Faxi - 01.11.1969, Blaðsíða 2
r--------------------------------------'
FAXI
Útgefandi: MálfundafélagiíS Faxi, Keflavík.
Ritstjóri og afgreiðslumaður:
Hallgrímur Th. Björnsson.
Blaðstjórn:
Hallgrimur Th. Björnsson,
Margeir Jónsson, Guðni Magnússon.
Gjaldkeri:
Guðni Magnússon.
Auglýsingastj óri:
Gunnar Sveinsson.
Verð blaðsins í lausasölu kr. 30,00.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
k__------------------------------------>
Onnu Olgeirsdóttur, móður Guðlaugar,
sem nú er látin, aðal hvatakonur að stofn-
un Kvenfélagsins. — Við þetta sama tæki-
færi, færðu þær Sigríður og Hlíf formann-
inum Guðlaugu blómakörfu til minningar
um móður hennar. Þá fékk Kvenfélagið út-
skorna gestabók frá Kvenfélagi Keflavík-
ur og Freyja Nordal- form. Kvenfélagasam-
bands Gullbringu- og Kjósarsýslu afhenti
Kvenfélaginu Njarðvík áletraðan silfur-
kertastjaka.
Af hálfu viðstaddra gesta fluttu þessir
heillaóskir og kvenðjur: Sambandsstjóri
Ungmennafélags Islands, Hafsteinn Þor-
valdsson, ávarpaði samkvæmið og færði
U. M. F. N. fána U. M. F. L, Þórhallur
Guðjónsson form. U. M. F. K. færði báð-
um afmælisbörnunum oddfána síns félags.
Sveitastjóri Njarðvíkurhrepps, Jón As-
geirsson, færði báðum félögunum málverk
af Þingvöllum ásamt blómakörfu. AS lok-
um fluttu svo Oddbergur Eiríksson og
Karvel Ogmundsson stutt ávörp. — For-
menn beggja félaganna, þau Guðlaug og
Guðmundur þökkuðu að lokum gjafir og
árnaðaróskir með stuttum ræðum.
Þess má svo geta, að á milli dagskrár-
liða var viðhafður mikill og almennur
söngur undir stjórn Hafstein Snæland og
við undirleik Ingimars Guðjónssonar.
Voru það að sjálfsögðu ættjarðarlög við
sígildan, þjóðlegan kveðskap. Þá söng
Keflavíkurkvartettinn mörg lög öllum til
yndis og ánægju. Gerðu þeir félagarnir að
venju stormandi lukku og ætluðu aldrei
að fá sig lausa af leiksviðinu. Ómar Ragn-
ars skemmti þar einnig um stund og síðan
voru veizluborð upp tekin og dansinn hófst
undir merkjum hljómsveitarinnar „Asa“,
sem þótti takast mjög vel og sáu um ótak-
markað fjör til klukkan 3, en þá var
þessari velheppnuðu skemmtun lokið.
H.
Vegleg stofnun hlýtur veglega gjöf
Eins og frá var skýrt í síðasta tbl. Faxa,
minntist Kvenfélag Keflavíkur 25 ára af-
mælis síns með hátíðafundi í Aðalveri,
miðvikudaginn 5. nóv. s. 1. —
I tilefni þessara merku tímamóta færði
félagið Sjúkrahúsi Keflavíkur að gjöf kr.
50.000.00, til að kaupa rúm fyrir sængur-
konur- Var sú ákvörðun tekin í samráði
við yfirlæknir sjúkrahússins, Jón K. Jó-
hannsson.
Frú Guðrún Arnadóttir form. kvenfé
lagsins, skýrði frá þessu í ræðu á hátíða-
fundinum í Aðalveri, en hún setti einnig
þenna fund og stjórnaði honum. 1 sam-
bandi við þessa gjöf gat form. þess, að fé-
lagskonur hefðu fremur kosið að minnast
þessara tímamóta svona, heldur en efna til
kostnaðarsamra hátíðahalda. Hún skýrði
einnig frá því, að frú Emelía Snorrason,
ein af stofnendum félagsins og fyrsti rit-
ari, hafi verið gerð að heiðursfélaga þess,
sem viðurkenningu fyrir langt og mikið
starf, en hún er nú flutt til Reykjavíkur.
Var formlega gengið frá þessu á fundin-
um.
Frú Sesselja Magnúsdóttir hafði þær
ánægjulegu fréttir að færa, að nýafstaðinn
kökubazar félagsins, sem haldinn var í
Tjarnarlundi 2. þ. m. hafi gengið með
ágætum og skilað góðum tekjum.
Þá flutti gjaldkeri kvenfélagsins, frú
Vilborg Ámundadóttir fróðlegt erindi um
starfsemi félagsins frá upphafi. Hefir Faxi
fengið leyfi til að birta ræðu hennar í
næsta tbl.
Frú Vilborg var einnig heiðruð á fund-
inum og færð fögur blómakarfa að gjöf
fyrir mikið og fórnfúst starf í þágu félags-
ins.
Frú María Hermannsdóttir formaður
Systrafélags Keflavíkurkirkju færði félag-
inu fagran veggskjöld að gjöf, unninn í
kálfskinn af frú Astu Arnadóttur, sem er
kunn fyrir hagleik og listræn vinnubrögð.
Frú Guðlaug Karvelsdóttir færði því fal-
lega borðfánastöng frá Kvenfélaginu
Njarðvík og frú Freyja Norðdal, formað-
ur Kvenfélagasambands Gullbringu- og
Kjósarsýslu, færði félaginu silfurkerta-
stjaka, áletraðan frá sambandinu. Þá bár-
ust afmælisbarninu fleiri gjafir þ. á. m.
5 þúsund krónur frá konu, sem ekki vildi
láta nafns síns getið. Hlýjar kveðjur, blóm
og skcyti bárust því hvaðanæfa að.
Á hátíðafundi þessum voru um 90—100
manns, þar voru gnægtir góðs matar á
borðum og öllum leið vel.
Formaður sleit hátíðafundinum laust
fyrir miðnætti og þakkaði góða fundar-
setu og félagssystrum sínum ánægjulegt
samstarf á liðnum árum.
Þykir fundur þessi hafa verið góðu fé
lagi til mikils sóma.
, H. Th. B
.flJL2JUJL2JULfiJLfiJLajL8JUULajL^^
A uglýsingasímar
eru
1717 og 1760
Suðurnesjatíðindi
Sitjandi frá v,: Vil-
borg Ámundadóttir
gjaldk., Guðrún
Árnadóttir foi-m.,
Sigurbjörg Páls-
dóttir ritari.
Standandi frá v.:
Guðný Árnadóttir
vararit., Jóna Ein-
aisdóttir meðstj.,
Birna Jakobsdóttir
varafonn. og Anney
Guðjónsdóttir
vararitari.
142 — F A XI