Straumar - 01.10.1929, Qupperneq 5

Straumar - 01.10.1929, Qupperneq 5
STRAUMAR 147 „Heimurinnu er hugtak erft frá hellensku tvíveldiskenn- ingunni, sem hafði mikil áhrif á kenningar Páls og Jó- bannesarritanna; gengur það sífellt aftur í hugsunarhætti „kirkjulegra manna, og nú síðast í „vísindalegriu mynd í kenningu Barths, sem hér hefur verið skýrt frá alveg ný- lega. „Heimurinn11 birtist nú — eins og hann hefur enda alltaf gert — í hinni ungu kynslóð, sem tekur upp nýja hætti, ógeðfellda eldri kynslóðinni og suma andstyggilega að hennar dómi. Vér skulum ekki ætla, að þetta fyrir- brigði — uppreisn æskunnar — sé nbkkuð nýtt í sögunni. Það er kannske ákveðnara nú og bilið stærra nú en fyr, af því að hraði framþróunarinnar eykst sífelltj, eins og fallhraðinn, En sagan endurtekst, að æskan verður að elli, og gleymir því tilliti, sem hún krafðist sjálf meðan hún var ung. Roskna og ráðna kynslóðin: íhaldið, mótar kirkjuna. Unga og framgjarna kynslóðin: nýji tíminn, mótar „heim- inn“. Þetta er ástandið sýnt í stærstum dráttum — eg neita ekki, að í einstaka atriðum kunni þetta að víxlast. En þetta ástand tel eg óheilbrigt og skaðlegt. — Þ e 11 a ástand á mikla sök á óvinsældum kirkj- unnar og áhrifaleysi meðal helmings þjóðarinnar. Ur þessu þarf að bæta, og það verður ekki gert nema með gag^kvamiri sameiningar viðleitni og bróðurhug. Dr. Barnes bendir á þörlina á samvinnu kirkjudeild- anna sín á milli. Á það atriði verður varlega of mikil áherzla lögð, en þó vil eg undirstrika hitt enn frekar: einingarviðleitnina innan hinna einstöku kirkjudeilda sjálfra, sem hann bendir á leiðina til í auknu starfi kirkj- unnar fyrir heiminn, aukinni þátttöku hennar í úrlausn vandamála kynslóðarinnar. Þar fær kirkjan lifandi verk- efni. Kirkjan sem stofnun utan fólksins hefur hæpinn rétt á sér. Kirkjan sem 3ameining allra til að leita hinnar sönnustu og staðbeztu lausnar á hverskyns vandamálum allra kynslóða á ótvíræðan tilverurétt, því að þá sprettur hún upp af þörfum þjóðanna. Kirkjan sem samfélag heims- ins barna til að leita hins æðsta og bezta í öllum viðhorf- utn lífsins, göfga þau og fegra, er hin æðsta hugsjón þess

x

Straumar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.