Faxi - 01.01.1968, Side 8
Séð yfir salinn.
Kvenfélagið Gefn í Garði
í nóvemberblaði Faxa var sagt frá Kven-
félaginu Gefn í GarSi og hinu ágæta
hálfrar aldar menningarstarfi þess, en það
var sem kunnugt er stofnað 9. desember
1917. 1 tilefni af þessum merku tímamót-
um gerði félagið sér nokkurn dagamun
og þann 9. desember s. 1., á sjálfan af-
mælisdaginn, bauð það staðarbúum og
fleiri gestum til dýrðlegs mannfagnaðar
í samkomuhúsi hreppsins. Var afmælis-
fagnaður þessi mjög vel undirbúinn af fé-
lagskonum, sem sjálfar stóðu fyrir glæsi-
legum veitingum og önnuðust öll skemmti-
atriði kvöldsins.
Formaður félagsins, frú Auður Tryggva-
dóttir, setti hófið með ræðu. Við það
tækifæri lýsti hún því yfir, að í tilefni
þessara tímamóta gæfi félagið Utskála-
kirkju kr. 40 þúsund, og fylgdi gjöfinni
sú ósk, að fénu yrði varið til að teppa-
leggja kirkjuna. Þá gerði formaður þrjár
aldraðar félagskonur að heiðursfélögum
kvenfélagsins, en þær eru allar stofnfé-
lagar í Gefn og hafa unnið félaginu mikið
Kvenfélagskórinn.
Frá vinstri: Sigríður Þor-
steinsd., Sigrún Oddsd.,
Helga Sigurðard. Jóhanna
Þorsteinsd., Edda Karlsd.,
Guðfinna Jónsd., Sigrún
Magnúsd., Unnur Gíslad.,
Jóhanna Markúsd.
& í íh % & * +
Fonnaður félagsins, frá Auður Tryggvad.
setur afmælishátíðina.
starf og gott. Þessar heiðurskonur eru:
Guðrún Jónasdóttir, Rafnkelsstöðum,
Ingibjörg Sigurðardóttir, Hausthúsum og
Kristín Hreiðarsdóttir, Prestshúsum.
Á eftir ræðu formanns fóru fram fjöl-
breytt skemmtiatriði, þ. á m. samfelld dag-
skrá úr sögu félagsins, þar sem fléttaðist
saman bein frásögn og kórsöngur félags-
kvenna, en kórnum stjórnaði frá Auður
Tryggvadóttir. Á eftir voru svo fluttir
tveir leikþættir. Var góður rómur gerður
að öllum þessum skemmtiatriðum félags-
kvenna, er þótti vera þeim til hins mesta
sóma. Um kvöldið voru fluttar margar
ræður og ávörp, þar sem kvenfélaginu voru
Ingibjörg Sigurðardóttir og Krístín Ilreiðars-
dóttir. Guðrúnu Jónasdóttur vandtar á
myndina.
8 — F A X I