfræðara sitjandi
með tvö börn við hné sér, pilt og stúlku.
Er minnismerkið táknrænt, fagurt og svip-
hreint listaverk.
Þegar samkomugestir höfðu safnast
saman framan við hjúpaða styttuna, hófst
ganga skólabarna úr Kjalarnesþingi til
hátíðasvæðisins undir stjórn Þorsteins
Einarssonar íþróttafulltrúa ríkisins, og
gekk þar hver skóli undir sínum fána og
merki, en lúðrasveit drengja úr Kefla-
vík og Mosfellshreppi léku undir.
Þegar fylkingar skólaæskunnar höfðu
staðnæmst á svæðinu til hliðar við minnis-
merkið og lúðrasveitirnar hætt leik sín-