Straumar - 01.10.1929, Síða 9

Straumar - 01.10.1929, Síða 9
S TBAUMAR 151 Biblíurannsóknir. Frh. R ó m v e r j a b r é f i ð er lengsta bréf Páls postula. Eins og nafnið bendir til, er það ritað til kristna safnað- arins í Róm, sem mönnum er ókunnugt um, hver stofnaði, en var orðinn talsvert stór og máttugur á síðari árum Páls (eftir 55). Páll hafði lengi hugsað sér að fara til Rómaborgar, höfuðstaðar heimsins, þar sem allar leiðir komu saman, og hafði látið það oft í ljós, og má gera ráð fyrir, að söfnuðurinn í Róm hafi biðið þess með óþreyju að kynnast hinum mikla postula heiðingjanna. En hingað til hafði Páll ekki getað komið. Páll er nú í Korintu á þriðju kristniboðsferðinni og er á förum þaðan austur til Jerúsalem með samskotaféð til safnaðarins þar. En áður en hann fer þaðan (56 e. Kr.), skrifar hann bréfið til safnaðarins í Róm. Geta legið til þess ýmsar ástæður. Hann hefir viljað afsaka, að hann hverfur nú aftur austur á bóginn og lof- ar þeim komu sinni við fyrsta tækifæri. Og honum mun líka hafa verið hugleikið að hafa áhrif á trúarskoðanir safnaðarins, sem hann hefir séð fyrir, að mundi verða áhrifamikill innan kristninnar. Og einkum hefir hann viljað innræta þeim skoðun sína á sambandi kristninnar við gyðingdóminn, sýna þeim fram á þá skoðun sína, að kristnir menn væri lausir undan oki lögmálsins. Bréfið er þess vegna mjög vönduð guðfræðileg rit- gerð, vandlega niðurraðað. Páll gerir fyrst grein fyrir kenningu sinni, , snýr sér svo að vandamálinu, hví Gyð- ingar höfnuðu Kristi, og síðasti kaflinn er svo áminningar. Síðasti kapítuli hefir að geyma kveðjur til íjöldamargra manna, sem augsýnilegt er að Páll þekkir persónulega. En nú sést annars á bréfinu, að Páll hefir engan mann þekt í Róm. Það er því álit manna, að 16 kapítulinn til- heyri ekki bréfinu, heldur sé kafli úr bréfi til safnaðarins í Efesus í Litlu-Asíu, þar sem Páll hafði dvalið lengi og þekti því fjölda manna. Hvernig á því stendur, að þessi kafli hefir lent aftan við Rómverjabréfið, er ekki gott að

x

Straumar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.