Faxi

Årgang

Faxi - 01.09.1974, Side 5

Faxi - 01.09.1974, Side 5
GAMLIR ÞURRKKLEFAR ENDUR- BÆTTIR MEÐ HREYFISPJÖLDUM Yfirleitt hafa þurrkklefar verið þarna af svipaðri gerð og hérna heima, nema hvað dyr hafa verið í sitt hvor- um endanum og grindur keyrðar inn (stórar grindur á hjól'um) um annan endann og út um hinn. Fyrir nokkrum árum var venja að taka út' eina grinda- röð úr klefaendanum, ýta öllum grind- unum til í klefanum og setja nýja grindaröð fremst í klefann á ca. 2 klst. fresti (vaktarvinna). Fékk fiskurinn þá ca. 12 klst. þurrk í hverri i'o'tu, en um 6 þurrklotur þruft'i til að þurrka niður í lagerþurran fisk (38-40% raki). Núna hafa þessir klefar verið endur- bættir með hreyfispjöldum svipað og hér heima, þannig að unnt er að við- halda föstu loftrakast'igi (auk hitastýr- ingar). Með þessu hefur verið unnt að l'engja þurrklotur (án aukinnar skorpu myndunar) upp í ca. 24 klst'. og fækka þurrklotum um helming. Þetta er svip- uð þróun og átt hefur sér stað hér- lendis. Svona klefa sáum við hjá Roms dals og hjá Jangaard. Aftur á móti var kominn nýr Rau- foss-klefi í Romsdals til' viðbótar, og hjá Jens Grytt'en A/S var búið að koma fyrir dýrum og flóknum kæliút- búnaði í gamlan klefa — svokölluð Kl'imat-þurrkun. Hugmyndin með þess útbúnaði var að gera þeim fært að full þurrka (7/8) fisk’inn í einni lotu á ca. 48 klst. Þetta hefur ekki reynzt vel ennþá nema fyrir minni fisk, en þeir búast við að lagfæra t'ækin n.k. apríl og sjá þá t'il. RAUFOSS-KLEFINN ÞYKIR DÝR — SÉ MIÐAÐ VIÐ AFKÖST Eins og fyrr segir, var kominn nýr (ca. tveggja ára) Raufoss-klefi hjá Romsdals, en þeir fengu líka fyrsta til- raunaklefann til reynslu. Þetta er eini Raufoss-klefinn í Álasundi (annar í Kristjansund), ,og samkvæmt ál'iti ann arra (þeir sjálfir voru óánægðir með sinn klefa) er óvíst, að fleiri Raufoss- klefar verði settir upp í Álasundi í bráð — þeir (hr. Dahl hjá Grytten o.fl.) báru því við, að þeim fyndist klefinn full dýr miðað við afköst, of margir hreyfihlutir væru í klefanum og því hætta á miklum viðhaldskostn- aði seinna og jafnvel framleiðslutöfuin o.s.frv. Jafnframt' er minna um fisk í ár og dregur það úr áhuga að l'eggja i slíkar fjárfestingar. Aftur á móti sögðu þeir okkur (Dahl o.fl.), að líklega yrðu nokkrir Raufossklefar settir upp í N- Noregi og væri það sérstaklega styrkt af byggðasjóðum til að efl'a atvinnulíf þar. Hjá Romsdals voru þeir að skipta um í Raufoss-klefanum. Var þetta all bl'autur og vel saltaður milliþorskur á bréttum. Tveir menn unnu við þetta og t'ók verkið þá 4 klst. Um 5V2 tonn af vel blautum fiski settu þeir í klefann (að þeirra sögn), og tók það 25-30 klst. að þurrka fiskinn á 7/8 þurrkstig. Miðað við 4 innsetningar á viku (ekki unnið þar á laugardögum og sunnu- dögum) æt'tu vikuafköstin að vera um 16V2 tonn af 7/8 þurrum fiski og hlut'- fallslega minna við meiri þurrk (lík- lega ca. 10-11 tonn á viku fyrir Cura Corrente fisk). Ramsdals nota ennþá gamla þurrk- klefann (útbúlnn sjálfsstýrisspjöldum) á 2. hæð við að þurrka fisk í og eins við þurrkun á stærri fiski. Er þá fisk- urinn þurrkaður í 2-3 þurrklotum, sem hver er 24 klst. Vöskun og þurrkun kostar þá 70 aura (kr. 10.50) pr. kg að mati Sol- bakks. KÆLIKLEFAR PANELKLÆDDIR — NORÐMENN Á UNDAN OKKUR MEÐ KÆLINGUNA í þessum st'öðvum, sem við heim- sóttum, voru tveir stórir kæliklefar á sitt hvorri hæð. Neðri klefarnir voru fyrir aðkeýptan saltfisk, sem beið þurrkunar og eins notaðir fyrir fisk í saltstæðum (eigin sölt'un). Efri klef- arnir voru notaðir fyrir fullverkaðan fisk, oft niðurmetinn að hluta. í klefunum voru notaðir vanalegir kæliblásarar eins og hér heima. Hita- stigið var um plús 4°C. All'ir klefarnir voru að innan með panelklæðningu á veggjum — mjög smekklegur frágangur, sem varnar að fiskur slái sig við útveggi. Stöðvarnar hafa lengi verið með vélkælingu — langt á undan okkur, enda mun heit- ara þar á sumrin en hér. Efl'aust hafa þessar kæligeymslur stuðlað að betri geymsluþoii norsks þurrfisks í heitu löndunum en okkar fiskur, því fiskur, sem geymc\ur hefur verið sumarlangt án kæl'ingar en sloppið við rauðu, get- ur verið á mörkunum við að skemm- ast, þegar hann er sendur út. SVIPUÐ PÖKKUNARKERFI ALLS STAÐAR Pökkunarkerfin eða niðurstöður í öllum þrem stöðvunum voru mjög lík, Þau samanstanda af upphækkaðri vigt, rúllubrautum, færibandi (24” breitt og 7-10 m langt), plastborðabinditækj- um (loftknúnum), l'okunarpressu á pappakassa og pokafyllingartæki. Pakkað er aðallega í pappakassa eins og hér heima, eins eitthvað í trékassa (fer minnkandi) og svo í strigapoka, sem eru pappafóðraðir (vélsaumaðir í stöðvunum). Allar pökkunaraðstöður voru fast staðsettar í ákveðnum pökkunarsal næst kæligeymslum undir þurrfisk, en ekki á hreyfingu um húsin, e'ins og oft er hátturinn hér. Við pökkun var fiskurinn fyrst met- inn á borði hjá vigtinni (framkvæmt af verkstjóra undir eftirliti ríkismats- manns eins og í Kanada) og síðan sett- ur á vigt'ina. Ef pakkað var í kassa, var fiskinum ýtt út á rúllubrau'tina og sett- ur í kassana á hliðarbraut, en rennt síðan út á færiband, sem flutt'i pappa- kassana að sjálfvirkri l'okunarpressu (loftknúinni). Þar er lokinu ýt't niður, og um leið eru kassarnir heftir á hlið- unum og endunum (tvennt í einu) með sjálfvirkri heftivél. Kössunum er raðað á bretti (80x120 cm) og bundið yfir með plastborðum með l'oftknúnu handtæki. Þegar pakkað er í striga, er rásin önnur. Hjá Jens Grytten var verið að pakka sérpakningu í striga. Af vigt- 'inni fór fiskurinn á hliðarbraut, þar sem tvöfaldur pappi var vafinn utan um hann — pappinn festur með lím- bandi — strekkt yfir með plastræmu (2) — strigi saumaður yfir og síðan mjór vír strekktur á tveim stöðum yfir með einföldum strekkjara. Þetta var allt all seinlegt. Á öðrum stað hafði fiskurinn farið af vigtinni í gegnum sjálfvirka plast- borðabndivél (svipuð og í frástihúsum hér), og síðan saumaður strigi yfir. Eins voru þarna pakkar, þar sem plast borðarnir voru yfir pakkann, en ekki yfir fiskinn. EKKI ÓSVIPAÐ OG JÓLATRÉSPÖKKUN HJÁ ALASKA Á hinum stöðvunum var pakkað í pappafóðraða strigapoka. Að vísu sáum við þetta ekki í framkvæmd (fengum sýnishornapoka) — hjá Jangaard sáum við hálfsmíðað pokafyll'ingatæki (hver stöð smíðar sjálf eigin tæki), og hjá Romsdals voru þau í útláni. Þó feng- um við greinargóða lýsingu á þessu hjá Romsdals Þar er fiskurinn vigtað- ur á sérsmíðaða álgrind með tveimur raufum. Grindinni með fiskinum er rennt af vigtinni á rúllubraut, þar sem plast'ræmum er smokkað í gegnum F A X I — 49’ t

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.