Bókavinur - 01.08.1923, Síða 4

Bókavinur - 01.08.1923, Síða 4
4 BÓKAVINUR css að vænta heiðraðs svars y'ðar sem fyrst. Fundir verða ekki haldnir fyr en síðar.“ Árangurinn varö sá, að nokkru síðar voru haldnir fimm fyrirlestrar af þeim mönnum og um það efni er hér segir: > 1. Prófessor Sigurður P. Sívertsen, fulltrúi guðfræðisdeildar háskól- ans: „Nútímaguðfræðin.“ 2. Síra Friðrik Friðriksson, fulltrúi K. F. U. M.: K. F. U. M., saga þess, starf og stefna. 3. Síra Jakob Kristinsson, fulltrúi Guðspekisfélagsins: Stefnuskrá Guðspekisfélagsins. 4. Prófessor Haraldur Níelsson, full- trúi Sálarrannsóknafélagsins: Af- staða Sálarrannsóknafélagsins til kirkjunnar. 5. Síra Bjarni Jónsson, dómkirkju- prestur: Kirkjan og Kristur. Að þessum fyrirlestrum loknum, var haldinn umræðufundur, þar sem öllum var frjálst að taka til máls. — Þar hófu máls, auk þeirra áðurtöldu: Vilhj. Þ. Gíslason, form. Stúdenta- félagsins, Sig. Kristófer Pétursson, rithöfundur, cand. theol. Sigurbjörn Ástv. Gíslason, Þórður Sveinsson læknir, frú Aðalbjörg Sigurðardótt- ir, fröken Ólafía Jóhannsdóttir, Ein- ar Jochumsson trúboði, síra Kristinn Ðaníelsson, Páll V. G. Kolka læknir, Árni Jóhannsson bankaritari og nokkrir fyrirspyrjendur. Umræðu- fundurinn hófst kl. 8 e. h. og endaði ekki fyr en-eftir miðnætti, 24 ræður voru haldnar (auk fyrirspurna). Trúmálafundir þessir voru vel sótt- ir og hafa vakið mikla athygli bæði hér og annars staðar. Til dæmis tók fólkið að þyrpast að umræðufundin- um, sem haldinn var í stærsta fund- arhúsi borgarinnar, einum klukku- tíma áður en húsið var opnað, og fyltust brátt öll sæti, gangar fram með veggjum og forstofa — og urðu samt margir frá að hverfa. Þessum fyrirlestrum ásamt um- ræðunum var síðan safnað saman og prentaðir í eina bók, er heitir: Trú- málavika Stúdentafélagsins. Erindi og umræður, með formála eftir for- mann Stúdentafélagsins, Vilhj. Þ. jGislason: Aðdragandi og upphaf. Bókin er að stærð um 200 bls. í 8 bl. broti, prentuð með þéttu letri á góðan pappír. - Öll hin vandaðasta. Verð: Heft í þykka kápu kr. 6,00. 1 góðu bandi skrautlegu kr. 8,75. Heilsufræði ungra kvenna. í ágústmánaðarlok kemur á bóka- markaðinn ný bók eftir norskan kvenlækni, Kristiane Skjerve, sem heitir: Heilsufræði ungra kvenna, í íslenskri þýðingu eftir Dýrleif Árna- dóttur cand. phil. frá Skútustöðum. Bók þessi er þannig til orðin, eins og getið er um í byrjun bókarinnar: „Fyrir tilmæli Thorsnes kvenfélags bauð þjóðráð norskra kvenna ti! samkepni í mai 1922 um verðlauna- iit. Skildi það bera titilinn: Heilsu- fræði ungra kvenna. Handbók til fræðslu og leiðbeiningar mæðrum og kenslukonum í skólum og heimahús- um,“ Verðlaunin voru kr. 500.00. Dómnefndina, sem kvennaráðið skipaði, sátu þessir menn: Prófessor dr. Brandt, Johanne Feilberg Iæknir, frú Nico Plambro, Marie Kjölscth, læknir, formaður Kvennaráðsins, Gina Krog, frú Katti Anker Möller og yfirkennari H. Raabe. Þessari bók var einum rómi dæmd verðlaunin á fundi, sem nefndin hélt 10. júní 1914.“ í bókinni eru 15 myndir. Vegna þess, að bókin er enn þá ekki komin út, er ekki hægt að birta hér ritdóma um hana, en í þess stað kemur hér kafli úr formála bókarinnar, sem skrifað hefir skurð- læknir Guðm. Thoroddsen, kennari við Háskóla íslands: „Hér á landi hefir lítið sem ekk- ert verið ritað um margt það, sém þessi bók tekur til meðferðar. Og þó má segja, að fátt sé mönnum nauð- synlegra að vita en um byggingu og eöli síns eigin líkama, getnað og fæð- ingu. Það er spurning, sem hver unglingur, fyr eða síðar, leggur fyr- ir sjálfan sig og aðra, og er þá mik- ið undir því komið, að rétt og nær- gætnislega sé svarað. Á erlendum málum eru til fjölda- margar bækur um þetta efni, en mik- ill meiri hluti þeirra er með þvt marki brendur, að segja aðeins und- an og ofan af og taka svo á efninu, sem það væri einhver leyndardómur, er ekki mætti tala hátt um, og marg- ar þeirra svo, að best er að vera laus við þær. Þess vegna var það mikill vandi að velja til þýðingar bók, sem íslenskum konum mætti koma að gagni og þykir mér þýðanda og út- gefanda hafa tekist vel, þar sem bók Kristjönu Skjerve’s varð fyrir val- inu. Bókin talar blátt áfram og hispurs- laust um það, sem um er að ræða cg kennir mönnum hvernig best er að skýra getnað og fæðingu manns- ins fyrir börnum og unglingum, með þvi, að taka jurtir og dýr til saman- burðar og sýna þeim að alstaðar, og lika hjá manninum, eru það sömu íyrirbrigðin, sem þurfa að gerast til þess að ný vera myndist. Þar að auki gefur bókin mörg góð ráð og bendingar um það, sem lýtur að tíðum kvenna, meðgöngutíma, fæðingu og sængurlegu og meðferð ungbarna, og væri vel, ef konur vildu notfæra sér þau ráð. T. d. vil eg benda á eitt, sem alt of lítið mun notað hér á Iandi; en hverri konu mun þykja ómissandi, ef hún hugs- ar um það og reynir, en það er not- kun tíðabinda..... -----Að lokum vil eg óska þess. að bók þessi verði lesin með athygli og umhugsun og þykist þess þá full- viss, að hún verði mörgum að gagni.“ Bókinni er skift í 10 kafla og hverjum kafla síðan í greinir. Efni kaflanna er skift þannig: I. Þróum og æxlun jurta og dýra. II. Kynfærí mannsins. III. Æskuskeiðið. IV. Kjónabandið. V. Meðgöngutíminn. VI. Fæðing og sængurlega. VII.

x

Bókavinur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókavinur
https://timarit.is/publication/693

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.