Straumar - 01.10.1929, Síða 8

Straumar - 01.10.1929, Síða 8
150 STRAUMAR niðri, þá segðu þeitn að hugsa sér hvað jarðnesk tilvera yrði, ef kærleikur stjórnaði öllum og friður umvefði hvert heimili. Einnig ef að þar ríkti sífeldur, undursam- legur fögnuður, hverskonar vellíðan andleg og líkamleg. Þannig er lífið hérnameginn og meira að segja þúsund sinnum dýrðlegra en þig fær dreymt um, og þó berðu kvíða fyrir þessari stuttu ferð yfir tíl strandar eilífs Ijóss og eilífs kærleika. Vegurinn sá er hvorki torfær né dimm- ur, eins og ykkur hættir svo til að halda. Hann er sann- kallaður guilin-vegur. Að ganga hann er sem að hverfa alt í einu úr daunillu og rykugu herbergi út undir blá- tæran og hreinan himin, þar sem alt angar af blóma- breiðum. Að ganga gullin-veg er að hverfa til eilífra samvista við hreinustu sálir. Rödd Gtuðs. Huðboð, sem menn hljóta, eru einmitt hrapalega mis- skilin. Margur reynir að berjast gegn og bæla þau niður. Hugboð er einatt rödd Guðs, sem er að tala til þín, eða aðvörun vinar þíns handan að. Legðu hlustir við rödd þeirri, er þú stendur á vegamótum eða ert í vafa. Og láttu ekki ráð, sem veröld veitir þér, kefja þessa rödd, sem talar innra með þér, Leyndardómur þjáninganna. Eg bið þig að leggja þér á hjarta, að allar sorgir, sem henda kunna eru þér til góðs, og takmarkið er hinn æðsti fögnuður. Þér kann að virðast að snöggt áfall sé einatt óréttlátt og óverðskuldað. En séð frá hærri sjónar- hól er það oft aðeins veitt í því skyni að styrkja lundar- farið og til ágætis fyrir þann er fyrir verður. Inn í leynd- ardóm þjáninganna fá jarðheimsbúar aldrei að fullu skygnzt. Tak öruggur og glaður á herðar þér hverskonar raun, og er hulunni verður lyft mun gátan ráðast við ljós æðra lífs. p. þ.

x

Straumar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.