Faxi

Årgang

Faxi - 01.11.1969, Side 4

Faxi - 01.11.1969, Side 4
Góðtemplarahús. Það kom fljótlega á dagskrá í stúkunni að byggja eigið fundahús. Þ. 27. febr. 1887 var fyrst kosin nefnd til aS athuga, hvort tiltækilegt væri aS byggja hús. Voru í henni Jón Gunnarsson, ÞórSur Thorodd- sen og Ogmundur Sigurðsson. En þá kom upp nokkur ágreiningur um hvar ætti að Magnús Bjarnarson. byggja. Innri-Njarðvíkingar vildu byggja í Ytri-Njarðvík svo félagar ættu jafnari aðstöðu til að sækja fundi. Var það sam- þykkt á fundi 13. marz með 14 atkvk. gegn 4, að viðhöfðu nafnakalli. Voru þá fáir Innri-Njarðvíkingar á fundi. En þeir fóru upp úr þessu að undirbúa stúkustofn- un hjá sér, og var stúkan Hófsemdin nr. 16 stofnuð 19. des- 1887. Nokkur dráttur varð því á að hafist væri handa um húsbyggingu. Tveir af nefnd- armönnum fóru úr stúkunni um haustið, Ogmundur í Hófsemdina og Jón sagði sig úr, eins og áður er sagt. En næsta haust, 18. nóv. 1888 er kosin húsbyggingarnefnd: Þórður Thoroddsen, Guðmundur Hann- esson og Sæmundur Sigurðsson. Hófst hún handa um að útvega lóð fyrir væntanlegt hús. Duus verzlun gaf kost á lóð „á milli Petersens húss og húss Olafs Jafetssonar, í beinni línu við þau.“ Var búið að mæla út lóð 20x25 áln. og samningur lagÖur fram í stúkunni til undirskriftar. En þeg- ar stúkan fór að athuga samninginn, lík- aði henni ekki skilyrðin, sem þar voru sett. Þau voru þessi: 1.) Lóðarleiga skyldi vera 15 kr. á ári. 2.) Ekki mátti verzla í húsinu. 3.) Ef eigendaskifti verða, álítzt útmælingin niður fallin. Leigan þótti of há. Vildu menn ekki borga nema 10 kr. Breytingartillaga kom við 2. gr.: „Stúkan má ekki verzla í hús- inu.“ En 3. greinin þótti þó verst, og mátti raunar teljast frágangssök að samþykkja hana. Ekki náðist samkomulag um að breyta þessu. Onnur grein samningsins gæti bent til þess að forráðamenn verzlunarinnar hafi búist við, — og kannski ekki að ástæðu- lausu, — að Thoroddsen færi að veita þeim samkeppni, enda gerði hann það, því hann stóð fyrir pöntunarfélagi í nokkur ár, eins og áður er sagt. Ekki er mér kunnugt um hvenær það var stofnað, eða hvort það var þegar stofnað, er þetta skeði. Leitaði nú stúkan til Njarðvíkurbænda, sem áttu land út að Rás, (núverandi Tjarn- argötu), eins og þeir eiga enn, og fékk hjá þeim lóð án nokkurra skilyrða. Leigan var 10 kr. á ári, sem síðar mun hafa hækkað upp í 15 kr., þegar stúkan fékk lóðina stækkaða. Það var á fundi 12. maí 1889, að skýrt var frá því að hægt væri að fá lóð hjá Njarðvíkingum. Var þá hafist handa um bygginguna, enda mun stúkan þá hafa verið orðin húsnæðislaus. Næsti fundur, 19. maí mun hafa verið hinn síðasti í barnaskólastofunni og eru þá kosnir tveir menn til að reyna að útvega stúkunni ann- að húsnæði þar til nýja húsið væri komið upp. Næstu tveir fundir voru svo haldnir í húsi Þorvarðar beykis. (Vallarg. 28). Fyrsti fundur í nýja húsinu var hald inn 28. júlí, en ekki var það þá fullfrá- gengið. Það virðist hafa verið lán fyrir hin ýmsu félagasamtök í Keflavík að Njarðvíkingar skyldu eiga hér lóðir. Þegar Báran ætlaði að byggja hús fyrir pöntunarstarfsemi sína, fékk hún ekki lóð hjá Keflavíkureigend- um, en gat byggt rétt utan við þeirra lóð- armörk. (Suðurgata 1). Sama máli gegndi um Isfélag Keflavíkur. Til tals hafði komið, að byggja í félagi við hreppinn, með barnaskóla fyrir aug- um. En tillaga urn það var felld á stúku- fundi. Hinsvegar var hreppnum leigt hús- ið fyrir barnaskóla í nokkur ár eins og áð- ur er sagt. Þegar rætt var um húsaleiguna, kom fram tillaga um 8 kr. á mánuði, en var dregin til baka og samþykkt tillaga um 6 kr. á mánuði. Arið 1895 var húsið lengt til suðurs um 6 álnir. Einnig stóð til að byggja forstofu við norðurendann, en því var frestað vegna fjárskorts, og varð aldrei úr því. Guðmund- ur Jakobsson hafði boðist til að lengja hús- ið um 8 álnir og byggja forstofu framan við það, ef hann fengi í vinnulaun orgel stúkunnar. Ekki virðist því tilboði hafa verið tekið. Orgel þetta var keypt árið áð- ur af Bartels fyrir 200 kr., en var alltaf í ólagi. Stúkan vildi skila því aftur eða fá verðið lækkað, en því neitaði Bartels. I mörg ár var stúkan í vandræðum með hljó.ðfæri þetta. Stóð lengi til að halda „lotterí" á því, en aldrei varð af því, og var það að lokum selt fyrir 10 krónur. Hús þetta, sem nú var risið, var heim- ili stúkunnar í 16 ár, og hefir sennilega verið á því tímabili eina samkomuhúsið í Keflavík, að pakkhúsum undanskildum, sem stundum voru notuð til slíkra hluta. Ekkert leiksvið var í húsinu, og þegar stúkan efndi til leiksýninga, varð annað- hvort að smíða pall fyrir leiksvið, eða fá lánað eitthvcrt pakkhús, og varð þá líka að smíða pall. Fyrir og um aldamótin fjölgaði veru- lega í stúkunni og 1904 var önnur stúka, Hafaldan, stofnuð. Var þá farið að ræða um að stækka þyrfti húsið, eða helst að selja það og byggja annað stærra. Árið 1904 var húsnefndinni falið að kaupa kirkjugrunninn, verði hann seldur, og jafnframt gefið umboð til að bjóða í hann 400.00 kr. Ekki varð úr þeim kaupum. Kirkjugrunnur þessi stóð þar sem nú er bílastæði, sunnan við hús S. B. K. Hafði verið byrjað á kirkjubyggingu þarna nokkru fyrir aldamót, en kirkjan skekktist á grunni í ofviðri, áður en hún var fok- held, og var tekin niður og ekki reist aft- ur á þeim stað. Húsið var síðan selt Edinborgarverzlun fyrir kr. 2000.00 og var sölusamningur dag- settur 18. jan. 1905. Hófu þá stúkurnar í sameiningu byggingu á nýju húsi og verð- ur þess getið síðar. Gamla húsið var síðan lengi notað sem vörugeymsluhús og síðar fiskhús. Eftir að Ungmennafélagshúsið, (Skjöldur), brann 1935, tók einn framtakssamur Keflvíking- ur liúsið á leigu og dubbaði það upp fyrir samkomuhús til bráðabirgða. Gáfu þá gár- ungarnir því hið óvirðulega nafn: „Draug- urinn“, sem átti að þýða að það væri upp- vakið sem samkomuhús. Síðar var það um mörg ár trésmíðaverkstæði Þorsteins Árna- sonar og Jóns Guðmundssonar, en var rif- ið síðastliðið vor, til að rýma fyrir stór- byggingu Hákonar í Stapafelli. Hefði það orðið 80 ára nú í sumar. Framhald. 144 — FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.