Fréttablað Vöruhússins - 17.06.1914, Blaðsíða 2

Fréttablað Vöruhússins - 17.06.1914, Blaðsíða 2
FRETTABLAÐ VORUHUSSINS urðum stöðugt að auka vörubirgðir vorar. Einnig sáum vér oss fært að útvega fleiri vör- ur, með þeim gæðum og því lága verði sem búið var að gjöra Vöruhúsið kunnugt um alt ísland. Hinn 1. des. fluttum vér á »HóteI Island«, þar sem vér nú erum og hinn 19. apríl f. á., tókum vér á leigu búð þá er hr. R. Anderson hafði og samtímis byrj- uðum vér karlmanna- fatasaumas-tofu í félagi við hr. Anderson. Nú er Vöruhúsið orðið einhver stærsta verzlunin í bænum og selur aðallega allskonar nærfatnað og karlmanna- fatnað. Vér klæðum þá nöktu frá hvirfli til ilja fyrir einar 29 kr. 50 a. og vér látum þá hafa staf til að styðjast við eigi þeir langa leið heim. Hvað veldur því að vér getum svona sama sem gefið viðskiftamönnum voruin það sem þeir kaupa af oss? Oss er þetta ekkert leyndarmál. Austurstræti. Það hefir verið og er órjúfanleg megin- regla vor að taka aldrei stærra stig í einu en vér auðveldlega gátum stigið og að útvega sem beztar vörur, fyrir sem lægst verð. Og vér höfum alt af látið hönd selja hendi. Vér höf- um ekki látið skilamennina borga fyrir óskila- mennina — það er ráðning gátunnar. Allir sem hafa lánsverzlun hljóta að verða fyrir ein- hverju tapi af völdam óskilamanna. Og það tap verða hinir skilvísu kaupendur að borga. Nú er vörumagn það er vér seljum árlega átta sinnum meira en vér selduin fyrsta árið. Þetta er sönnun, full sönnun þess að eng- inn selur ódýrari eða betri vörur en vjer. Þetta litla blað á að koma út einu sinni á ári og skýra frá vörum vorum og verði á þeim. Lítið inn til vor áður en þér festið kaup annarsstaðar! Vöruhúsið er hezt! Vöruhúsið er ódýrast! Hér er bezt að stöðva bílinn! Nú erum við komnir að V ö r u h ú s i n u . Gistingin uppi á lofti og gæðavörur niðri — hvers fær mannlegt auga fremur óskað! Og svo er eitthvað þar fyrir alla. Unga og gamla, smáa og stóra, ríka og fátæka. Ef yður líka vörurnar er þér kaupið hjá oss, þá segið vinum og kunningjum yðar frá þvi. En ef þér eruð óánægður, þá gerið oss þann greiða að láta það í Ijósi við oss, og vér mun- um gjöra alt til þess, að gjöra yður ánægða. Anœgdir viðskiltavmr, er efling vor.

x

Fréttablað Vöruhússins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablað Vöruhússins
https://timarit.is/publication/703

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.