Útvarpstíðindi - 16.10.1944, Side 3

Útvarpstíðindi - 16.10.1944, Side 3
Halldór Kíljan Laxness rifhöfundur Síðan í fyrra átti ég í fórum mínum fyrirheit um langt og gott viðtal við Halldór Kiljan Laxness. Viðtalið, sem birtist í 25. hefti 5. árg. var snubbótt- ara en ég vildi, en það stafaði mest af ]>ví, að þá kom ég til fundar við hann, er hann var að tygja sig lil ferðar úr bænum. Nú er þráðurinn upp tekinn að nýju. Við veljum okkur minnsta herbergið í íbúð Halldórs og setjumst í leðurstóla í gömlum stíl, alsetta látúnsbólum um bríkur og samskeyti. Og við einn vegg- inn stendur forn klukka og nær frá gólfi til lofts. — Þarna sérðu klukku, sem hefur slegið í minni ætt í 150 ár, segir Halldór Kiljan Laxness, og um hana skrifaði ég fyrstu blaðagreinina mína og það fyrsta, sem kom eftir mig á prenti. Þá hef ég líklega verið 12 ára. Þessi grein kom, ef ég man rétt, í Morgunblaðinu. Og vinur minn, Sigurður Guðmundsson, skólameistari, hefur sagt, að með henni hefði ég kynnt mig fyrir þjóðinni, ]>ví þar sagði ég nafn mitt og ætt. Klukkan var fyrst í eigu ísleifs Einarssonar í Brekku á Álftanesi, en liann var langa- langömmubróðir minn í móðurætt. Hann var yfirdómari í Landsyfirréttin- um, en klukkan er frá Edinborg. Nú fór undirritaður, með varfærni, að ympra á „línu“ viðtalsins, langaði til að rekja rithöfundarferil H. Iv. L. og fá Í'TVaRPSTÍÐINDI höfundinn til að segja nokkur orð um liverja bók, ef það væri ekki of nærgöng- ult. — Þú skalt bara hafa það eins og þú vilt, segir Halldór, og er hinn elskuleg- asti, eins og hann eigi sér enga ósk heit- ari en þá, að komast, í Útvarpstíðindi. — Þú ert húsbóndi minn í dag. Ég segi alltaf allt, þegar ég er spurður, en ég man kannski ekki alltaf allt, sem ég á að segja. Eg hafði verið svo forsjáll að hafa mcð mér lista yfir rit H. K. L. og nefndi þau jafnóðum, en rúmsins vegna sleppi ég þeim „stikkorðum“ hér, og ennfrem- ur sumum af mínum ísmeygilegustu spurningum, og á því á hættu að viðtal þetta verði ekki tekið upp í kennslubók í blaðamennsku. Eg kippi líka út úr ýmsu, sem bar á góma meðan ritferill- inn var rakinn, og geymi mér það þang- að til í lokin. Þrátt fyrir allar þessar varúðarráð- stafanir verður þetta mál svo fyrirferðar- mikið að ég verð að neita mér um að lcngja það með eigin hu’gleiðingum. Þetta eintal, sem nú hefst, er því ekki sannleikanum samkvæmt. H. K. L. er ekki nema í meðallagi mælskur, og um sjálfan sig talar hann ekki lengi ótil- neyddur. En þetta eru hans orð: — Fyrstu bók mína, Barn náttúrunn- ar, skrifaði ég þegar ég var á 17. árinu. Þá var ég í Menntaskólanum, og varð 123 1

x

Útvarpstíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.