Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.09.1974, Qupperneq 12

Faxi - 01.09.1974, Qupperneq 12
V egurinn Þegar Maríanna kom heim frá skól anum seinni hluta dagsins, var móðir hennar grátandi. Yngri systkini henn- ar voru úti og allt var hljótt á heimil- inu. — Hvað er að, mamma? spurði Maríanna og lagði skólatöskuna sína á stól. — Frú Andersson kom hingað og sagði mér allt .... Hún sagði að . . . . Jæja, þú veizt það bezt sjálf, Maríanna. Maríanna skildi ekki upp né niður. Hún byrjaði að naga á sér neglurnar, eins og hún gerði alltaf, þegar hún var í vandræðum. Því næst leit hún spyrjandi á móður sína. — Frú Andersson sagði, að þú hefðir verið þátttakandi í því að taka peninga frá henni sem lágu í pen- ingakassanum hennar, og áttu að fara í matarkaup. Maríanna hreint og beint stirðnaði í öllum líkamanum. Hún minntist þess ekki, að hafa nokkru sinni tekið það sem hún átti ekki. Jú, einu sinni tók hún köku, þegar hún var lítil. En þá var hún óviti. Nú mundi hún ekki láta sér til hugar koma að taka nokk- urn hlut án þess að spyrja fyrst um leyfi. — Trúir þú þessu raunverulega, mamma? Getur þú álitið slíkt um mig? — Nei, innst inni get ég það ekki. Ég skýrði það fyrir frú Andersson, að þetta hlyti allt að vera misskilningur. En þá sagði hún, að Nanna hefði sagt, að þú hefðir verið svo áköf í að fá nokkrar krónur lánaðar. — Mamma, ég ætla að fara og tala við Nönnu. Það er útilokað að LITLI LESANDINN UMSJÓN: Á. M. hún skrökvi að mér, þegar ég stend andspænis henni. Maríanna fór heim til Nönnu, sem var nú ekki ein. Frú Andersson lét þær ekki í friði. Það var erfitt að koma beint að efninu. Það hefði verið langt um auðveldara, ef þær hefðu fengið að vera tvær einar. — Ég er komin hingað til að tala um, að ég hef verið ásökuð að ástæðu lausu, sagði Maríanna. Þið vitið að við Nanna erum aldrei saman, og til lífsins þess vegna hef ég aldrei stigið fæti mínum hingað fyrr .... Mamma sagði mér, að Nanna héldi því fram, að ég hefði tekið peninga. Það hef ég aldrei gert. — Nú, hverju svarar þú til þess, Nanna? spurði frú Andersson. Nanna steinþagði. Það var auðséð á henni, að hún fór ákaflega hjá sér undir þessum kringumstæðum. Má ég tala einsömul við Nönnu svo litla stund? spurði Maríanna. — Gerðu svo vel, sagði frú Anders son stuttaralega. — Hvers vegna skrökvaðir þú á mig? spurði Maríanna, þegar þær voru seztar niður inni í herbergi Nönnu. — Vegna þess að ég áleit, að það mundi ekki ganga svona mikið á. Það voru aðeins tvær krónur sem mig vant aði, þegar ég ætlaði að kaupa mér bók til að líma myndir í. Undireins og ég var búin að kaupa bókina tók mamma eftir því, að það vantaði pen inga í kassann hennar. Þá varð ég hrædd og sagði, að þú hefðir viljað að við tækjum peningana. — En nú verður þú að vera góða stúlkan, og segja mömmu þinni hvern ig í öllu liggur. Ég vil ekki halda á- fram að vera ásökuð fyrir það, sem ég hef alls ekki gert. Nanna, hugsaðu þér, ef um stærri peningaupphæð hefði verið að ræða, og þú hefðir skrökvað þér til afsökunar, þá hefði getað farið svo illa, að saklaus hefði orðið að líða hegningu. —Já, ég skal segja eins og er. Því lofa ég. — Þá ætla ég að hlusta á, Nanna. Skilur þú það sem þú hefur gert? Ein lygi fæðir af sér aðra lygi. Nanna sagði mömmu sinni allan sannleikann og sýknaði Maríönnu fullkomlega af hvers konar þátttöku í máli þessu. Þegar Maríanna kom heim, féll hún í fang móður sinnar og grét. Þær byrjuðu siðan að biðja fyrir Nönnu, að hún færi aldrei inn á þá braut sem leiðir til eyðileggingar og glötunar. Þær báðu til Jesú, að hann vildi í náð gefa Nönnu sýn inn í það, að sann- leikurinn leiðir til lífsins. KROSSGÁTA NR. 4 Lárétt: 1. Árstíðirnar 6. Næringu 7. Kalt góðgæti 8. Kall 9. Skel 11. Leik- fang 13. Forfaðir 14. Fimmtán 16. Varg 17. Trappa Lóðrétt: 1. Ofankoma 2. Forsetning 3. Rola 4. Tveir eins 5. Garðávöxtur 9. Ryk 10. Ekki frá 11. Farkostur 12. Á blómi (þágufall) 13. Hún 15. Fimm þúsund. Bretar iðnir við bjórinn Atvinnuleysi verkföll og orkuskortur viðast síður en svo draga úr bjórþambi Breta. Fyrstu 10 mánuði árs'ins sem leið, hafði bjórsalan augizt um 5,8% frá árinu áður. Drykkjuskapur unglinga hefur færzt í aukana, og afbrotum fjölgar þá einn- 'ig. Slik afbrot' unglinga innan 18 ára hafa tvöfaldazt á sjö árum. 56 — F A X I

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.