Straumar - 01.10.1929, Page 14
156
STRaUMAR
bréfi frá 96 er þess getið. Efni bréfsins er líkt og í öðrum
bréfum Páls, fyrst fræðikafli guðfræðilegur og síðan á-
minningar.
Filippibréfið. Þetta bréf er skrifað til safn-
aðarins í Filippíborg í Makedoniu, en það var fyrsti söfn-
uðurinn sem Páll stofnaði í Evrópu. Það var á 2. kristni-
boðsferðinni. Páll elskaði þennan söfnuð mjög mikið, og
þá af honum gjafir, sem annars var ekki venja hans, því
að hann vann jafnan fyrir sér með iðn sinni, tjaldgjörð.
Páll er í varðhaldinu í Róm, þegar hann skrifar bréfið.
Þangað hafði hann fengið sent fé frá Filippisöfnuðinum
og skrifar nú bréfið til að þakka fyrir peningana og sendir
bréfið til baka með sendimanninum, sem færði honum þá,
Epafroditusi. Líklega er bréfið skrifað seint á varð-
haldstíma Páls í Róm eða árið 62, og er því síðasta
bréfið, sem til er frá honum, svo að víst sé. f þessu bréfi
talar Páll mikið um gleðina (t. d. 4,4.) og því hefir það
verið kallað „bréfið um gleðina".
Kólossubréfið. Kolossa var til forna mikil borg
í Litlu Asíu suðvestanverðri, en um daga Páls var henni
mjög farið að hnigna og loks lagðist hún í rústir. Páll
stofnaði ekki söfnuðinn þar í borginni, heldur Eprafras,
sem mun hafa verið lærisveinn Páls, og mun hafa beðið
Pál að skrifa söfnuðinum, vegna þess að orö hans hafa
mátt sín mikils. Ástæðan var sú, að bryddað hafði á ýms-
um varhugaverðum skoðunum í söfnuðinum. Þær voru af
gnóstiskum uppruna, en gnóstikar (gnosis þýðir
speki) voru guðspekingar þeirra tíma. Þeir lögðu mikla
áherslu á „speki“, sem þeir svo kölluðu, höfðu ýmsar
hugmyndir um guðdóminn, samband hans við mennina,
lögðu áherslu á meinlætalifnað o. s. frv. Þessi stefna var
1 ýmsum myndum all útbreidd í vestanverðri Asíu fyrir
daga kristindómsins. Sú grein hennar, sem komizt hafði
inn í kolossasöfnuðinn, sýnist hafa verið af gyðingslegum
uppruna. Til þess að hnekkja þessari stefnu í söfnuðinum
skrifar Páll bréfið úr fangelsinu í Róm líklega árið 61, um
líkt leyti og Efesusbréfið, (ef hann hefir skrifað það).
Sumir hafa viljað efast um, að Páll hafi skrifað