Straumar - 01.10.1929, Side 12
154
S T R A U M A 11
Nokkru seinna, í janúar 56, kemur Páll til Korintu
og dvelur þar 3 mánuði og skrifar þaðan Rómverjabréf-
ið. Sýnist þá samkomulagið vera í bezta gengi, en anh-
ars vitum vér ekki meir um Korintusöfnuðinn.
Galatabréfið. Það er allmikið vafamál, til hverra þetta
bréf Páls er skrifað. Til forna voru tvö héröð í Litlu-Asíu
nefnd „Galatalönd". Var annað ríki það i norðanverðri
Litlu-Asíu, sem Gallar stofnuðu ]?ar 278 f. Kr. Höfuðborg
þess ríkis var Ancyra (Angora), sem nú er höfuðborg
Tyrkjaríkis. Hitt „Gala,talandið“ var rómverska skattland-
ið í sunnanverðri Litlu-Asíu, þar sem Páll hafði farið um
á 1. og 2. kristniboðsferðinni. Það var fjölment land og
blómlegt og lá í alþjóðaleið, þar sem hitt Galatalandið
var lítið og afskekt. Af ýmsum ástæðum, sem ekki er unt
að telja hér upp, er það álit flestra fræðimanna, að Galata-
bréfið sé ritað til safnaðanna í Suður-Galatalandi, sem
Páll hafði sjálfur stofnað. Ætti þá bréfið að vera skrifað
frá Korintuborg á 2. kristniboðsferð á r i ð 5 0.
Tilefni bréfsins er það, að gyðinglundaðir kristnir
menn, líklega útsendir frá Jerúsalem, höfðu komið til safn-
aðanna, og predikað, að þeir, sem voru upprunalega heiðn-
ir, yrðu að gangast undir lögmál Gyðinga, ef þeir vildu
heita kristnir. Jafnframt höfðu þeir gert lítið úr Páli á all-
ar lundir. Svo sýnist, sem þessum mönnum hafi orðið mik-
ið ágengt á skömmum tíma, svo að söfnuðurinn hafi orðið
Páli frásnúinn. Þetta fréttir svo Páll til Korintuborgar.
Verður hann bæði sorgmæddur og reiður, og ritar þeim
bréfið. Það er þrungið af ákafa og bardagahug. Ásakar
hann Galatamenn fyrir hringlandahátt, en ver sig og sitt
mál. Byrjar hann með því að segja þeim æfisögu sína í
stuttum dráttum, til að sýna þeim fram á, að hann hafi
postuladóm sinn frá Kristi einum, en hann sé ekki læri-
sveinn Péturs og hinna postulanna, eins og þeir höfðu
ásakað hann um. Þessi kafli bréfsins er því ákaflega mik-
ils virði sem söguheimild. Svo virðist, sem bréfið hafi
borið tilætlaðan árangur, því að Páll minnist á söfnuð-
ina í Galatalandi sem fyrirmynd í 1. Kor. 16, 1.
Efesusbi'éfið. Þetta bréf er eignað Páli og hefir verið