Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1968, Blaðsíða 7

Faxi - 01.01.1968, Blaðsíða 7
Góðir fundarmenn, þar sem þið eruð fulltrúar úr öllum sveitarfélögum á Reykjanesskaga, vildi ég biðja ykkur að leiðrétta, ef ég hef rangfarið með eitthvað, sem þið þekkið betur. Ég vildi því ljúka máli mínu með því að hvetja ykkur til að hugleiða og stuðla að auknu samstarfi byggðarlaganna í sameiginlegum velferð- armálum, okkur og niðjum okkar til hags- bóta. Eyþór Þórðarson. Heimildir: 1. Landnám I—III 1900 bls. 123 og Þórðar- bók 1921, bls. 28. 2. Landnám Ingólfs II. 5 1940 bls. 266. 3. Landnám Ingólfs II. 5 1940 bls. 280. 4. Landnám Ingólfs II. 5 1940 bls. 278. 5. Landnám Ingólfs II. 5 1940 bls. 279. 6. Strönd og Vogar 1961 bls. 48. 7. Undir Garðskagavita bls. 218. 8. Faxi 1963 bls. 211. 9. Faxi Desember 1941. 10. Landnám Ingólfs II. 1. 1936 bls. 14. Lifðu lífinu lifandi Þessi ágæta bók barst mér nýskeð í hendur, og þar sem ég tel hana eiga er- indi til allra hugsandi manna, vek ég á henni athygli hér með örfáum orðum. Höfundur hennar er hinn heimsfrægi kennimaður og rithöfundur dr. Norman Vincent Peale. A frummálinu heitir hún Stay Alive All Your Live. Fyrir tveimur árum kom út á íslenzku bókin Vörðuð leið til lífshamingju eftir sama höfund. Sú bók fékk frábæra dóma, enda seldist hún upp á skömmum tíma. Hefir hún orðið mörgum nútíma manninum holl- ur lestur, — góður og raunsannur ráð- gjafi, enda oft til hennar vitnað í sam- tölum manna. Báðar eru bækur þessar þýddar af Baldvini Þ. Kristjánssyni, sem hefir vandað þýðinguna vel og á heiður skilinn fyrir þetta ágæta verk. Um höfund þessara fágætu bóka er það að segja, að hann er orðlagður víða um lönd sem afburðasnjall rithöfundur, kenni- maður og hollur ráðgjafi öllum þeim, er til hans hafa leitað með vandamál sín, og þeir eru orðnir býsna margir, enda starf- rækir hann leiðbeiningastofnun í sam- starfi við lækna og aðra sérfróða menn. Hafa bækur hans um þessi vandamál mannlífsins verið metsölubækur, enda finna hrjáðar sálir þar svölun í hugar- angri sínu, svölun, sem oft leiðir hug- sjúka menn til heilbrigðs lífs, eftir að þeir hafa kynnzt lífsskoðun og læknis- ráðum höfundarins. En í sem fæstum orðum sagt, byggjast þessar kenningar hans á trúnni á hina duldu varaorku, sem blundar í sálardjúpum hvers einasta manns og vaki í meðvitund hans um að- gang að þeim ummyndandi og endurnýj- andi krafti, sem guðssamband trúarinnar á föðurlega handleiðslu veitir. Þetta er sá mikli kraftstraumur, er virkar sem læknis- dómur á lesendur þessara ágætu bóka og því vil ég að lokum endurtaka þakklæti mitt til höfundarinsn og þýðandans. H. Th. B. KEFLAVÍK-SUÐURNES Á stofu. I heimahúsum. f samkvæmum. Passamyndir. Ökuskírtinismyndir. Eftirtökur á gömlum myndum. Auglýsingamyndir. Pantið í síma 1890 FRAMKVÆMUM ALLSKONAR MYNDATÖKUR Ljósmyndastofa Suðurnesja Túngötu 22 — Keflavík — Sími 1890 — Pósthólf 70 Húsnæðismálastofnun ríkisins auglýsir Húsnæðismálastofnun ríkisins vill hér með benda væntanlegum umsækj- endum um íbúðarlán á neðangreind atriði: 1. Einstaklingar og sveitarfélög, sem hyggjast hefja byggingu íbúða á árinu 1968 svo og einstaklingar, sem ætla að festa kaup á íbúðum, og koma vilja til greina við veitingu lánsloforða húsnæðismálastjórn- ar árið 1968 sbr. 7. gr. laga um Húsnæðismálastofnun ríkisins, skulu senda umsóknir sínar, ásamt tilskildum gögnum og vottorðum, til Húsnæðismálastofnunar ríkisins eigi síðar en 15. marz 1968. Umsóknir, sem síðar kunna að berast, verða ekki teknar til greina við veitingu lánsloforða á árinu 1968. Lánsloforð sem veitt kunna að verða vegna umsókna, er bárust eða berast á tímibilinu 16.3. 1967 til og með 15.3. 1968, koma til greiðslu árið 1969. 2. Þeir, sem þegar eiga óafgreiddar umsóknir hjá Húsnæðismálastofn- uninni, þurfa ekki að endurnýja umsóknir sínar. Reykavík, 3. janúar 1968. Húsnæðismálasf'ofnun ríkisins Laugavegi 77 — Sími 22453 FAXI — 7

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.