Faxi

Volume

Faxi - 01.09.1974, Page 8

Faxi - 01.09.1974, Page 8
BINDINDISHREYFINGIN Á ÍSLANDI 90 ÁRA: Baráttunni við Bakkus verður haldið áfram Eitt stærsta vandamál, sem við er að etja hjá okkur íslendingum, er áfeng- isvandamálið, sem virðist heldur fara vaxandi í seinni 'tíð, með auknu pen- ingaflóði. Mörg samtök hafa verið mynduð á íslandi gegn Bakkusi, þessum háskalega bölvaldi, sem lagt hefur líf fjölda manna í rúst, sundrað heimil- um, valdið slysum og dauða. Elzt þeirra samtaka sem vinna gegn áfengisbölinu, er Góðtemplarareglan á íslandi, en hún hefur nú starfað í 90 ár, oft af miklum krafti, og látið mikið að sér kveða og haft sterk áhrif í þá átt að sporna gegn áfengisneyzlu. Um sinn hefur þó fremur lítið borið á Reglunni, en þó eru það nokkrir, sem ekki láta deigan síga, og enn starfa stúkur hér á Suðurnesjum, þótt fá- mennar séu, og halda sína fundi. Fyrir nokkru var haldinn sameigin- legur fundur stúknanna Framfarar í Garði og Víkur í Keflavík, og voru þar mættir átta úr framkvæmdanefnd Stórstúku íslands. Æðsti templar Vík- ur, Jón Tómasson, stýrði fundi með myndarbrag, eins og hans var von og vísa. Til máls tóku á fundinum, þeir Stefán Halldórsson, æðsti templar Danielshers í Hafnarfirði, Kristinn Vil- hjálmsson, þingtemplar, Reykjavík, frú Sigrún Oddsdóttir, gæzlumaður barnastúkunnar í Garði, og Ólafur Þ. Kristjánsson, stórtemplar, og er ræða hans birt hér' á eftir í heild. Þá afhenti Jón Tómasson stúkunni Framför forkunnarfagran kertastjaka að gjöf, frá stúkunni Vík, með þeim orðum, að þau ljós, sem á honum log- uðu, mættu lýsa Framför í starfi á ókomnum árum. Var ýmislegt til skemmtunar á fund- inum, leikþáttur, fluttur af þeim Gísla Eiríkssyni og Sigurði Magnússyni, telpnakór söng undir stjórn Siguróla Geirssonar, Gísli Eiríksson söng ein- söng, Ásta Magnúsdóttir las ljóð, og Hilmar Jónsson flutti frumorta drápu, og að lokum voru kaffiveitingar ásamt kökum og tertum. Framtíð Reglunnar byggist á nýjum mönnum Ræða Ólafs Þ. Kristjónssonar „Við höfum farið um landið og verið með félagsmönnum Reglunnar, tekið þátt í störfum þeirra og verið þar við- staddir. Við höfum haft af þessu hina mest ánægju og ekki hvað minnsta þegar þannig hefur staðið á, að nýir félagar hafa bætzt í hópinn. Ég vil flýtja ykkur öllum, sem hér eruð, þakkir frá Stórstúku íslands. Ég vil um leið þakka ykkur, stúkunum báð- um og einstökum félagsmönnum, fyrir það starf, sem þið hafið innt af hendi og eruð að inna af höndum. Eins og kunnugt er, þá eru í vetur liðin 90 ár frá því að fyrsta Góðtemplarastúk- an var stofnuð á íslandi, stúkan ísa- fold á Akureyri, og þess var minnzt mjög myndarlega norður á kureyri, einmitt snemma í janúar, en hún var stofnuð 10. janúar, ef ég man rétt. Ég hef spurt að því og svarað því raunar sjálfur, á nokkrum fundum undanfarið, hver ástæðan muni vera til þess, að Reglan skuli hafa lifað svona lengi í landinu sem raun ber vitni, og starfað að vísu með mismun- andi miklu lífi, misjafnlega miklum kröftum og misjafnlega miklum ár- angri, en hún hefur starfað samfelytt nú í full 90 ár. Og ég fæ ekki betur séð en að ástæðurnar séu einkum tvær, og önnur ástæðan er sú, að 90 ár er langur tími og það liggur í augum uppi að enginn maður endist til þess að starfa í félagsskap í 90 ár. Æfi mann- anna og starískröftum eru sett knapp- ari takmörk, heldur en það, enda er enginn af þeim mönnum sem þátt tóku í stúkustarfinu hér á landi fyrstu árin, enginn þeirra manna er nú á lífi. Ólafur Þ. Kristjánsson En þar sem er orsökin til þess, að Reglan hefur lifað og Reglan hefur getað starfað er það, að hún hefur alltaf fengið nýja menn í staðinn fyrir þá, sem hafa horfið í burtu, og svo er enn. Framtíð Reglunnar er komin und- ir því að hún fái alltaf nýja menn, ekki aðeins til að fylla í skörðin, sem verða af óhjákvæmilegum ástæðum, heldur líka til þess að fjölga liðinu. Þess er mikil þörf. Og sumir af þess- um mönnum sem í Regluna hafa gengið á undanförnum árum, þeir hafa raunar ekki starfað þar lengi, en þeir eru líka margir, sem hafa starfað svo ára- tugum skiptir, verið að vísu mismun- andi áhugamiklir starfsmenn, en verið með í starfinu þennan langa tíma. Og það er einmitt þétta, að alltaf bætast við nýir og nýir menn í hópinn, til að taka upp störfin, starfa með þeim sem fyrir eru, og taka síðan við störfunum á sínum tíma og verða forystumenn í liðinu. Það er einmitt þetta, sem Regl- an á að þakka því, að hún hefur starf- að í 90 ár og starfar enn. Framtíð hennar er komin einmitt undir því að þessir menn bætist alltaf í hópinn og taki við störfum og sjái um vöxt og velgengni Reglunnar. Hitt atriðið er það, að Reglan hefur verið og er enn, hugsjónafélag, sem 52 — F A X I

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.