Straumar - 01.10.1929, Síða 6

Straumar - 01.10.1929, Síða 6
148 STRAUMAR félagsskapar. í þeirri leit er hún ekki bundin af neinu neraa vaxtartakmarki kristsfyllingarinnar. Ef þessar athugasemdir minar gætu orðið til þess, að þeir, sem fara með áhrif og völd innan kirkjunnar litu með meiri samúð og skilningi til hinna yngri og óðfús- ari ura nýbreytni aldarinnar, og hinir yngri og breytinga- gjarnari sæu hjálp og aðstoð í kirkjunni og fynndu til gagnkvæmrar ábyrgðar gagnvart henni, og að þeim ber einnig starfandi þátttaka í stjórn hennar, þá teldi eg þær ekki árangurslausu frá mér sendar. Og þá er mér nær að ætla, að lærisveinarnir kæmust nær vilja meistarans er felst í bæninni: „Ekki bið eg, að þú takir þá úr heim- inum, heldur að þú varðveitir þá frá illu“. (Jóh. 17, 15). Ég vildi óska, að íslenzka kirkjan gæti orðið svo víðsýn og móðurleg, að hún hrinti ekki frá sér æskumönnunum fyrir það, þótt eldri kynslóðinni þyki nóg um, hve langt hún gengur á ýmsum sviðuin. Og eg vildi óska, að ís- lenzk æska fyndi svo mikið til virðingar sinnar og rétt- ar, að hún stæði ekki afskiftalaus utan kirkjunnar, held- ur fynndi ábyrgð sína og léti til sín taka mál hennar, svo að hún verði samræm hinum nýja tima og hæf til að verða andleg móðir allra barna sinna. Bjöm Mag'nússou. Leiftur, (Þessir smápistlar eru lauslega þýddir úr ,My Letters from Heaven. - Bréf liandan að - rituð ósjálfrátt. I 1. tbl. Strauma þ. á. er nánar minst á þessa bók). Pæðing nýs árs. Koma nýs árs bendir til nýrrar þróunar. Glaður og reifur skyldi hver ganga inn í það, eins og sá sem syng- ur sigurljóð. Horf glaður frani og fyll sál þína af von. Alt sem þú bindur hugann við hér og allar áhyggjur þín-

x

Straumar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.