Bankablaðið - 01.12.1984, Side 18

Bankablaðið - 01.12.1984, Side 18
18 Finnlandsför rétt á hálts mánaðar leyfi frá störfum til að sækja námskeið, ráðstefnur o. þ. h. og þurfi meiri u'ma tekur stéttarfélagið, NBF, við að greiða launin. Hins vegar þekktist slíkt Varla í Danmörku og getur meira að segja verið erfitt fyrir Danina að fá að sinna nokkrum félagsstörfum í vinnutíma. í öllum tilfellum er trúnaðarmannsstarfið frábrugðið því sem hér þekkist, enda er það hér í mótun enn þótt okkar net sé líklega eitt hið öflugasta í okkar landi. Trúnaðarmenn erlendis eru mikilvægari tenglar milli yfirmanna (starfsmanna- stjórnar t. d.) og starfsmanna en hér. Til dæmis eru trúnaðarmenn víða viðstaddir ráðningar og fastráðningar og ævinlega kallaðir til ef eitthvað kemur upp á. Eftir „kvöldmat" kl. 17 var pallborðs- umræða eins og seinni kvöldin, og stóð til kl. 20. Þannig var vinnudagurinn alla dag- ana frá 10 til 12 tímar. Öryggismál — Vinnuumhverfi — Menntun — Tækniþróun A þriðjudagsmorgun var skipt upp í nýja vinnuhópa: 2 hópar ræddu Vinnuum- hverfi og öryggismál, 2 Bankamenntun og félagslega menntun, og 2 hópar Tækni- þróun í bönkum. Þegar Skandínavar ræða um öryggismál er efst á baugi hjá þeim hvernig á að bregðast við bankaránum, gislatöku, sprengjuhótunum og þvílíku. Afleiðingar svona uppákomu eins og ráns er hlutur sem við höfðum hreint ekki leitt hugann að. í Danmörku til dæmis, þar sem rán eru hátt á annað hundrað á ári, er nú starfs- manni, sem hefur lent í slíku, leyft að vera heima eða ganga til læknis að eigin ósk eins lengi og hann sjálfur telur þörf á. Þetta kemur til af því að áfallið, sem kemur fram eftir á getur annars riðið starfsmanninum að fullu. Annað sem maður hefur ekki hugsað út í: Starfsmaður, sem hefur lent í ráni, er oft grunaður um aðild að ráninu. Þegar það kemur upp á og njósnir um hann bætast kannske ofan á sjokkið getur þar verið mikill sálarháski á ferðum. Aðrar hættur en ránshættan eru vissu- lega fyrir hendi í bönkum. Mörg tæki geta klemmt, skorið eða höggvið og stöðugt bætast ný við. Til dæmis er í tölvuskjáum notuð há spenna h'kt og í heimilissjónvörp- um. Svona hættur verður best forðast með því að fara ekki út fyrir verksvið sitt með því t. d. að reyna að gera við sjálfur. Sjálfs sín vegna ætti hver starfsmaður að vera vakandi fyrir þeim þáttum í umhverf- inu sem geta haft neikvæð áhrif á starfið eða heilsuna: húsgögnum, verkfærum, birtu, lofti. Tveir hópanna ræddu um menntunar- mál bankamanna. Alls staðar er nýráðn- um bankamönnum gert skylt að ganga á námskeið í eigin menntastofnunum bank- anna. I Noregi er eins og annars staðar mjög gott úrval námskeiða fyrir banka- menn á öllum stigum og störfum. Norð- menn nota mikið bréfaskólakerfi, sem mundi vafalaust henta mjög vel hérna. Akveðnar reglur gilda um heimalestur þeirra sem stunda námskeiðin: mæður fá 10 tíma á launum á viku, aðrir 5. Auk þess má lesa í vinnutíma að vissu marki. Opnunartímar? Fimmtudaginn 6. september var haldið áfram umræðum þar sem frá var horfið morguninn áður. Nú var einnig komin í gang vinna við bréf sem varðar opnunar- tíma banka og hefur nú verið sent yfir- stjórn NBU og öllum forsetum stéttar- félaganna. Bréfi þessu, sem birtist í Sambands- tíðindum, fylgdi djúp alvara. A Norð- urlöndunum öllum hefur lengi verið mikill þrýstingur um Iengri opnunartíma (sem er núna mjög svipaður alls staðar). í Noregi er nú údit fyrir að varnir séu að bresta, laugardagsopnun er að verða að veruleika. Því varð þetta bréf til, hug- myndin kom frá Norðmönnunum og fékk góðar undirtektir meðal þátttakenda: Við viljum sameiginlega stefnumótun í opn- unarmálum fyrir Norðurlöndin undir forystu NBU. Eftir hádegi þennan dag fórum við með rútu inn í Helsinki. Heimsóttum við þing- hús Finna, Riksdagshuset, sem er mjög virðulegt og glæsilegt hús. Til dæmis um vinnuaðstöðu þingmannanna, sem eru nærri 200, má nefna að hver einasti þeirra hefur lítið herbergi með öllum þægindum til umráða. Herbergi þessi eða cellur eru í nýrri járnbyggingu sem minnir að vísu mest á risastóran frystiskáp, en hvílíkur munur frá kotbúskap Alþingis. Nú var verslað í borginni í 2 tíma. Það var stundin sem gafst til slíks meðan á dvölinni stóð. Síðan var stigið á bátsfjöl og siglt út í eyju eina í innsiglingjunni til Helsinki. Til dæmis um vinnuhörkuna á nám- skeiðinu er gaman að minnast þess að á þessari stuttu siglingu var skotið á enn einum vinnufundinum; í þetta sinn um bréfið góða til NBU. Hin fyrirheitna eyja heitir Sveaborg, og eins og nafnið bendir til var hún notuð til varna fyrrmeir, virkisveggirnir eru meira en Qögurra alda gamlir. I virkinu er veit- ingastaður sem við mötuðumst í við þjóð- legan undirleik tónlistarmanna og áttum mjög ánægjulega stund. Við heimkomuna til TOC var kvállsmat í Blá salongen. Vegna þess að nafnið var stundum misskilið í dagskrá skal tekið fram að ekkert var blátt við sal þennan, hvorki innan né utan, hvað þá annað. Hann var mest rauður og grár (natur) eins og raunar skólinn allur. Föstudagsmorgunn. Stuttur fundur. Pjönkurnar tíndar sam- an. Kveðjustund. Söknuður. Anægja. Þreyta. Við þrjú, undirrituð, sem sóttum þetta námskeið frá SÍB, höfum hér tekið saman það helsta sem á daga okkar dreif í ferð- inni. Við rekjum hér dag fyrir dag eins og hann gekk fyrir sig af talsverðri u'malegri nákvæmni til að gefa þeim, sem eiga eftir að fara, hugmynd um hvernig svona nám- skeið gengur fyrir sig. Við höfum dregið hér saman þau atriði úr hópvinnu og fyrir- lestrum, sem athygli okkar vöktu og eiga við okkur erindi. Flest eru þetta athuganir vinnuhóps eða alls hópsins, en sumt fróð- leiksmolar úr samtölum við útlenda kol- lega okkar. Við óskum þess að þessi nám- skeið eigi eftir að halda velli í þessu formi og skorum á alla trúnaðarmenn í SÍB að sækja um þátttöku á næsta ári. Að lokum þökkum við SIB fyrir og sér- staklega Helga, Guðrúnu Ástdísi og Bene- dikt fyrir ánægjulega samvinnu. Auðbjörg Helgadóttir Landsbanka íslands, Bima Bjamadóttir Sparisjóði Hafnarfjarðar, Kristján Geir Amþórsson Reiknistofu bankanna.

x

Bankablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.