Alþýðublaðið - 30.10.1919, Qupperneq 3
Krá Svíþjóð.
Metallogi-apliiska Forsknings-
institntet
heitir stofnun, sem Svíar eru ný-
búnir að koma á í Stokkhólmi.
Það er vísindaleg stofnun, sem á
að styðja málmiðnaðinn sænska.
Líthá
eða Lithauen, eitt af nýju rikjun-
um við Eystrasalt, heflr útnefnt
konsúl i Stokkhólmi, og er það
fyrsti konsúllinn, sem það útnefnir.
Frá Svíþjóð til Litháar er sjóleið
ekki lengri en úr Reykjavík til
Hornafjarðar.
Stór verðlann.
Fyrir beztu uppástunguna um
hvernig haga skyldi brú yfir
Hamarbyleden ved Astrahólmana
var heitið þrennum verðlaunum,
og hlutu þýzk verkfræðinga-firmu
1. og 3. verðlaun, en 2. verðlaun
fékk sænskt verkfr.firma. 1. verð-
laun voru 15 þús., 2. verðl. 10
þús. og 3. verðl. 5 þús. kr. Auk
þessara verðiauna var tveimur
keppendum eftir tillögu dómnefnd-
ar veitt 2500 kr. verði. hvorum.
Nýtt ráðhús
er verið að reisa í Stokkhólmi.
Áætlað er að það kosti liðlega 11
milj. króna, þegar það er fullgert.
Súlítelma.
í Súlítelma í Norður-Svíþjóð,
við landamæri Noregs, eru miklar
koparnámur, en rekstur þeirra
hefir nú verið, stöðvaður um
hríð, þar eð námurnar geta ekki
komið frá sér málminum. í Súlí-
telma eru nú 700 þús. smálestir
af koparkís, sem safnast hafa
íyrir þar.
Brezku óveðurs-Tarðarnir.
Óveðurs-varðarnir á Bretlands-
eyjum, sem ekki hafa verið not-
aðir nú á stríðsárunum, tóku til
starfa aftur í ágústmán. síðastl.
Yarðarnir gefa óveðursmerki, i
þegar búast má við óveðri, í því I
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
héraði, sem varðinn er í, en óveð-
ur er talið, þegar vindhraðinn er
meira en 8 (eftir Beauforts mæli-
kvarða).
Alls eru á Bretlandseyjum 62
óveðurs-varðar; þar af er 41 á
Englandi, 6 í Vales, 10 í Skot-
landi og 5 í írlandi.
Ráðgert er að reisa fleiri varða
á þessu, og komandi ári.
Bretar bönnuðu sendingu veður-
skeyta héðan til Danmerkur með-
an á stríðinu stóð, til þess að
Þjóðverjar gætu ekki notað þau
til þess að sjá fyrir veðrið, þegar
þeir voru að leggja af stað í loft-
skeytaárásir á borgir Bandamanna.
fossa-afl
á VestfjSrðnm.
í sumar voru tveir norskir
verkfræðingar, með fjóra íslend-
inga sér til aðstoðar, að mæla
fossaafl nokkurra vestfirðskra
fallvatna.
Komust þeir að þeirri niður-
stöðu, að úr Dynjanda í Arnar-
flrði og Mjólkárfossum myndi
mega fá 50—60 þús. hestöfl, en
til þess að ná því afli, þyrftu 500
manns að starfa þarna að vatns-
virkjun í 6 ár.
Brú jfir Iróarskeldufjörð.
Danir ætla nú að gera járn-
brautarbrú yfir Hróarskeldufjörð,
sem skerst inn í Sjáland norðan-
vert og er nær 50 rásta langur.
Brúin á að vera svo há, að
skip geti siglt unair hana, og er
hæðin áætluð 35 stikur (liðl. 100
fet; til samanburðar má geta
þess, að loftskeytastengurnar á
Melunum eru um 250 feta háar).
Stærsta hafið milli stöpla á að
vera 30 stikur.
3
Cekjur lanðssjóðs.
Fjáriög þau, sem síðasta aiþingi
samþykti, áætlaði tekjur lands-
sjóðs á komandi ári nær 5Va
miljón króna.
Ábúðar- og lausafjárskatturinn
er 100 þús., húsaskatturinn 40
þús., tekjuskatturinn 400 þús. og
dýrtíðar- og gróðaskatturinn 100
þús. kr. Vitagjald 100 þús. kr.,
útflutningsgjald (aðallega á sild og
saltfiski) 600 þús., áfengistollur
(þar með óáffngt öl, áfengislaust
vín, ávaxtasafi eg gosdrykkir)
125 þús, tóbakstollur 400 þús.
kr., kaffi- og sykurtollur 525 þús.
kr., vörutollur 750 þús.kr., stimp-
ilgjald 500 þús. kr., pósttekjur
200 þús. kr. og símatekjur 550
þús. kr.
jtytizku máltól.
Einkennilegt atvik kom nýlega
fyrir í fangelsi einu í Danmörku.
Maður nokkur hafði brotist inn í
hús í Hellerup (nálægt Kaupmanna-
höfn) og stolið þar 150 kr. í pen-
ingum, auk annars, sem lítið pen-
ingagildihafði. Hannnáðistskömmu
síðar og hjá honum fanst þýfið. Við
yfirheyrsluna neitaði hann að vita
nokkuð um stuldinn, en fangi sem
var í næsta klefa við hann með-
an á rannsókninni stóð, kvaðst
vera sekur um hann. Samt sem
áður var framburður þeirra ekki
tekinn gildur, en þjófurinn dæmd-
ur í 4 ára fangelsi. Þá játaði hinn,
að þjófurinn hefði gint sig til að
taka á sínar herðar glæpinn, og
til samtals höfðu þeir notað sal-
ernispípu, sem lá á milli klefanna.
Um daginn og veginn.
Hvorri kliðinni á að trúai
í Morgunblaðinu í gær er sagt
frá því á öftustu bls. að þýskur
togari er hingað hafi komið, hafi
sagt að kolin kostuðu ekki nema
100 mörk smálestin í Þýskalandi,
en á fremstu síðu blaðsins er
sagt frá því í símskeyti frá Khöfn,