Bankablaðið - 01.12.1984, Blaðsíða 9

Bankablaðið - 01.12.1984, Blaðsíða 9
9 EinvarÖur Hallvarðsson. Ágrip 40 dra starfssögu SÍB A síðasta ári kom út bók um 40 ára sögu SIB. Einvarður Hallvarðsson, hinn gamal- kunni bankamaður og félagsmaður SÍB frá upphafi, tók saman efnið og ritstýrði útgáfunni. I formála bókarinnar sem Hannes Pálsson ritar kemur fram, að um val á ritstjóra hefði vel til tekist, því Ein- varður átti mikinn þátt í stofnun og starf- semi SIB frá upphafi. Það fer ekki á milli mála, að saga banka- stéttarinnar er mjög merkileg og þræðir hennar liggja mjög víða í hinu íslenska þjóðfélagi. Það ber því að fagna því, að þessi saga hefur nú verið skráð. í hófi sem haldið var, þegar bókin kom út, þakkaði Sveinn Sveinsson, formaður SÍB, öllum þeim sem þátt áttu í tilurð bókarinnar. Það er nokkuð langur tími liðinn síðan stjórn SIB undir stjórn Hannesar Pálssonar tók þá ákvörðun að láta skrá 40 ára sögu sam- bandsins, en það mun ekki skipta neinu máli, þegar fram í sækir, heldur hitt, að sagan hefur nú verið skráð á hinn ágætasta hátt. Bókin var gefin út í 1500 eintökum og var þeim dreift á milli starfsmannafélag- anna, SIB og bankanna. Kostnaðinn við útgáfuna var borinn uppi af nokkrum bankanna og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Bankablaðið birtir hér á eftir inngang bókarinnar, sem ritaður var af Einvarði Hallvarðssyni: A þeim níu áratugum sem liðnir eru frá því að lögin um fyrsta íslenska bankann voru sett, hefur orðið gerbreytíng á íslenskum þjóðfélagsháttum, og má óhætt fullyrða, að bankastarfsemin hafi átt ríkan þátt í þeim alhliða framförum, sem orðið hafa hér á landi síðan. Islendingar voru þá og lengi síðan fyrst og fremst bændaþjóðfélag, sem bjó við erfiða lífsbaráttu, með frumstæðum atvinnuháttum undir erlendri yfirstjórn. Þeir menn, sem lögðu grundvöllinn að stofnun bankans, voru bændur og embættismenn, sem höfðu hlotið þjálfun og þroska í skóla reynslunnar í baráttu við erfið lífskjör, óstjórn, verslunaráþján, hallæri og skort á öllum sviðum. Þjóðina skorti húsnæði, heilbrigðisþjónustu, sam- göngutæki, skip og hverskonar tæki til öflunar verðmæta, skóla og allskonar fræðslu, að ekki sé minnst á sérfræðilega ráðunauta, sem nú þykja nauðsynlegir. Þetta framtak þeirra ber vott um gerhygli, framsýni og glöggan skilning á þörfum þjóðarinnar. Það er einkum tvennt, sem vekur sérstaka athygli í þessu sambandi. Annars vegar sá manndómur, sem þurfti til að ráðast í þetta, eins og ástatt var þá, þegar harðæri svarf svo fast að þjóðinni, að landflótti hófst í stórum stíl og hins vegar glöggskyggni forgöngumannanna, að nota fyrsta tækifærið, sem gafst með stjórnarskránni frá 1874, sem veitti þjóð- inni takmarkað sjálfræði, þannig að hún taldist, að vissu marki, Qár síns ráðandi. Sannaðist það enn hér, sem saga allra þjóða staðfestir, að engar framfarir verða án frelsis til sjálfsstjórnar. Hér á eftir verður reynt að gera nokkra grein fyrir upphafi og þróun bankastarf- seminnar hér á Iandi og mikilvægi hennar fyrir þjóðina, helstu þáttum í sögu sam- taka bankamannastéttarinnar og þá einn- ig mikilvægi þeirra bæði fyrir starfsmenn bankanna, bankana sjálfa og íslensku þjóðina, en þetta er allt nátengt hvað öðru. Adolf Björnsson. FRÉTTIR ÚR ÚTVEGSBANKANUM Adolf okkar Björnsson hefur sent okkur fregn- ir af nokkrum merkisafmælum úr Útvegs- bankanum. Sérstaklega finnst okkur athyglis- verður listinn yfir starfsafmæli á árinu 1984. Þar ber hæst, að Júlíus B. Jónsson hefur átt 45 ára starfsafmæli á árinu. Hér á eftir fara nöfn þeirra sem áttu merkileg starfsafmæli 1984: 15 ára: Eva Sigurðardóttir Gunnar Páll Ivarsson Halla Steingrímsdóttir Henrik Th. Gunnlaugsson Rósa Hanna Gústafsdóttir 20 ára: Anna Samúelsdóttir Ásgrímur Hilmisson Guðmundur Eiríksson Hildur Högnadóttir Inga Pála Björnsdóttir Jóhannes Jónsson Olga Hallgrímsdóttir Olöf Þórey Haraldsdóttir Súsanna Sigurðardóttir Örn Hólmjárn 25 ára: Aðalsteinn Sigurjónsson Ásta Björnsdóttir Elín Haraldsdóttir Katrín Guðmundsdóttir Loftur Guðbjartsson Þóra Ólafsdóttir 30 ára: Axel Kristjánsson Gunnar Kr. Gunnarsson Hilmar Örn Gunnarsson Hjálmar Eiðsson 35 ára: Anna Örnólfsdóttir Björk Valgeirsdóttir Isak Örn Hringsson Jón Isleifsson 45 ára: Júlíus B. Jónsson

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.