Útvarpstíðindi - 16.10.1944, Page 11

Útvarpstíðindi - 16.10.1944, Page 11
svo 1940. Síðan fór tími minn um liríð mjög í þýðingar. Snéri á íslenzku fimrn bókum eftir Gunnar Gnnnarsson og einni eftir Hemmingway. Bjó til prent- uiiar smásagnasafnið Sjö töframenn 1942. Það voru sögur skrifaðar á ýms- um tímum. Nú lief ég ekki skrifað smá- sögu í mörg ár. Blöðin og tímaritin biðja mig ákaft að skrifa fyrir sig greinar og hugvekjur. 1942 safnaði ég saman nokkru af þessu í bók og kallaði Vett- vang dagsins. Þar var og' greinin um Hallgrím Pétursson, sem ég hafði haft í smíðum í mörg ár. Nú fór ég að snúa mér að íslandsklukkunni, sem er fyrsta bók af þriggja binda skáldverki, sem ég hef hugsað mér að rita. Klukkan koni svo út í fyrrahaust og annað bindi kem- ur fyrir jólin. — En víkjum nú aftur Lalinu að Olafi Kárasyni, sem nú á að koma í lit- varpið. — Þá er bezt að gera tilraun til að leiðrétta misskilning, segir H. K. L. Ég hef stundum orðið var við það, að menn hafa lialdið að Ljósvíkingurinn ætti að vera saga um alþýðuskáldið á íslandi, en það hefur mér aldrei dottið í liug. Ég hafði lengi ætlað mér að skrifa um séníið, og sagan um Ljósvíkinginn á að dæmast eftir því hvort það liefur tekizt vel eða illa. — En er nú ekki efnið að miklu leyti sótt í ævi ísl. alþýðuskálds? — Jú. Ég studdist mikið við ævi- minningár og þjóðlífslýsingu eftir vest- firzkan alþýðumann. En Ólafur Kára- son er náttúrlega allt ahnar maður, þótt ýmsir ytri viðburðir séu tcknir úr lífi Jjessa útkjálkaskálds. Aðeins einstaka sinnum hef ég notað hans eigin orð og stef frá honum. En ekki :er það mikið og varla nokkur setning með öllu ó- breytt. Einna næst honum er farið í þessum Ijóðhendingum í Húsi skáldsins: IIve sæll óg styn: ó, dýrðardásemd skæra, ó, djúpa líf, ó, ríka guðdómshaf. — Það hefur lengi vcrið sagt að póli- tík og önnur dægurmái settu nokkurn svip á bækur þínar. Hvort myndi slíkl vera til bóta eða skaða frá listrænu sjón- armiði? — Þessu er erfitt að svara. Og það er vafamál hvort það er liægt að stillii þessu svona upp. Ekkert er sjálfsagðara en að það, sem cr að gerast í kring um mann hafi álirif á mann. Annars væri það ekkert líf og allra sízt höfundarlíf. Það getur enginn maður verið til, án þess að verða fyrir áhrifum af stjórn- máluin — lífið cr pólitík. — Til livaða bókmenntastefnu væri eðlilegast að telja Ljósvíkinginn? — Það veit maður ekki — Þögn. — Ég cr ekki svo vel að mér. — Bíðum nú við. — Hugsar sig um. — Ég veit það ekki. — Ég veit hvað hann er ekki. Hann er ekki realistiskur, ekki natural- istiskur, — liann er — hann er næstur því að vera rómantiskt verk. Bók um svona efni eins og þctta skáld, hlýtur næstum því að verða í þá átt. — En í hvaða flokk myndu þá bók- menntafræðingar frekast skipa sjálfum þér? — Það hef ég ekki huginynd um. Það er ómögulegt að vita. Svo er mað- ur svo breytilcgur. Sum verkin tilheyra einni bókmcnntastefnu, önnur öðrum. T. d. er verk eins og Ljósvíkingurinn huglæg skáldsaga (subektiv), en bók eins og Islandsklukkan mjög fjarri því að vera lruglæg, hún er mjög hlutlæg (objektiv), eftir því sem nútíma skáld- ^ögur geta verið. Framhald á síðu 134. 191 UTVAHPSTIMNDI

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.