Útvarpstíðindi - 16.10.1944, Qupperneq 8
Við héidum hátíð
Þœttir frd lýðveldis-
hdtíðinni
Framh.
XV. HIÐ PllÚÐA LIÐ
Gestir allir, fulltrúar erlendra ríkja,
sendiherrar og sérlegir sendimenn eru
komnir á þingpall og með þeim margt
innlendra manna. Þar er mættur Frans-
maðurinn Henri Voillley, svarthærður og
dökkbrýndur, skipaður af frönsku bráða
birgðastjórninni í Alsír sem „déléqué
extraordinairé“ við stofnun lýðveldisins
á íslandi. Þar er Bandaríkjamaðurinn
Louis G. Dreyfus, sem f.vrir viku steig
í fyrsta sinn á íslenzka jörð, skipaður
„ambassador ad hoc“, miðaldra maður,
fastur á svip; — Bretinn E. H. G. Shep-
herd „special ambassador", alvarlegur
á brún; — Svíinn Otto Johansson „en-
voye extraordinaire“, þéttur, Iágvaxinn-
hárprúður maður. Þá er hinn hávaxni
og beinvaxni August Esmarck „ambassa
dor en mission speciale". Rússipn Alexei
Ivrassilnikov, sendiherra Ráðstjórnar-
ríkjanna er einnig mættur í klæðum góð-
um með gullskraut á öxlum.
Lipurmenn hlaupa nú til og svipta
skýlum af sætum gestanna, en þeir setj-
ast nú hver af öðrum og snúa baki í
sunnangjóluna og regn'ið. Þrír hátíðar-
riefndarmenn, Guðlaugur, Jóhanri og
Alexander éru nú komnir á vettvang.
Þeir renna. athugulum augum á börn
vors lands, sem hér eru samansöfnuð,
til þess að hlýða á prógrammið þeirra,
sem framkvæmast skal í dag. Og það
er farið að taka af þeim myndir. Með-
fram götuslóðanum og við pallinn má
128
í snatri telja 27 myndavélar í höndum
allskonar fólks. Þar eru gripir allt frá
gömlum 10 króna kassavélum upp í 2
þúsund krónu filmvélar at' fullkomnústu
ameríkugerð. Og við, sem stöndum ekki
nógu hátt í mannvirðingum til þcss að
komast á ljósmyndafilmur hjá mynda-
tökufólkinu, reynum að Lroða okkur í
fremstu röð, í þeirri von að verða þekkj-
aideg í baksýn á einhverri myndinni.
Og lag Ildga Ilelgasonar „Oxar við
ána“, göngulagið, sem þjóðin hefur tek-
ið ástfóstri við, er leikið án afláts, aftur
og aftur, meðan hið prúða lið gengur
eftir gjánni og nálgast þingstaðinn. Fyr-
TJTVARPSTÍÐINDI