Jazz - 01.04.1947, Blaðsíða 7
Armstrong
og }{ona hans,
Lucille.
íslendingur á hljómleikum hjá
Armstrong
Ungur íslendingur, er stundar nám í hljóð-
færaleik í Bandaríkjunum, hafði tækifæri
til að hlusta á Louis Armstrong á hljóm-
leikum hans, en hann hélt hljómleika í
Carnegie Hall. Fylgir hér á eftir lýsing
hans á hljómleiknum.
Er Louis Armstrong heldur hljómleika,
þá komast allir, sem unna jazz í æsing, og
það er að minnsta kosti óhætt að segja, að
gamli maðurinn leikur ekki fyrir tómu húsi.
Louis Arstrong hélt hljómleika 8. febrúar
á vegum Leonards Feather, en hann er einn
af ritstjórum Metronome, hins kunna hljóm-
listatímarits. Fóru þeir fram í Carnegie Hall
og var skipt niður í fjóra hluta.
Fyrsti hlutinn var helgaður Orleans eða
þeim tíma, þegar jazzleikararnir voru frjálsir
eins og fuglar himinsins. Á meðal laga, sem
þarna voru leikin voru t. d. Free as a Bird,
Did’n he ramble og Dipper mounth blues og
að endingu var leikið I5asin street blues eftir
S. Williams.
Næsti kafli hét Chicago, en þar var það,
að Armstrong og Earl Hines komu saman
og léku inn á plötur, er nú eru taldar með
því bezta, sem leikið liefur verið, og má t. d.
nefna West End Blues, sem var leikinn 1928.
I þessum kafla voru m. a. leikin lögin: Blue
and black, You, rascal you, Save it pretty
mama og að lokum Ain’t Misbehavin’ eftir
Fats sáluga Waller.
Þriðji kaflinn var kenndur við New York,
og voru í þeim flokki eftirtöld lög:
St. Louis Blues, Tiger Rag og Confessin,
en þar söng Armstrong með hinni hásu og
fallegu rödd sinni.
Seinasti kaflinn var kenndur við Holly-
wood og voru þar leikin eftirfarandi lög:
Fyrst var kynningarlag hljómsveitarinnar,
Stomping at the Savoy, svo kom hið gamal-
kunna I can’t give you anything but love,
JAZZ 5