Útvarpstíðindi - 17.10.1938, Blaðsíða 5

Útvarpstíðindi - 17.10.1938, Blaðsíða 5
OTVARPSTIÐINDI 5 ráðs voru meðal annars byggðar á ‘því, að vegna. orkuaukningar stöðvar- innar, heyrist íslenzka, útvarpið nú víðsvegar út um heim — og því verða dórnar annara þjóða um íslendinga, að því er snertir þetta svið, byggðir á þeirri lifandi. hljóml'st, sem útvarp- ið flytur. — Hafa fleiri breytingar komið til mála? — Já. Nefna má sem nýbreytni, að tekinn verður upp nýr liður á þriðju- dögum. Til bráðabirgða getum við nefnt hann »fræðsluflokk útvarpsins«. — Pessi starfsemi er þannig hugsuð, að tekin verða til meðferðar ákveðin efni, nokkur þriðjudagskvöld í röð og hlustendur hvattir til þess að mynda með s,ér námsflokka, um viðkomandi efni, Fyrirlesari útvarpsins mun, þá til- kynna í tæka tíð, hvaða bóka og a,nn- ara gagna þeir hlustendur skulu afla sér, sem taka þátt í þessum náms- flokkum. Fyrirlesarinn mun síðan skýra viðfangsefnið fyrir hlustend- um með það fyrir augum fyrst o.g fremst, að gera þeim fært að stunda framvegis sjálfsnám í viðkorandi grein. Þess má geta„ að sænska útvarpið vinnur mikið á þennan hátt. — Hvert mun verða fyrsta efnið, sem þannig verður tekið til meðferð- ar? — Það mun verði lestur fornrita, sennilega Eddnanna. Síðar rnunu verða, tekin nátt.úrufræðileg og' sagn- fræðileg efni og e. t. v. fleira. — Eru líkur fyrir fleiri nýjungum? — Ekki nema, þá helzt það, að á fimmtudagskvöldum verður tekinn upp sérstakur þáttur, þar sem fjall- að verður aðallega um hverskonar mannrækt, ef mér leyfist. að orða það svo, — Hvernig er hugsað að þessari mannræktarfræðslu verði hagað? — I þessumi flokki verða flutt er- indi um íþróttamál, heilbrigðismál, bindindismál, ýmis æskulýðsmál og yfirleitt allt, sem að því lýtur að ala upp hrausta og heilbrigða þjóð, a,nd- lega og líkamlega. »Heilbrigð sál í hraustum líkam!a« mætti hafa s,em kjörorð þessa fyrirlestraflokks. — Er þegar ákveðið, hvaða fyrir- lesarar muni koma þarna fram? —- Já, að allmiklu leyti, Otvarpsráð hefir þegar tryggt sér aðsfoð ágætra lækna og íþróttamanna og fleiri áhuga- og fræðimanna á þessum svið- um. — Má svo búas,t við, að aðrir liðir verði með líkumi hætti og verið hefur? — Já, það verða »góðkunningjarnir« útvarpssagan, húsmæðratíminn og þátturinn um daginn og veginn. — Sömuleiðis leikstarfsemin. — Er nokkuð að taka fram um tungumálakennsluna? — Ekki annað en það, að hún verður nú öll að kvöldinu á virkum dögum frá ld. 18,15—19,20. Að síðustu vil ég svo aðeins taka fram, að við reynum, að gera þetta eins vel og við getum, hvað sem hver segir!

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.