Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.02.1938, Blaðsíða 12
Tímarit Tónlistarfélagsins
B æ k u r
Dr. Erik Abrahamsen: „Tónlistin“.
Þýdd af dr. Guðm. Finnbogasyni.
Á síðastliönu hausti kom í fyrsta sinni út á íslenzku
bók um tónlistina almennt. Var það Þjóövinafélagið, sem
fyrst réðist á vaðið um útgáfu slíkrar bókar. Höfundur
hennar er dr. Erik Abrahamsen í Kaupmannahöfn, sá sem
flutti hér fyrirlestra við háskólann fyrir nokkrum árum;
en' dr. Guðm. Finnbogason annaðist þýðinguna. Bókin
flytur lesandanum á 177 bls. undirstöðufræðslu um flest
er að tónlist lýtur, svo sem: byggingu lags, eðli hljóðfalls-
ins, hljóma, hreina tónlist og hermitónlist, tónlistarform,
sögu tónlistarinnar o. fl. Er hún því sannkallaður hval-
reki fyrir tónlistarvini, og ennfremur ættu allir þeir, sem
hlusta á tónlistarflutning útvarpsins, hið bráðasta að fá
sér hana, því margir munu þeir vera sem átta sig jafn-
lítið á symfóníum Beethovens og fúgum Bachs og útlend-
ingar á dýrt kveðnum sléttubandavísum, og er það ekki
vanzalaust, þar sem um jafnmikið menningarmál er að
ræða og tónlistina.
Dr. Guðm. Finnbogason hefir með þýðingu sinni leyst
stórt verk af hendi, þar sem hann af mikilli snilli hefir
skapað fjölda af íslenzkum tónlistarorðum. Var þar áður
ekki um auðugan garð að gresja, en þó ber að nefna
að próf. Sigfús Einarsson hafði þýtt — og það ágætlega —
mörg orð hljómfræðinnar, enda hefir G. F. haldið þeim
í þýðingu sinni. Ég skal láta ósagt hvort öll nýyrðin muni
festast í málinu, en eflaust munu mörg þeirra ná hylli
tónlistarmanna. Væri óskandi að dr. G. F. lyki við hafið
verk og fyndi góð þýðingarheiti á hinum erlendu tón-
listarorðum, sem máli skipta og enn eru eftir.
Bók þessi ætti að verða kennslubók í öllum skólum
með þroskaða nemendur og myndi þá nauðsyn hennar
brátt koma í ljós. — Hafi stjórn Þjóðvinafélagsins og
dr. Guðm. Finnbogason þakkir fyrir hana.
12