Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1971, Blaðsíða 10

Faxi - 01.01.1971, Blaðsíða 10
Nýr sjúkrahúslœknir í Keflavík. Eins og flestum mun kunnugt, sagði núver- andi sjúkrahúslæknir, Jón K. Jóhannsson, fyrir nokkru upp starfi sínu við sjúkrahús Keflavíkur, en hann hefir verið yfirlæknir sjúkrahússins um árabil. Umrædd læknisstaða við sjúkrahúsið var síðan auglýst laus til umsóknar og hefir nú Kristján Sigurðsson læknir verið ráðinn yfir- læknir við sjúkrahúsið og mun hann bráð- lega taka þar við störfum. Kristján er fæddur 14. nóvember 1924. Hann lauk læknisprófi 1954 og fékk læknis- leyfi í febrúar 1956. Hann var fyrst aðstoðar- læknir í Hvammstangalæknishéraði og síðar héraðslæknir þar frá 1956. Hann gegndi að- stoðarlæknisstörfum í Blönduóslæknishéraði 1956—’58. Var héraðslæknir í Patreksfjarð- arlæknishéraði 1961—1966. Aðstoðarlæknir í meinafræðum 1960—’67. Var læknir við Landsspítalann frá 1. júlí 1967—’70 og gegndi þá jafnframt aðstoðarlæknisstörfum við spítalann á Isafirði og Neskaupstað. Kristján stundaði framhaldsnám í Svíþjóð á árunum 1958—’61. Um leið og Faxi býður Kristján lækni vel- kominn til ábyrgðarmikilla starfa hér við sjúkrahúsið, þakkar hann fráfarandi yfir- lækni ágæt störf hans við stofnunina og ósk- ar honum og fjölskyldu hans góðs famaðar. H. Th. B. Jólatrésskemmtanir Kaupfélags Suðumesja og Kvenfélags Keflavíkur vom með sama sniði um þessi jól og verið hefir að undanfömu, en þessar skemmtímir em orðnar fastir liðir í bæjar- lífinu um hátíðamar og vel þegnar af img- um sem öldnum. „Litlu jólin". Hin svokölluðu „Litlu jól“ voru að venju haldin siðasta starfsdag bamaskólans í Kefla- vík, eins og nú orðið tíðkast í skólum lands- ins. Sá dagur er þá helgaður jólunum og hinu langa, kærkomna jólaleyfi fagnað sam- eiginlega af nemendum og kennumm með smávægilegu skemmtanahaldi í skólastofun- um, sem í þessu skyni hafa kvöldið áður verið skreyttar og búnar undir þessa ánægju- legu skemmtun, sem er að mestu undirbúin af nemendunum sjálfum með aðstoð kenn-r aranna. 74 útköll slökkviliðs Keflavíkur. Útköll Slökkviliðs Keflavíkur voru á liðnu ári 74 og eru þar með taldar nágrannabyggð- imar því að Slökkvilið Keflavíkur þjónar þeim einnig. Tveir alvarlegir eldsvoðar urðu á árinu — er hluti af þakhæð Faxabrautar 27, sem er fjölbýlishús, brann og skemmdist mikið, einnig íbúðarhús að Vallargötu 15. Aðrir eldar vom minni og kom slökkviliðið í veg fyrir útbreiðslu þeirra. Margháttuð önnur þjónustustörf vom veitt bæði við skip, ökutæki og aðrar öryggisráð- stafanir. Slökkvilið Keflavíkur er sæmilega búið tækjum og stendur til að auka tækja- búnað á næstunni. Eldvamaeftirlit er nú tekið til starfa í Keflavík. — hsj. Nýtt safnaðarheimili Aðventista. Söfnuður Aðventista í Keflavík og ná- grenni vígði í desember s. 1. nýtt safnaðar- heimili að Blikabraut 2 í Keflavík, en þar hafa þeir um nokkurt skeið starfrækt smá- barnaskóla fyrir 5—6 ára böm. Tók skól- inn að þessu sinni til starfa þar 1. okt. s. 1. og er kennt í 4 deildum. Nemendur munu vera um 90 og eru í skólanum 1 klst. á degi hverjum. Kennari er Elísabet Guðmunds- dóttir. Auk skólans reka aðventistar þar svo- nefndan hvíldarskóla hvem laugardag kl. 10, en kl. 11 sama dag er þar haldin guðsþjón- usta. Söfnuðurinn mun telja um 30—35 manns og hefir forstöðumaður hans fram að þessu verið Sigfús Hallgrímsson, en við hon- um tekur nú Steinþór Þórðarson, sem er lærður í prestaskóla aðventista. oooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooo oooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooo % í KEFLVIKINGAR! SUÐURNESJAMENN! Réttingaverkstæði Grétars Sigurðssonar, Hafnargötu 54 A, vill benda á, að við tökum að okkur að ryðverja bifreiðar, jafnt nýjar sem gamlar, með fullkomnum háþrýstitækjum. Símar: 2540 og 2574 BAÐLYF fyrir hesta fyrirliggjandi APÓTEKI KEFLAVÍKUR ^OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOX OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO 10 — F A XI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.