Bókavinur - 01.08.1923, Blaðsíða 5

Bókavinur - 01.08.1923, Blaðsíða 5
BÓKAVINUR 5 Næring hvítvoSungsins og fóstur. VIII. Kynsjúkdómar. IX. Uppeldi og umsjá æskulýSsins. X. Erföir. Eftirmáli þýðandans er svohljóS- andi: „Mjög miklum vinsældum hefir bók þessi átt a'ö fagna á Noröurlönd- um og oft verið gefin út í geysistóru „upplagi". Eg hefi þýtt hana af því, að eg er viss um, að hún getur veriö mjög þörf íslenskum lesendum. Fátt hefir verið gefi'ð út á íslensku um þessi efni. Fræösla um þau er lífs- nauðsynleg hér, ekki síöur en annars staöar, því a'ö fáfræöi og rangar hug- í myndir rikja hér meðal almennings um flest þau mál, sem bókin fjallar um. Ósiösemi og ómenning seinni ára hgfir falliö hér í góöan jaröveg, og er strax tekin að bera ávexti. Kyn- sjúkdómar hafa t. d. aukist svo, aö taka hefir oröiö í taumana meö lög- gjöf. Hispurslaus fræðsla um kyn- ferðismálin („Det sexuelle Spörgs- maal“) er öflug vörn gegn þessum mannkynsmeinum. Slíka fræöslu gefur bók þessi meðal annars. Eg hefi víðast notað alment alþýðumál, cn þar, sem það ekki hrökk til, eru notuö orð ný og gömul um læknis- fræöislega hluti og stuöst mest viö það, sem próf. Guðm. Hannesson notar. Oft var erfitt að finna við- kunnanleg orð um margt er laut að kynferðismálunum, og er ekki víst að mér hafi alstaðar tekist það. Mest: sægur er til af orðum um slíka hluti í málinu, en flest bera einhvern klám- blæ, og sýnir þaö best hversu háska- samlega óheilbrigt er hugsað og tal- að um þessi mál hér á landi. Bókina hefi eg þýtt í naumum tómstundum mínum í vetur, og biö góða lesendur að fyrirgefa mérþótt mér hafi ekki tekist að snúa henni á gott mál. Tnnilega þakka eg Guðm. Thor- oddsen lækni fyrir þann mikla greiða að lesa yfir þýðinguna og mæla með bókinni." Bókin kostar bundin kr. 6.50, heft 4-75. Jólagjöfin kemur út á hverju hausti. Hér birtist útdráttur úr ritdómi um síðasta heftið, úr dagblaðinu Vísi: „í öörum löndum eiga menn það vist, a'ð fá stór og fögur jólarit á hverju ári, prýdd hinum fegurstu myndum, og eru þau einn þátturinn í jóladýrðinni og jafnan mjög kær- komin. Hér á landi hafa menn gert tilraunir til að gefa út slík rit, en vegna fólksfæðar hafa þau ekki bor- jið sig og fljótlega dottið úr sögunni. Með miklum dugnaði og fyrirhöfn hefir Steindór Gunnarsson gefið út Jólagjöfina undanfarin ár, og er nú 6. árgangur nýkominn út: Er hann vel úr garði gerður og fjölbreyttari að efni en hinir fyrri. Hafa margir góðir menn lagt sinn skerf til hans, bæði rithöfundar, skáld og listamenn. Nýbreytni. Oft hefir verið erfitt fyrir þá menn, er hafa átt heima fjarri póst- afgreiðslustöðum að panta bækur gegn póstkröfu sökurn fjrlægðar. Nú hefir póststjórnin bætt úr þessu. Að- alpóstmeistarinn, S. Briem, auglýsti í Lögbirtingablaðinu, að öll póst- hús hér á landi, póststofur, póstaf- greiðslur og bréfhirðingar annist frá x. okt. n. k. innheimtu á innlendum j)óstkröfum. Þá hefir og aðalpóstmeistari aug- lýst í sama blaði, að rnenn gætu skrifað sig fyrir dönskum og norsk- um blöðum á öllum pósthúsum hér á landi og borgað áskriftargjaldi'ð s.amkvæmt verðskrá, er verður til sýnis í þeim. Blö'ðin verða þó aðeins flutt með póstskipum og póstbátum á hafnar- staði og verða áskrifendur því, um leið og þeir borga blaði'ð að skýra frá á hvaða hafnarstað þeir óska að það sé flutt. — Alt þetta gerir mönnum greiðara fyrir um bóka og blaöakaup og á póststjórnin þakkir skyldur fyrir að koma á þessari breyt- ingu, sem er til mikilla bóta. Aðrar bækur. Þessar bækur hafa fengið ágæta ritdóma, þótt ekki sé unt að birta útdrátt úr þeirn sakir rúmleysis. fslenskur rílrisborgari. Handbólc iyrir almenning um stjórnarlóg ís- lands o. fl., eftir cand. jur. Jón Kjart- xtnsson. Þá bók þarf hver ma'ður a*ð eiga. Verð kr. 5,00, heft. Samræðissjúkdómar eftir Guðmund prófessor Hannesson. Nauðsynleg bók unt efni, er lítið hefir verið áð- itr ritað. Sæm. prófessor Bjarnhéðins- son fór mjög lofsamlegum ummæl- um urn hana. Bókin er gefin út a'ð dlhlutun stjórnarráðs íslands. Verð : beft kr. 2,65, t bandi kr. 3,50. Uppsprettulindir eftir Guðmund skáld Friðjónsson. Þetta eru fyrir- lestrar, er skáklið flutti hér i höfuð- staðnum veturinn 1920—21. Bækur Guðm. skálds Friðjónssonar þarfnast er.gra nteðmæla, þær rnæla best með sér sjálfar. Verð kr. 4,00. íslensk ástaljóð. Bók þessi var gefin út fyrir tveim árum, og rann brátt út og er nú uppseld. Önnur út- gáfa vérður prentuð um næstu ára- mót. Hlýir straumar, ritgerðir og ræð- ur um æskulýð og kristindóm eftir Olfert Ricard. Þýtt hefir Theodór Árnason. Ilöfundur bókar þessarar er hinn ötuli og ástsæli stafsmaður K. F. U. M. í Danmörku. Bækur hans eru mjög eftirsóttar á Norðurlöndum og eru það bestu meðmælin. Verð: heft kr. 5,00, í bandi kr. 6,50 og 7,50.

x

Bókavinur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókavinur
https://timarit.is/publication/693

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.