Íslendingur


Íslendingur - 07.04.1983, Blaðsíða 5

Íslendingur - 07.04.1983, Blaðsíða 5
tæki greiði i opinbera fjár- festingarsjóði, verði heimilað að leggja hluta hagnaðar í eigin fjárfestingarsjóði. 3- Virðisaukaskattur verði tek- inn upp í stað söluskatts. Lokið verði við endurskoðun og samræmingu tollskrár- innar og þeir skattar lagðir af, sem litlu máli skipta eða skaða einstakar atvinnu- greinar. 4. Afrakstur fiskistofna og hag- kvæm nýting fiskiskipastóls- ins haldast í hendur. Átak verði gert til veiða á fleiri tegundum nytjafiska. Verð- lagning sjávarafla fari eftir gæðum en það er forsenda fyrir bættri vöruvöndun. Stjórnvöld beiti sér fyrir samstarfi sjómanna, útvegs- manna og fiskverkenda í þessum aðgerðum. Rann- sóknir í fiskiðnaði og haf- rannsóknir verði efldar í samvinnu við fyrirtækin sjálf og með þátttöku þeirra. Áfram verði haldið aðgerð- um til orkusparnaðar við veiðar og vinnslu. 5. Áhersla verði lögð á sam- starf við nágrannaþjóðir um að tryggja hámarksafrakstur þjóðanna. Landhelgisgæslan fái aukið fjármagn og ný verkefni svo sem við eftirlit og aðstoð við fiskiskipastól- inn. 6. Verðjöfnunarsjóði fiskiðn- aðarins verði einvörðungu beitt til þess að jafna sveiflur í verði sjávarafurða en sá var tilgangur hans. Jafnframt verði unnið að því að koma á fót verðjöfnunarsjóði fyrir útflutningsiðnað. færi sem innlendur markað- ur gefur fyrir fiskvinnslu- tæki, veiðarfæri og rafeinda- búnað, jafnframt því sem stuðlað sé að útflutningi í þessum greinum. 10. Samtök framleiðenda ogein- stök fyrirtæki verði efld til framleiðslu- og sölustarfsemi erlendis. Greitt verði fyrir eðlilegum viðskiptaháttum innanlands og í innflutnings- verslun með því að verð- myndun verði frjáls oggjald- eyrisviðskipti greið. I. Áthugun og endurskoðun fari fram á starfsemi opin- berra stofnana, þar með tal- in Framkvæmdastofnun, Húsnæðisstofnun, fjárfest- ingasjóðir og ríkisbankar. Stefnt sé að því að draga úr kostnaði í rekstri, flytja til störf, þar sem það þykir hag- kvæmara og forðast iþyngj- andi áhrif opinberra aðila af atvinnulífinu. 12. Heilbrigðis- og trygginga- kerfið verði gert einfaldara og hagkvæmara og dregið úr kostnaði í umsvifum án þess að rýra þá þjónustu sem fyrir er. Sérstaklega sé hugað að Sjálfstæðisflokkurinn telur þessa þróun óæskilega og stefnir að því að allir geti eignast og búið í eigin húsnæði. Hann mun beita sér fyrir eftirfarandi aðgerðum í húsnæðis- málum: 1. Efldir verði tekjustofnar byggingarsjóðs ríkisins svo að almenn íbúðarlán hækki nægilega til þess að almenn- ingi sé kleift að koma sér upp eigin íbúð með þeim láns- kjörum, sem staðið verður undir af venjulegum launa- tekjum. Þeirsem eruaðeign- ast sína fyrstu ibúð fái 80% lán með betri kjörum en aðrir. 2. Verkamannabústaðakerfið að stefnan í mennta- og menn- ingarmálum miði að því að efla sjálfstæða hugsun og skapandi starf svo að þroskí og hæfileikar einstakling- 7. Stefnt sé að því, að fram- leiðsla landbúnaðarafurða verði í samræmi við innan- landsþarfir og nýtanlega er- lenda markaði. Heimiltverði að ráðstafa hluta af út- flutningsbótafé til að draga úr framleiðslukostnaði og lækka verð á búvörum inn- anlands. Lögð verði áhersla á nýjungar í vinnslu- og sölu- starfsemi landbúnaðarafurða, og aðhald sýnt i milliliða- kostnaði. Unnið verði að eflingu nýrra búgreina og Ijölbreytt- ara atvinnulífi í sveitum til að mæta samdrætti sem orðið hefur í hefðbundnum bú- greinum. 8- Fiskeldi sé eflt, lífríki í ám og vötnum verndað og stuðl- að að sjóeldi og hafbeit í stórum stíl. 9. Samkeppnisaðstaða íslensks iðnaðar sé styrkt og innkaup- um opinberra aðila sé að öðru jöfnu beint til innlendra fyrirtækja. Skilyrði séu sköpuð til að endurnýjun og viðgerð á skipastólnum geti farið fram hér á landi. Lögð sé áhersla á að nýta þau tæki- þeim þáttum þar sem þörf- in fyrir aukna þjónustu er mcst. 13. Starfsemi lífeyrissjóða verði endurskipulögð með það fyr- ir augum að allir landsmenn njóti verðtryggðs lífeyris og sambærilegra lífeyrisréttinda. 14. Staðið verði við fyrirheit um stórátak í varanlegri vega- gerð í samræmi við stefnu- mótun Sjálfstæðisflokksins, samhliða úrbótum í sam- göngum í lofti og á sjó. 15. Skipting á verkefnum ríkis og sveitarfélaga sé við það miðuð að stækka umráða- svið sveitarfélaga og draga úr miðstýringu. Sett verði lög sem tryggi rétt sveitarfélaga til að ráða sjálf málum sínum. Skipting tekjustofna skal vera í samræmi við verk- efni hvors aðila. 16. Húshitunarkostnaður verði lækkaður, þar sem hann er óeðlilega hár og orkujöfn- unargjald, sem lagt er á sam- kvæmt sérstökum lögum, verði notað í því skyni, svo sem ætlað var. Eign fyrir alla - Átak í húsnæðis- málum. Á síðustu misserum hafa almennar húsbyggingar dregist stórlega sam- an og framkvæmdir færst æ meira yfir á svið verkamannabústaða og bygginga á vegum opinberra aðila. Orsakirnar eru annars vegar versn- andi efnahagur og lífskjör, en hins vegar lánsfjárskortur og beinar aðgerðir stjórnvalda. verði bundið við þarfir hinna efnaminnstu er fái nægilega aðstoð til að koma sér upp eigin íbúð. 3. Leiguíbúðum sé markaður ákveðinn rammi innan hús- næðislánakerfisins. 4. Sérstakt átak verði gert í byggingu þjónústuíbúða fyr- ir aldraða og öryrkja. öldr- uðum auðvelduð eignaskipti á íbúðarhúsnæði. 5. Sérstakar skattaívilnanir verði veittar þeim einstakl- ingum, sem leggja reglulega fé inn á bundna reikninga. Sú aukning frjáls sparnaðarsem af þessu hlýst sé notuð til að standa undir auknum þörf- um húsnæðislánakcrfisins. Betra mannlíf. í umróti þjóðfélags í mótun og þeirri upplausn sem verið hefur í efnahagslífinu er hætt við að gamlar dyggðir gleymist og mannleg verð- mæti fari forgörðum. Við þessu vill Sjálfstæðisflokk- urinn sporna og leggur áherslu á eftirfarandi stefnu- atriði: að treyst verði undirstaða heimila og fjölskyldna. Foreldrum verði gert kleift að skipta með sér uppeldi hinnar ungu kynslóðar sem þau bera ábyrgð á. Til þess þarf að koma á samfelldum skóla- degi, auka möguleika á dag- vistun og koma á sveigjan- legum vinnutíma. anna njóti sín. Dregið verði úr miðstýringu í skólakerf- inu. að útvarpsrekstur verði gefinn frjáls. að áhrif kvenna í samfélaginu séu aukin og komið á ótví- ræðu jafnrétti karla og kvenna; að áhrif kristnidóms og kirkju verði aukin i þjóðlífinu; að víðtækt átak verði gert meðal þjóðarinnar gegn áfengis- og eiturlyfjanotkun; að sérstök áhersla verði lögð á að vernda náttúru landsins, bæta gróður og koma í veg fyrir rýrnun landkosta og spillingu lofts, láðs- og lagar; að áfram verði haldið endur- skoðun stjórnarskrár lýð- veldisins. í æsku landsins býr framtíð þjóð- arinnar. Sjálfstæðisflokkurinn vill hvetja ungt fólk til heilbrigðs líf- efnis, íþrótta og útilífs með því að bæta skilyrði til þess eins og kostur er. Friður og frelsi. Sjálfstæðisflokkurinn fylgir utan- ríkisstefnu, sem í senn tekur miðaf brýnum hagmunum Islands, nauð- syn samvinnu við aðrar þjóðir og baráttu fyrir friði, mannréttindum og frelsi þjóða og einstaklinga til að ráða málum sínum án íhlutunar annarra. Öryggi landsins byggist á aðild þess að Atlantshafsbandalaginu og traustum vörnum samfara auknu íslensku frumkvæði í varnarmálum á grundvelli innlendrar sérþekking- ar. Það skiptir nú enn meira máli en nokkru sinni fyrr, að endir sé bundinn á vígbúnaðarkapphlaup- ið. Eina færa leiðin til þess er sam- komulag um gagnkvæma afvopnun undir tryggu eftirliti. Frjáls og opin samfélög vesturlanda geta því að- eins náð slíku samkomulagi að þau íslenska þjóðin verður að taka nýja stefnu - Stefnu ábyrgðar í í stað upplausnar sýni fulla einbeitni í varnarmálum sínum. Sjálfstæðisflokkurinn minnir á mikilvægi alþjóðasamvinnu um efnahagsmál, sem varðar íslend- inga meira en flestar aðrar þjóðir. Eitt af meginmarkmiðum íslenskrar utanríkisstefnu er því að vinna gegn hvers konar hömlum á frjálsum við- skiptum þjóða í millum. Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að staðið verði á verði um fyllstu réttindi íslands innan auð- lindalögsögunnar og réttinda ís- lands á hafsbotnssvæðunum utan hennar verði tryggð svo sem alþjóðasamningar frekast heimila. Bjartari framtíð. Við íslendingar höfum öll skilyrði til að geta búið vel í landi okkar. Það er gjöfult og gott og fámennið ætti að gera okkur auðveldara en milljónaþjóðum að hafa stjórn á eigin málum. Síðustu misserin hafá verið erfið, verðbólgan æðiráfram, svo að hvorki einstaklingar né fyrir- tæki geta gert áætlanir fram í tímann. Það hefur lcitt til ringul- reiðar í fjármálum, sljóvgað sið- gæðisvitund og valdið ranglæti og óþolandi mismunun. Það dregur úr sjálfsbjargarhvöt, framleiðsla minnkar en lífskjör versna. Þetta hefur dregið úr trausti manna á stjórnarfarinu og undirstöðu þess, þingræðinu. í slíkum jarðvegi blómstra sundrungaröfl og lausung vex. Við íslendingar stöndum nú frammi fyrir miklum vanda í efnahagsmálum. Sagan kennir okkur, að á örlagatímum hefur þjóðin borið gæfu til að standa saman og takast á við örðugleikana, ef henni er veitt styrk forysta. Á þetta leggur Sjálfstæðisflokkurinn áherslu um leið og hann gengur frá stefnumörkun sinni fyrir komandi alþingiskosningar. Sjálfstæðisflokk urinn vill beita nýjum ráðum við stjórn landsins. Þau munu stuðla að jafnvægi og festu og leysa framtak einstaklinga úr læðingi. Með sam- eiginlegu átaki sigrumst við á erfið- leikunum. Sjálfstæðisflokkurinn höfðar einn flokka til allra stétta og getur í trausti þess leitt þjóðina frá upp- lausn til ábyrgðar. Leið þjóðarinnar til bjartari framtiðar er leið Sjálfstæðisflokks- ins. Ígggg ÍSLENDINGUR - 5

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.