Útvarpstíðindi - 17.10.1938, Blaðsíða 14

Útvarpstíðindi - 17.10.1938, Blaðsíða 14
14 ÚTVARPSTIÐINDI stöku gerð loftnets má stilla viðtækið þannig-, að það tekur ekki við raföld- um úr einni átt, nema þá mjög dauft. Pannig má stilla það þannig, að hin- ar truflandi raföldur frá rússnesku stöðinni í Minsk komist ekki í gegnum viðtækið, þó raföldurnar frá útvarps- stöðinni í Reykjavík séu móttekn- ar með fullum styrk og síðan leiddar til sendistöðvarinnar eftir símastreng og útvarpað þaðan aftur á annari öldulengd (488 m.) nokkurn veginn truflanalaust. Endurvarpsstöðina má einnig nota til þess að útvarpa sérstakri dagskrá frá Austfjörðuifij, eins og gert var, er hún, var opnuð. Með núverandi öldulengd (488) heyrist endurvarpsstöðin vel um það svæði, sem henni var ætlað að ná tií (Djúpivogur—Þórshöfn) og jafnvel mun lengra. 1 næmum viðtækjum má heyra, hana á Akureyri og Siglufirði á daginn en á kvöldin um svo að segja allt land. Hinsvegar má búast við, að langdragið verði talsvert minna á daginn, ef nauðsynlegt verð- ur að nota mun styttri öldulengd. G'imnlaugur Brievi. Spurningar hlustentla (Hér birtast nokkrar spurningar frá hlustendum, sem sendar hafa verið Rikis- útvarpinu. En vegna þess, að ekki hefir gefizt tækifæri til að svara þeim í sjálfu útvarpinu, hefir orðið samkomulag um að blaðið svaraði þeim, enda eru sumar þeirra betur fallnar til skriflegs svars en munn- legs). 1. sp.: Ef viðtæki er tekið úr notk- un um lengri tíma, t. a. hálft ár, skemmast þá sýrugeymarnir meira hlaðnir eða óhlaðnir? Svur: Sýrugeymar eiga ávallt að geymast hlaðnir. 2. sp.: Hvernig er bezt að geyma rafhlöðu (þurbatteri) ? Svar: A þurrum en heldur svölum stað, þar sem lítið er um hitalbreyt- ingar. Þorsteinn í Broddanesi spyr: 3. sp.i Er nokkuð til af vopnum fornmanna, svo ,sem öxin Rimmugýg- ur, atgeirinn Gunnars, sverðið Fótbít- ur, sverðið Jökulsnautur og »saxið góða«? Og Þorsteinn bætir við: Ef eitthvað er til af þessum vopnum. og ef þau eru geymd á þjóðminjasafninu, þá ætla ég að láta, það verða mitt fyrsta verk, næst þegar ég kem til Reykjavíkur, að skoða þau. Otvarpstíðindi báru ,s]:u>’n:ngu þessa upp fyrir Matthíasi Þórðarsyni þjóðminjaverði og gaf hann eftirfar- andi svar: Hér á þjóðminjasafninu eru all- mörg vopn. Ýmis af þeim, eru frá söguöldinni og mörg frá sturlungaöld- inni eða yngri. En því miður engin af hinum nafngreindu sögulegu. Eng- inn veit, hverjir hafa, átt þessi vopn, né hvaða verk kunna að hafa verið unnin með þeim. Meira að segja er hér enginn atgeir til og engin öxi, sem

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.