Morgunn - 01.12.1974, Síða 73
SONUR SÓLAR
151
Ameuhótep IV ríkti í 17 ár í Egyptalandi, en fyrstu fjögur
árin hafði hann lítil raunveruleg völd, því móðir hans koir-
ungsekkjan Tiy, var þá hinn raunverulegi stjórnandi. Hið sér-
kennilega hugarfar sonar hennar hafði djúp áhrif á hana, og
þóttist hún þar kenna öfl, sem fremur væru guðlegs eðlis en
mannlegs. Ungi konungurinn var bráðþroska, og um átján ára
var hann orðinn raunverulegur stjórnandi þjóðar sinnar.
Þegar Amenhótep var tólf ára varð heilsuleysi hans almennt
áhyggjuefni, ekki einungis fjölskyldu hans, heldur allri þjóð-
inni. Konungsættin yrði aldauða, ef hann eignaðist ekki af-
kvæmi. Eftir langa eftirgrennslan um drottningarefni varð
egypizk stúlka, Nefertítí að nafni, af göfugu foreldri, fyrir val-
inu. Hann var þá run tólf ára gamall, en brviðurin niu eða tíu
ára. Og skömmu eftir brúðkaupið lézt faraóinn, Amenhótep
III, nimlega fimmtugur, og arfleiddi að völdunum þennan
þrettán ára veikbyggða ungling, sem þegar var farinn að sýna
ríka tilhneigingu til að sjá sýnir og dreyma undarlega drauma.
Um ástandið í ríkinu er það að segja, að sigrar Thútmósesar
III og landvinningar og dugandi stjórn Amenhóteps III liöfðu
fyllt musterin verðmætum i gulli, gimsteinum og öðrum dýr-
gripum. Telja sagnfræðingar, að þessi auðæfi hafi haft spill-
andi áhrif á prestastéttina, sem smátt og smátt hafi tekið að
vanrækja heilagar skyldur sínar, spillast siðferðilega. En hér
ber þess að gæta, að ekki var slíkt eingöngu prestunum að
kenna, því faraó Egyptalands var í senn konungur og æðsti-
prestur. En herskár konungur, sem fór ránshendi um önnur
lönd, hefur sem æðstiprestur verið prestastéttinni lítil fyrir-
mynd í góðum siðum. Það má segja að trúarbrögð Egypta hafi
spillzt að ofan og niður úr. Þegar andlegir kostir bregðast lijá
þjóðhöfðingjanum, hverfur andi dyggðar einnig úr muster-
unum.
En spyrja má, livort af svo miklu hafi verið að taka í þess-
um fornu trúarbrögðum Egypta. Um það segir hinn stórmerki
bandaríski dulspekingur og rithöfundur Manly Palmer Hall,
að guðir hinn ýmsu rikishluta hafi verið tákn mikilvægra lífs-