Morgunn - 01.12.1974, Page 8
86
MORGUNN
af rómversku menntaninni og sem í rauninni lágu fyrir utan
endimörk hins menntaða heims, fyrir Jiað, hve óendanlega
miklu meira þær áttu í eigu sinni af dyggðum og drengskap,
hversu miklu hreinna og sælla líf þeirra var mitt í mennt-
unarleysinu og „barbari“-inu heldur en hinna hámenntuðu
Rómverja. Göfugustu sálir heiðindómsins á þeirri öld hölluðu
sér að hinni svo kölluðu „stóisku" heimspeki, er löngu áður
var upp risin á Grikklandi, og sem með miklu afli hélt fram
dyggð og sjálfsafneitan sem æðsta endimarki mannlegs
anda. Þeir sáu heiminn i hans voðalegu spilling; þeir vissu
af mannfélaginu á leiðinni með að rotna sundur í andlegu
tilliti. En persónulega lifanda guð gátu þeir ekki fundið með
heimspeki sinni, og gátu þar af leiðanda ekki beint hinum
líðandi og leitandi mannssálum þangað. Og svo er ekkert frið-
land fyrir anda mannsins á hinni vondu tíð, þegar hið góða
málefni sannleika og dyggðar sökum hinnar yfirgnæfandi
spillingar verður að lúta hér í lægra haldi. Lífsskoðanin endar
í heilberri svartsýni, sem aftur leiðir til þess, að þessir
heztu menn þessarar ógæfusömu aldar grípa einatt til sjálfs-
morðs svo sem hins síðasta óyndisúrræðis. Svo lengi sem
endurlausnarhugmynd kristindómsins er óþekkt, liggur hin
svartsýna lifsskoðun opin fyrir heimsins beztu mönnum.
Kristindómurinn kemur með von og vissu endurlausnar-
innar. Hann kemur með hina biksvörtu lýsing á hinu sið-
ferðislega ástandi mannfélagsins, þegar gullöld heiðindóms-
menningarinnar rómversku stóð sem hæst. Hann sýnir ofur-
magn syndarinnar eins voðalegt eins og það var, voðalegra
jafnvel en sjálf örvæntingin í huga djúpsæjustu anda heiðin-
dómsins útmálaði það fyrir sér. En um leið og hann sýnir
þessa svörtu mynd, sem knýr hverja sál til að varpa sér
flatri í duftið út af allsherjar-dauðameini mannfélagsins, kem-
ur hann með endurlausnar-evangelíið, þetta: „Yður er frelsari
fæddur“. Og yfir jötunni i Betlehem, fjarri rómversku dýrð-
inni og heimspekismenningunni, hljómar hinn himneski lof-
söngur englanna: „Dýrð sé guði í upphæðum, friður á jörðu
og velþóknan yfir mönnunum!“