Faxi

Årgang

Faxi - 01.06.1965, Side 13

Faxi - 01.06.1965, Side 13
Tveir nemendur í skiptum Þjóðkirkjunnar segja fró nómsdvöl í Bandaríkjunum Nokkur undanfarin ár hefur íslenzka þjóðkirkjan staðið fyrir nemendaskiptum við Bandaríkin. Nýtur þessi þáttur kirkjunnar til æskulýðsmála mikilla vinsælda, og komast yfirleitt færri utan en vilja á vegum hennar. Er þetta eðlilegt, þegar þess er gætt, að um ársdvöl er að ræða á völdu bandarísku heimili, nám við góðan skóla að ógleymdri þránni eftir að kynnast fjarlægu landi og íbúum þess. Slík dvöl er unglingunum að mestu kostnaðarlaus, en ferðirnar milli landa greiðir hann sjálfur. Góðir kirkjugestir. Ég var ein af þessum 19 lánsömu ung- lingum sem að þessu sinni fengu að fara utan á vegum þjóðkirkjunnar. Sigrún Sighvatsdóttir. Fyrir förina kom hópurinn alloft saman til æfinga í ensku, íslenzkum þjóðdönsum og þjóðlögum. Um miðjan júlí fórum við utan með flugvél frá Loftleiðum. Akvörðunarstaður var Kennedy-flugvöllurinn. Þar var vel tekið á móti okkur, og flutti áætlunarbif- reið okkur þaðan til Uppsala háskóla í New Jersey. Dvöldumst við þar ásamt skiptinemendum frá öðrum löndum í fjóra daga. Fengum við tækifæri til þess að kynnast þeim og siðum þeirra á alþjóð- legu kynningarkvökli, sem þar var haldið. Framlag okkar til þeirrar kynnmgar voru islenzkir dansar og söngvar. Fyrstu dagarnir í Bandaríkjunum voru mjög skemmtilegir og margt framandi bar fyrir augu. Að þessum fjórum dögum loknum tvístraðist höpurinn landshornanna milli. Leið mín lá til Kenmore, sem er útborg Fuffaloborgar, en hún er önnur stærsta horgin í New York fylki. Nokkuð kveið ég fyrir því, hvernig fjöl- skyldan, sem ég átti að dvelja hjá, mundi taka mér. En við fyrstu kynni hvarf allur kvíði, og ég sá sem varð, að hún myndi reynast mér í alla staði mjög vel. Hjónin áttu þrjú börn, tvo drengi og stúlku, sem var næstum jafnaldra mér. Varð ég á skömmum tíma eins og ein úr fjölskyldunni og nefndi hjónin aldrei með nafni, aðeins mömmu og pappa og börn þeirra systkini mín. Heimilissiðir voru í ýmsu frábrugðnir því, sem ég átti að venjast. Sérstaklega hvað viðkom matmálstímum. Máltíðir voru þrisvar á dag og samkvæmt venju var bannað að neyta matar þess í milli. Aðalmáltíð dagsins var klukkan sex, og voru morgun- og hádegisverðir smávægi- legir samánborið við hana. Kemur þessi siður áreiðanlega til af vegalengdunum, því að yfirleitt komast húsbændurnir ekki til hádegisverðar. Ollum siðum og venjum fólksins vand- ist ég furðu fljótt, aðeins olli þekkingar- leysi í tungu þeirra mér nokkrum erfið- leikum, en nærgætni og þolinmæði fólks- ins í þeim efnum hjálpaði mér yfir erfið- asta hjallann og fyrr en varði gat ég tekið þátt í samræðum þess. Fyrstu dagana ferðuðust hinir amer- ísku foreldrar mínir með mig um ná- grennið. Kenmore er, eins og ég hef getið, út- borg úr Buffalo borg, fremur lítil, um 20.000 íbúar, en mjög vinaleg og falleg borg. Buffalo borg er ein mesta stáliðnaðar- borg vestra, auk þess eru þar miklar sem- entsverksmiðjur. Hvar sem farið er um borgina sér í hverja verksmiðjuna af ann- arri. Um borgina fara 3 milljónir ferða- manna árlega á leið til Niagarafossa,, sem eru ekki langt undan. Niagarafossarnir eru mjög hrikalegir og fannst mér óhugnanlegt að hugsa til þess, að menn hafi gengið á líiiu yfir foss- ana. Ég sá þá bæði að vetrarlagi og um sumar og eru þeir ekki síður hrikalegir og fal- legir í klakaböndum. Einnig fórum við til vatnanna miklu, þeirra stærst eru Eirevatn og Ontario- vatn, en þau skilja að New York fylki og Kanada. Vötnin eru fjölfarin siglingaleið, þar er töluverð fiskveiði og strendurnar eru vin- sælir og fjölsóttir baðstaðir. Þessi ferð var mjög skemmtileg og eftir- minnileg, enda gerði fjölskyldan allt til þess að svo gæti orðið. I byrjun september hóf ég nám við skól- ann í Kenmore. Skólakerfið í Bandaríkj- unum er mjög frábrugðið því sem hér er. Það er að mörgu leyti nýtízkulegra og þar stefnir mjög snemma að sérhæfingu. Unglingurinn verður að vera fljótur að átta sig á því, hvað hann ætlar að leggja fyrir sig í framtíðinni, og velur svo náms- greinar eftir því. Hann er skyldur til þess að læra tvö fög, ensku og bandaríska sögu, en hefur valfrelsi um þrenn til fern önnur. Kennt er 5 daga vikunnar, €>Vi stund á dag og fer kennslan að mestu fram í fyrir- lestraformi. Skólann sátu 2500 nemendur, félags- lynt og skemmtilegt fólk. Mörg nemenda- félög voru innan skólans og vann hvert þeirra að einu sérstöku hugðarefni. Tungumála-, hljómlistar-, leiklistar- og málfundafélög svo eitthvað sé nefnt. Iþróttir eru mjög stundaðar og hófst íþróttakennsla alltaf að bóknáminu loknu. Aðallega var lögð áherzla á körfubolta, frjálsar íþróttir og Rugby, en knattspyrnu eins og við þekkjum stunda ekki piltarnir, heldur stúlkurnar, og það af miklum áhuga. Metnaður er gífurlegur milli bandar- ískra skóla hvað við kemur íþróttum og þykir það skólanum til gildis að eiga sem bezta íþróttamennina. Ég kunni vel að meta lífið í skólanum og notfærði mér vel öll tækifæri til þess að vinna að félagsstörfum með skólasyst- kinum mínum, og var ég þess vegna mjög iljót að kynnast. Námið gekk fremur stirðlega framan af, sérsaklega í Bandaríkjasögu, sem bæði innihélt mikið og erfitt mál. Erindi varð ég að flytja um ísland og það oftar en einu sinni, og gekk það eins og annað stirðlega, en strax og orðaforð- inn jókst fór allt batnandi. Yfirleitt var ég mjög ánægð með skóla- veruna, námið jafnt sem skemmtanir. F A XI — 89

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.