Morgunn - 01.12.1974, Page 88
SKSSKS í STUTTU MÁLI TZXZiSZ,
REISTARÁ 11. SEPT. 74
Ég, sem skrifað hef upp þessa drauma ömmu minnar, geri það
að hennar einlægu ósk að senda þá til tímaritsins MORGUNS.
Hún var búin að mæla þá af munni fram inn á segulband og
bað mig að skrifa þá upp, og var það henni mikið kappsmál
að koma þeim á framfæri í MORGNI, en hún var búin að
vera áskrifandi að því tímariti í mörg ár.
Sama dag og ég lauk við að skrifa upp draumana fékk hún
snert af slagi og hægfara heilablæðingu úr því, og er nær
ógjörningur að skilja hana nú. Hún er fædd 8. jan. 1903 að
Raldurheimi í Ámeshreppi, bjó um tíma í Fljótum í Skaga-
firði en þó lengst hér í Arnarneshr. Var hún bæði berdreym-
in og skáldmælt.
Sigurbjörg Sveinsdóttir, Syðri Reistará,
Arnameshreppi, Eyjafirði.
DRAUMAR SOFFfU GUNNLAUGSDÖ'ITIJR
Fyrsta drauminn sem ég man glöggt, dreymdi mig þegar
ég var 16 ára gömul. Ég átti þá heima í Hvammi i Fljótum í
Skagafirði. Þar var gamall bær og voru í honum moldargöng
eins og ætíð voru í torfkofum. Og þá kemur draumurinn:
I
Mér fannst ég vera stödd í göngunum og var þar fjöldi
fólks að mér fannst. Bærinn er opinn en útifyrir er ekkert að