Straumar - 01.10.1929, Qupperneq 10
seg-ja, en hann hefir verið þar svo iengi sem hægt er að
rekja. — Hver áhrif Rómverjabréfið hefir haft á söfn-
uðinn í Róm er ekki gott að segja, en svo sýnist, sem hann
hafi fylgt Páli að málum. Rómverjabréfið hefir hinsvegar
haft ákaflega mikil áhrif á guðfræði kirkjunnar, því að
alt fram á þennan dag er guðfræði þess víða talin óskeikul,
og til þess vísað til söhnunar guðfræðilegum setningum.
Er víst óhætt að segja, að ekkert rit N. T. hefir haft önn-
ur eins áhrif á trúfræði kristninna og það.
Korintubréfin. Árið 50 kom Páll á 2. kristniboðsferð-
inni til Korintuborgar, sem liggur í Grikklandi á eiðinu
milli Korintufjarðar og Æginafjarðar. Korinta var ein
mesta verzlunarborg við Miðjarðarhaf til foma, fjölmenn
mjög og fjörug, en svo svallsamt var þar, að óvíða var
verra. Páll sneri sér þar fyrst til Gyðinga, sem þar voru
búsettir, en varð lítt ágengt, og fjandsköpuðust þeir við
hann. Þá sneri hann sér til heiðingjanna, vafalítið lægstu
stéttanna, þræla og hafnarverkamanna, ómentaðra og ósið-
aðra. Með þeim stofnar hann stóran söfnuð og dvelur þar
hjá þeim meir en ár. iSíðan hvarf hann burt til Antiokiu.
En árið eftir, 52, er hann kominn til Efesus og fær þang-
að nokkru seinna allljótar fregnir af siðferði safnaðarins,
og skrifar þeim hvert bréfið á fætur öðru, 4 alls.
Fyrsta bréf hans er nú týnt, en Páll getur um það
í 1. Kor. 5, 9. Mun það hafa verið harðort mjög, en hvergi
nærri náð tilgangi sínum. Páll sendir þá lærisvein sinn
Timoteus, landveg suður Grikkland til Korintu, Hefir
Timoteus átt að taka ofan í safnaðarmenn. En litlu eftir
brottför hans fær Páll bréf frá Korintu, og þá skrifar
hann þeim langt svarbréf, og það er það bréf, sem nú er
kallað
Fyrra Korintubréfið. Það sendir hann sjóveg, og býst
við, að það verði komið á undan Timoteusi, því að ekki er
nema 3 daga sigling frá Efesus til Korintu, og skipaferðir
voru tíðar þar á milli. Bréfið mun ritað snemma á árinu
55 í Efesus, en þar dvaldi Páll frá 52—55. Efni bréfsina
er um ólagið á söfnuðinum í Korintu, bæði í siðferðileg-
um efnum og trúarlegum, og eins átelur Páll þá fyrir