Frjálst land - 13.10.1941, Síða 1

Frjálst land - 13.10.1941, Síða 1
* FMLST UNl RITSTJÖRI: JÖSEF M. THORLACIUS I. árgangur Rvík, mánudaginn 13. okt. 1941 BLAÐ OHÁÐRA MANNA 1. tölublað Er lýðræöið í landinu orðið að þj óðstj órnareinræði Alþingi þjóðarinnar kemur saman í dag. Starfshættir þessa þing verða að vera með öðrum hætti en undanfarandi þinga, þar sem hangið hefir verið mánuðum saman yfir að hrúga upp papp- írslögum, sem að miklu leyti eru þýðingarlaus. Starfshættir þessa þings verða mála á þessu þingi á að vera með röggsemi og festu, þar sem aðalmálin séu leyst á einfald- an og skörulegan hátt og ein- göngu sé unnið með alþjóðar- hag fyrir augum, en ekki frá flokkshagsmuna sjónarmiðum. Á þessum alvarlegu tímum mega þingmenn þjóðarinnar ekki ganga til starfs, sem þiug- menn ákveðins flokks, heldur allir sem einn, sem þingmenn þjóðarinnar allrar. Eitt af þeim mörgu vanda- málum er fyrir þinginu liggja, eru viðskiptasamningarnir við Stóra-Bretland og Ameríku. 1 því sambandi vil ég benda á, að rétt virðist að Alþingi at- hugi þann möguleika, að rifta fisksölusamningnum og láti þá menn sitja með ábyrgðina, sem gerðu þennán samning í óþökk þjóðarinnar. Hvað áfengismálið snertir, þá verður að krefjast þess af þing- inu, að það samþykki lokun á- í en gis verslunar innar meða n érlent setulið er í landinu, því þó eðlilegast sé, að áfengið sé frjálst og hver og einn geri það upp við sjálfan sig hver afskifti hann hefir af því, þá er það ekki réttlætanlegt undir núverandi Framh. á bls. 3. Að yfirsýn bestu og vitrustu manna þjóðarinnar, hefir það frá öndverðu verið álitið sjálf- sagt, að stjórnskipulög og stjórnarskrá landsins væru helgir dómar, er ættu svo sterk- ar rætur í réttarmeðvitund þjóð- arinnar, að þeir menn væru vargar í véum, er leyfðu sér á enin eða annan hátt að svívirða þá. Þetta hefir verið sá hyrn- mgarsteinn er lýðræðið í land- inu og sjálfstæði þjóðarinnar hefir verið bygt á. Lengst af hafa Islendingar átt stjórnmálaskörunga er stað- ið hafa á verði um fjárhagslegt og réttarfarslegt sjálfstæði landsins og sem hafa haft kjark og drenglyndi til að halda fast á málum þjóðarinnar, hvað sem á dundi. En þegar stéttaflokk- arnir tóku að hasla sér völl inn- an íslenskra stjórnmála og sú skoðun varð ríkjandi hjá þeim mönnum er ætluðu að gefa sig að stjórnmálastarfsemi að væn- iegast væri að ganga til starfs í ákveðnum póiitískum stétta- flokki, þótt þeir yrðu við það að ýta niðnr fyrir skörina sum- um af þeim málum, er þjóðar- velferð og jafnrétti bygðist á, þá varð sú breyting að þeir •urðu um ieið háðir þeim þrönga skoðanahring, er sérhver stétta- flokkur hlýtur alt af að vera steyptur í og offruðu um leið því dýrmætasta er nokkur stjórnmálamaður á, en það er sannfæringin, og voru þannig í byrjun sviftir þeim möguleika að starfa sem víðsýnir stjórn- málamenn með alþjóðarhag fyr- ir augum. iVð mvndun stéttaflokkanná hafa komið fram skaðlegar deilur, er hafa raskað jafnvægi milli hinna ýmsu stétta og lam- að eðlilegan vöxt og framþróun atvinnulífsins í landinu í heild. Enda bregður svo við er stétta- ilokkarnir koma fram á sjónar- sviðið, að enginn víðsýnn stjórn- málaskörungur hefir lifað og notið sín meðal þjóðarinnar síðan. Framh. á bls. 2. Um leið og Frjálst Land hefur göngu sína, vill það í stór- um dráttum skýra viðhorf sitt til nokkurra helstu þjóðmála. ATVINNUMÁL. Frjálst Land vill vera á verði gegn því að skapist atvinnu- leysi í landinu — og tryggja atvinnumöguleika hins vaxandi þjóðstofns — með því að berjast fyrir aukinni framleiðslu til lands og sjávar og greiðari aðgangi að rekstursfé og fram- leiðslutækjum og aukinni iðnaðarframleiðslu. VERSLUNARMÁL. Frjálst Land er fylgjandi frjálsri verslun og mun beita sér gegn hverskonar höftum og sérréttindaaðstöðu. UPPELDIS- OG MENNINGARMÁL. Frjálst Land mun stuðla að því að settar séu á stofn upp- eldisstofnanir, þar sem þörf krefur og skólakerfi landsins verði breytt til meiri áhrifa um uppeldi og hagnýta verklega þekkingu í samvinnu við heimilin. Ennfremur að aukin verði fagleg þekking á hinum ýmsu sviðum atvinnulífsins. FJÁRMÁL. Frjálst Land mun stuðla að því, að heilbrigt fjármálalíf þróist í landinu og vera á verði gegn hverskonar fjármála- spillingu. Einnig mun það vinna að því að stjórnarkerfi lands- ins verði gert einfaldara og rikisreksturinn kostnaðarminni en nu er. z IÞRÖTTIR. Frjálst Land vill stuðla að eflingu íþrótta í þjálfunar- skyni og telur það nauðsynlegan lið í andlegu og líkamlegu uppeldi. RITFRELSI — MÁLFRELSI. Frjálst Land mun krefjast þess að ritfrelsi og málfrelsi verði óskert, án tillits til skoðana. LÝÐRÆÐI — ÞINGRÆÐI. Frjálst Land er fylgjandi lýðræði og þingræði. I A Kj I 1,50010

x

Frjálst land

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjálst land
https://timarit.is/publication/709

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.