Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.02.1938, Blaðsíða 13
Tímarit Tónlistarfélagsins
lir »Heilræðum« Rob. Schumann’s
Syngdu oft með í kór- — sérstaklega í milliröddum.
Þaö mun gera þig söngvinn.
*
Hlustaðu með athygli á öil þjóðlög, í þeim er sönn
gullnáma af fegurstu söngvum (melódíum) og munu opna
augu þín fyrir ólíku lunderni þjóöanna.
*
Dæmdu ekki um tónverk í fyrsta sinn er þú heyrir
þau. Það, sem þér geðjast að við fyrstu viðkynningu, er
eigi ávalt það bezta. Stórtónskáldunum þarf að kynnast
vel. Margt mun fyrst verða þér ljóst í ellinni.
*
Gerðu þér far um þó rödd þín sé lítil, að syngja frá
blaðinu án aðstoðar hljóðfærisins. Með því muntu skerpa
eyra þitt. En ef þú hefir hljómmikla rödd, þá láttu ekk-
ert tækifæri ónotaö til að þroska hana og skoðaðu hana,
sem þá fegurstu gjöf að ofan.
*
Gáðu vel að því að hljóöfæri þitt sé hreint stillt.
*
Óttastu eigi orðin, hljómfræði, grunnbassi, kontra-
punktur, o. s. frv., þau munu fúslega koma á móti þér,
ef þú gerir slíkt hið sama.
*
Lestur tónlistarsögunnar samfara áheyrn snilldar-
verka ýmsra tíma mun fljótlega lækna þig af sérgæðings-
skap og hroka.
S a m t í
Spurningar og svör
(Lesendur geta sent spurningar
til Tímarits Tónlistarfélagsins).
Vill Tímarit Tónlistarfélagsins
gera svo vel að svara eftirfarandi
spurningum:
n i g u r
1. Hvað þýðir una corda?
2. Hvað er sónata, symfónía og
konsert?
3. Hvaö þýðir „Philharmonie"?
Svar:
1. „Una corda" (skammst. u. c.)
13