Bankablaðið - 01.12.1984, Blaðsíða 32

Bankablaðið - 01.12.1984, Blaðsíða 32
32 Tengiliður starfsmanna og yfírmanns A ekki fjölmennari vinnustað en hér, verða samskiptin persónulegri en á stærri vinnustöðum, og kannski auðveldara að leysa vandamál sem upp koma. Trúnaðar- maður á að vera tengiliður milíi starfs- manna og yfirmanna, og það hefur ekki komið til neinna árekstra hér, enda ríkir hér góð samvinna. ítarlegri fréttir Eg er ánægður með þá upplýsingamiðlun er við fáum frá sambandinu, en við erum mörgum árum á eftir starfsbræðrum okk- ar á Norðurlöndum hvað tæknivæðingu varðar, og væri fengur í að fá ítarlegri fréttir af reynslu þeirra af beinlínuvæð- ingu, launamálum og fleiru. Hvað kjara- samninga varðar mætti leggja áherslu á örari hækkanir í launaflokkum, hærra starfsaldursálag, og jafnvel greiðslur til fatakaupa. Bankamannaskólinn og tæknivæðing Trúnaðarmannanámskeið SIB eru bæði fróðleg og gagnleg, þar kynnist maður vel starfsemi SÍB, og ekki síst kynnast trúnað- armenn frá hinum ýmsu bönkum við- horfum hvers annars. Varðandi Banka- mannaskólann, þá nýtist hann okkur afar illa á landsbyggðinni. Vil ég því nota tæki- færið og koma því á framfæri við stjórn- endur skólans að koma á fót námskeiðum, t. d. í hverjum landsfjórðungi. Það hefur engin fræðsla farið fram vegna komandi beinlínuvæðingar, sem heitið getur. Tækninni fleygir ört fram, og til að hún éti okkur hreinlega ekki, þurfa starfsmenn umfram allt kennslu og þjálfun. Afturför og kóróna Hvað opnunartímann snertir og hugsan- lega lengingu á vinnuskyldu starfsmanna, fyndist mér það mikil afturför og kóróna á þá afturhaldssömu launastefnu sem rekin er. Mikið nær væri að stytta vinnutímann, að minnsta kosti færa hann fram, að sumr- inu til. Ólafur vildi lítið segja um sjálfan sig, en með því að beita hinum ævafornu kvenna- klækjum hafðist upp úr krafsinu að hann hefur afar gaman af að fara í leikhús og stundar stangaveiði á sumrin. Hann sagð- ist le$a dálítið, eða réttara sagt vera alæta á því sviðinu. En hinsvegar væri ekki nægur tími til að sinna áhugamálunum, því laun- in rétt næðu því að vera fyrir saltinu í grautinn. Og þá vitum við það ... í Búnaðarbankanum var Steingrímur Bernhardsson útibússtjóri, en í dag er tekinn við embættinu Gunnar Hjartar- son. Þar tók á móti tíðindamanni blaðs- ins hress og broshýr trúnaðarmaður starfsmanna og gjaldkeri í bankanum, Snjólaug Sigurðardóttir. Á meðan við brunuðum á milli hæða og skoðuðum hvem krók og kima bank- ans, sem var virkilega ánægjulegt, því stofnunin er skemmtilega hönnuð og sér- staklega eftirtektarvert hve aðstaða starfsfólks er góð, þá notaði undirrituð tækifærið til að komast að því, hver konan væri á bak við bankagrímuna. Snjólaug Sigurðardóttir. í kapphlaupi við tímann Snjólaug er fædd og uppalin í sveit við gott atlæti, en mikla og ánægjulega vinnu. Þar kom skýringin á því hve athafnasöm hún er, því hún er ekki ánægð nema hafa ávallt nóg fyrir stafni. Og hún má hafa sig alla við í kapphlaupinu við tímann, því með starfi sínu í bankanum saumar hún og hannar flest öll föt á fjölskyldu sína, og stundar údlíf í sveitasælunni. Hún sagðist ekki hafa verið áfjáð í að taka að sér trún- aðarmannsstarfið, en reynir að sinna starfinu efdr bestu getu. Og það efumst við ekki um, sem þekkjum Snjóku, og þar með gefum við línuna dl hennar. Trúnaðarmannsstarfíð og starfsmannafundir Utíbúið var stofnað 1930, og í dag vinna þar 21 starfsmaður. Eg hef starfað sem trúnaðarmaður í 11h ár og verið svo lánsöm að hafa ekki átt við erfið vandamál að glíma í starfinu. Reynd- Bankamenn á Akureyri ar mætti gera bragarbót á ýmsu, t. d. að yfirmenn héldu fundi ásamt trúnaðar- manni, með starfsfólki öðru hverju. Eg er ánægð með að vera í þessu starfi, en vildi hafa meiri tíma til að sinna því. Það er mjög góð reynsla að starfa sem trúnaðar- maður. Eg hef gert tilraun til að halda starfsmannafundi, en þeir voru ekki vel sóttir. Samband yfirmanna og starfsfólks er bara nokkuð gott, en það er nú alltaf eitthvað sem er ekki í lagi, en við reynum að lagfæra það í sameiningu. Nauðsynlegt að fylgjast vel með Fréttir frá SIB eru góðar að mínum dómi. Sambandstíðindi koma reglulega, og ágæta yfirsýn fáum við með því að lesa Bankablaðið, en annað er svo hve fólk er duglegt að lesa það sem berst. Nauðsyn- legt er að við fylgjumst vel með því sem er að gerast hjá norrænu samböndunum, því ég tel að við getum lært mikið af þeim, ekki síst það sem reynst hefur illa þegar í fram- kvæmd er komið. Beinlínuvinnsla bankanna, „ON LINE“, hefur litla umfjöllun fengið, fólk hefur ekki nægan áhuga á þessum málum, það telur langt í land að beinlínuvinnsla komist á, og ekki þurfi að huga að því í náinni framtíð. En vonandi verður starfið áhugaverðara. Eg hlakka til að takast á við það. Námskeiðahald SIB og bankanna Auka mætti fræðslustarf SÍB. Þá t. d. í sambandi við námskeið úd á landi. Og þá ædast ég til að nýjungar séu kynntar áður en þær eru teknar í gagnið. Trúnaðar- mannanámskeiðin tvö sem ég hef sótt hafa komið sér vel og frekari námskeið væru vel þegin dl að viðhalda þekkingu á starfinu. Námskeið á vegum bankanna þyrftu að vera betri, t. d. er ekki staðið nógu vel að undirbúningi fyrir starfsmenn, þegar nýj- ungar eru á döfinni hjá bönkunum. Breyta þyrfti opnunartíma á sumrin Vinnutíminn er góður eins og hann er í dag, en ég óttast að margir myndu hætta ef vinnuskylda eykst. Annað er að mikil ánægja yrði ef opnunartíma yrði breytt yfir sumartímann, þá frá kl. 8:00—15:00. Vinnuaðstaðan er nokkuð góð hérna hjá okkur, en loftræstíngin mættí vera betri. Við höfum mjög góða aðstöðu fyrir starfsfólk, bæði sal fyrir samkomur og kaffistofu. Svo er íbúð fyrir bankastarfs- fólk í bankanum sem er mikið notuð af ferðalöngum allsstaðar af landinu.

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.